27/03/2026
🇺🇬🇳🇱🇮🇸
We were very pleased to witness the strong progress achieved in our joint HEROES programme with the Embassy of the Netherlands in Uganda on sexual and reproductive health and rights (SRHR) during our recent visit to Kalangala District.
Iceland’s contribution focuses on improving access to water, sanitation and hygiene (WASH), empowering survivors of gender-based violence through socioeconomic inclusion, and enhancing access to SRHR information for persons with disabilities.
We met with remarkable girls and women who have received training in various skills such as tailoring, hairdressing and crafts. Despite the hardships they have faced, they remain determined to improve their socioeconomic situation.
We also observed the positive impact of upgraded WASH facilities, particularly in schools. Students at Mulabana Primary School, especially girls, spoke about the burden of collecting water before the mini piped-water system was installed. This intervention will contribute to improved hygiene and better health outcomes in this hard-to-reach island setting.
We extend our thanks to Kalangala District, the Embassy of Netherlands, Amref Health Africa, MIFUMI and Cordaid for their vital role in improving access to SRHR in underserved communities through the Heroes programmes.
-/-/-/-/-/-/-/-/-/-
Það var okkur mikil ánægja að sjá þann góða árangur sem náðst hefur í sameiginlegu Heroes-verkefni Íslands með hollenska sendiráðinu um kyn- og frjósemisheilbrigði og réttindi (SRHR) í nýlegri heimsókn okkar í Kalangala-héraði.
Framlag Íslands beinist að því að bæta aðgengi að vatni, hreinlætis- og salernisaðstöðu (WASH), efla þolendur kynbundins ofbeldis með verknámi og þjálfun, og bæta aðgengi fatlaðs fólks að upplýsingum um kyn- og frjósemisheilbrigði.
Í heimsókninni hittum við framúrskarandi stúlkur og konur sem hafa hlotið þjálfun í m.a. hársnyrtingu, fatasaumi og handverki. Þrátt fyrir þá erfiðleika sem þær hafa átt við að etja eru þær staðráðnar í að bæta félagslega og efnahagslega stöðu sína.
Við urðum einnig vör við jákvæð áhrif endurbættrar WASH-aðstöðu, sérstaklega í skólum. Nemendur við Mulabana skóla, þá einkum stúlkur, lýstu þeim erfiðleikum sem fylgdi því að þurfa að sækja vatn langar leiðir áður en vatnsveitukerfið var sett upp í nágrenni við skólann. Þessi þáttur verkefnisins mun stuðla að betra hreinlæti og heilsufari á þessu afskekkta eyjasvæði.
Við færum Kalangala-héraði, sendiráði Hollands, Amref, Mifumi og Cordaid bestu þakkir fyrir þeirra mikilvæga hlutverk í að bæta aðgengi að kyn- og frjósemisheilbrigði í jaðarsettum samfélögum í gegnum Heroes-verkefnin.