Vopnafjörður

Vopnafjörður Velkomin á Facebook-síðu Vopnafjarðarhrepps.

Þrjú skemmtiferðaskip eru væntanleg á Vopnafjörð í sumar! 🛳️Við hvetjum alla sem hafa mögu­leika á að taka þátt að skoða...
29/05/2026

Þrjú skemmtiferðaskip eru væntanleg á Vopnafjörð í sumar! 🛳️

Við hvetjum alla sem hafa mögu­leika á að taka þátt að skoða hvort hægt sé að hafa opið á þessum dögum og bjóða upp á þjón­ustu sem gæti höfðað til gesta.

Vopna­fjörður tekur á móti þremur skemmti­ferða­skipum í sumar og viljum við vekja athygli íbúa og þjón­ustu­aðila á komum þeirra. Skipin eru vænt­anleg á eftir­far­andi dagsetn­ingum:

Í byrjun árs var farið af stað í úttekt á rekstri sveit­ar­fé­lagsins og var markmið úttekt­ar­innar að greina stöðu rek...
21/05/2026

Í byrjun árs var farið af stað í úttekt á rekstri sveit­ar­fé­lagsins og var markmið úttekt­ar­innar að greina stöðu rekstrar sveit­ar­fé­lagsins og leggja fram tillögur sem geta stuðlað að hagræð­ingu og sjálf­bærari rekstri til lengri tíma. Lagt er til að farið verði í ákveðnar skipu­lags- og stjórn­sýslu­breyt­ingar með það að mark­miði að bæta rekstur og tryggja áfram góða þjón­ustu við íbúa.

Síðasti sveit­ar­stjórn­ar­fundur kjör­tíma­bilsins fór fram í dag, 21. maí 2026 og voru teknar fyrir hagræð­ing­ar­til­lögur fyrir nýja sveit­ar­stjórn.

Hér má sjá afgreiðslutíma í sveitarfélaginu í dag, uppstigningardag. Selárlaug verður opin kl. 12:00-18:00.Njótið dagsin...
14/05/2026

Hér má sjá afgreiðslutíma í sveitarfélaginu í dag, uppstigningardag.

Selárlaug verður opin kl. 12:00-18:00.

Njótið dagsins!

Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2025 var samþykktur á fundi sveitarstjórnar nr. 37, 7. maí sl.
12/05/2026

Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2025 var samþykktur á fundi sveitarstjórnar nr. 37, 7. maí sl.

Seinni umræða sveit­ar­stjórnar um ársreikning Vopna­fjarð­ar­hrepps 2025 fór fram á sveit­ar­stjórn­ar­fundi í Mikla­garði föst­daginn 08. maí 2026.

11/05/2026
Fjölbreytt tækifæri í Vopnafjarðarskóla!Vopnafjarðarskóli leitar að öflugu og jákvæðu fólki í fjölbreytt störf.Opið er f...
06/05/2026

Fjölbreytt tækifæri í Vopnafjarðarskóla!

Vopnafjarðarskóli leitar að öflugu og jákvæðu fólki í fjölbreytt störf.

Opið er fyrir umsóknir í eftirfarandi stöður:

✨ Skólastjóra
✨ Aðstoðarskólastjóra
✨ Aðstoðarmatráð
✨ Stuðningsfulltrúa
✨ Skólaliða

Hægt er að kynna sér hvert starf fyrir sig betur undir atvinnudálknum á vef Vopnafjarðarhrepps hér að neðan:

Lausar stöður hjá Vopnafjarðahreppi

01/05/2026
Lokað er í Selárlaug og íþróttahúsi á morgun, á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí!
30/04/2026

Lokað er í Selárlaug og íþróttahúsi á morgun, á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí!

OPIÐ BRÉF TIL ÍBÚA LANGANESBYGGÐAR OG VOPNAFJARÐAR FRÁ STJÓRNARMÖNNUM FFPDÞróunarfélag Finnafjarðarhafnar ehf. I Finnafj...
28/04/2026

OPIÐ BRÉF TIL ÍBÚA LANGANESBYGGÐAR OG VOPNAFJARÐAR FRÁ STJÓRNARMÖNNUM FFPD

Þróunarfélag Finnafjarðarhafnar ehf. I Finnafjord Port Development Company ehf.
Lynghálsi 4
110 Reykjavíkurborg

Bremen/Reykjavik, 21. apríl 2026

Sveitarfélögin Langanesbyggð og Vopnafjörður
Til: Fulltrúa í sveitarstjórnum beggja sveitarfélaga og íbúa.
Varðar: Finnafjord Port Project – Íbúafundur 31. mars 2026

Opið bréf til íbúa
Kæru íbúar Langanesbyggðar og Vopnafjarðar,

Þann 24. mars 2026 þáði Þróunarfélag Finnafjarðarhafnar ehf. (oft skammstafað sem FFPD) boð sveitarstjórna Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps um að kynna, á opnum fundi, Finnafjarðarverkefnið fyrir íbúum beggja samfélaga. Við vorum afar þakklát fyrir þetta boð og komum til Þórshafnar til að kynna framtíðarsýn okkar og stöðu verkefnisins.

