13/08/2026
🇮🇸 Nýr staðgengill sendiherra, Bjarki Þórsson, er tekinn til starfa í sendiráði Íslands í Osló. Eitt af fyrstu verkefnum hans var að sækja Arendalsuka, stærsta vettvang stjórnmálaumræðu og lýðræðishátíð í Noregi. Hátíðin fer fram árlega í ágúst og leiðir saman stjórnmálafólk, erlenda sendifulltrúa, fulltrúa atvinnulífs, félagasamtaka, háskólasamfélagsins og almenning til umræðna um stjórnmál, alþjóðamál og önnur mikilvæg samfélagsmál.
Á Arendalsuka sótti Bjarki fjölbreytta viðburði, meðal annars hringborðsumræður sendiherra um varnarmál, viðburði um málefni norðurslóða, pallborðsumræður norskra stjórnmálaleiðtoga um utanríkismál og málþing um stöðu lýðræðis í heiminum, þar sem Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, var frummælandi. Þá tók Bjarki, fyrir hönd sendiráðsins, þátt í pallborðsumræðum um stöðu norðurslóða.
Við óskum Bjarka hjartanlega velkominn til sendiráðsins og til Noregs!
🇳🇴 Ny nestleder og forsvarsattaché, Bjarki Þórsson, har hatt sin første uke ved Islands ambassade i Oslo. En av hans første oppgaver var å delta på Arendalsuka, Norges største møteplass for politisk debatt og demokrati.
Under Arendalsuka deltok Bjarki på flere arrangementer. Blant annet rundebordsdiskusjon mellom ambassadører om forsvar, arrangementer om Arktis og en paneldebatt med norske politiske ledere om utenrikspolitikk. Bjarki var også til stede under et seminar om demokratiet i verden hvor Norges utenriksminister Espen Barth Eide holdt hovedinnlegget. I tillegg deltok Bjarki, på vegne av ambassaden, i en paneldebatt om situasjonen i Arktis.
Vi ønsker Bjarki hjertelig velkommen til ambassaden og til Norge!
Utanríkisráðuneytið - utanríkisþjónusta Íslands
📸 Sigmund Sagberg Andersen/EU Delegation to Norway & privat