16/03/2026
Meirihluti sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps vill árétta að við berum fullt traust til Írisar Eddu Jónsdóttur, staðgengils sveitarstjóra.
Frá því hún tók við starfi sem staðgengill sveitarstjóra hefur Íris Edda sinnt verkefnum sínum af fagmennsku og ábyrgð, einnig hefur samstarf við sveitarstjórn verið gott.
Við höfum unnið náið með henni bæði í núverandi starfi og áður í stjórnsýslu sveitarfélagsins og teljum hana vel til þess fallna að gegna því hlutverki sem henni hefur verið falið.
Rétt er að undirstrika að samkvæmt lögum hefur hver og einn sem uppfyllir skilyrði til kjörgengis rétt til að bjóða sig fram til sveitarstjórnarkosninga.
Framboð Írisar Eddu í komandi kosningum breytir því ekki að hún nýtur trausts meirihluta sveitarstjórnar til að sinna starfi sínu á meðan hún gegnir því.
Meirihlutinn leggur áherslu á að stjórnsýsla sveitarfélagsins haldi áfram að starfa af fagmennsku og stöðugleika á komandi vikum og að þjónusta við íbúa verði ávallt í forgangi.
Fyrir hönd meirihlutans,
Aðalbjörg Ósk, oddviti.