Eftir íbúafundinn fengum við nokkrar athugasemdir, sérstaklega varðandi yfirlýsingar um hvað nærsamfélag ætti að gera til að tryggja framgang verkefnisins. Þessar athugasemdir valda okkur áhyggjum, enda leggjum við okkur fram um að þróa verkefnið í samstarfi við bæði samfélög. Þess vegna teljum við viðeigandi að biðjast einlægrar afsökunar á því hvernig skilaboðum okkar var komið á framfæri á þessum fundi. Við höfum fullan skilning á því að að kynning okkar kunni að hafa valdið sárindum meðal viðstaddra. Á þessu berum við fulla ábyrgð.

Við hörmum það innilega ef orðræðan hafði ekki aðeins áhrif á þá sem voru viðstaddir fundinn, heldur einnig aðra þá íbúa sem lengi hafa stutt Finnafjarðarverkefnið – og eru nú í afar erfiðri stöðu þegar þeir eru beðnir um að útskýra verkefnið eða verja. Við skiljum að traust hefur skaðast, og að slíkt geti dregið úr þátttöku og trú heimamanna á verkefnið.

Finnafjarðarverkefninu er ætlað að vera valkostur fyrir bæði sveitarfélögin til að bregðast við fækkun íbúa, með því að styrkja núverandi virðiskeðjur í sjávarútvegi og um leið kanna tækifæri tengd grænni orku. Þessi tækfæri eru sannarlega háð framboði á raforku, rétt eins og fram kom á fundinum. Raunhæfasti valkosturinn í dag er vindorka sem væri virkjuð í nálægð við verkefnið. Fyrsti áfanginn í slíkri uppbyggingu yrði jafnframt upphafspunkturinn fyrir framtíðarþróun Finnafjarðarverkefnisins.

Finnafjarðarverkefnið hefur staðið yfir í langan tíma, en Bremenports gekk til liðs við sveitarfélögin árið 2012. Í ljósi þessa er eðlilegt að hluthafar Bremenports og Eflu, sem koma að verkefninu, spyrji sig hvað fyrirtækin séu að gera á Íslandi. Það er óljóst hversu lengi þessir samstarfsaðilar geta haldið áfram með verkefnið án þess að ná raunverulegum árangri.

Að sjálfsögðu sjáum við og kunnum að meta þá miklu vinnu sem sveitarstjórnir Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps hafa lagt í verkefnið, t.d. með því að vinna að þróun vindorku og með ráðningu verkefnastjóra til að styðja við FFPD. Hann leggur mikið til verkefnisins, sérstaklega þegar kemur að samskiptum við stjórnvöld.

Nú, hvað stjórnvöld snertir, þá teljum við samtalið vera á góðum stað. Við getum í sameiningu mótað raunhæfar kröfur til verkefnisins og unnið að framgangi þess landshlutanum til heilla. Við getum og viljum halda áfram, en þó aðeins í nánu samráði og samstarfi við sveitarstjórnir Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps.

Við væntum þess að framtíðarsamstarf okkar við bæði sveitarfélögin verði eins og áður mótað af gagnkvæmu trausti og opinskáum samskiptum, en við viljum einnig sjá skýrari mótun þeirra hugmynda sem samfélögin hafa varðandi Finnafjarðarverkefnið.

Með bestu kveðjum
- Fyrir hönd Finnafjord Port Development Company ehf. (FFPD) -
ROBERT HOWE HAFSTEINN HELGASON

Skráning er hafin fyrir sumarnámskeið 2026! ☀️List - Vísindi - Ævintýri - SurvivorNámskeiðin eru fjögur og fara fram 8. ...
27/04/2026

Skráning er hafin fyrir sumarnámskeið 2026! ☀️

List - Vísindi - Ævintýri - Survivor

Námskeiðin eru fjögur og fara fram 8. júní - 3. júlí fyrir börn fædd 2013-2019. Hægt er að skrá börnin viku í senn og fer skráning fram í gegnum Abler. 🤸‍♂️

Nú er hægt að skrá börnin á sumarnámskeið fyrir komandi sumar 2026!

Address

Hamrahlíð 15
Vopnafjordur
690

Opening Hours

Monday 10:00 - 14:00
Tuesday 10:00 - 14:00
Wednesday 10:00 - 14:00
Thursday 10:00 - 14:00
Friday 10:00 - 14:00

Telephone

+3544731300

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vopnafjörður posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Vopnafjörður:

Share

Category