Sveitarfélagið Vogar

Sveitarfélagið Vogar Sveitarfélagið Vogar er vinalegur bær á Suðurnesjum
Heimasíðan er www.vogar.is Þann 1. Nýtt sveitarfélag varð til, en byggir á gömlum og traustum grunni.

janúar 2006 var nafni Vatnsleysustrandarhrepps breytt í Sveitarfélagið Vogar, samhliða því að stjórnskipan sveitarfélagsins var breytt. Sveitarfélagið Vogar er næst landstærsta sveitarfélagið á Suðurnesjum og nær yfir Vatnsleysuströnd og bæinn Voga. Í sveitarfélaginu bjuggu rúmlega 1.200 manns þann 1. desember 2007. Íbúum hefur fjölgað jafnt og þétt síðastliðin ár, enda í Vogum mjög fjölskylduvænt

og stutt að sækja atvinnu og þjónustu. Sveitarfélagið Vogar er mjög vel staðsett. Í nágrenni við þjónustu og vinnumarkað höfuðborgarsvæðisins, en býður upp á rólegt og vinalegt umhverfi þar sem stutt er í náttúruna.

08/09/2026

Athugið ⚠️🏊

Sundlaugin verður opin frá kl. 6:15-7:30 á morgun en lokar svo út daginn. Önnur starfsemi íþróttamiðstöðvar verður samkvæmt opnunartíma.

Sjá nánar ➡️ Íþróttamiðstöðin í Vogum

⚠️ Lokun á heitu vatni á Suðurnesjum á morgun 9. septemberVegna viðamikilla framkvæmda hjá HS Veitum verður lokað fyrir ...
08/09/2026

⚠️ Lokun á heitu vatni á Suðurnesjum á morgun 9. september

Vegna viðamikilla framkvæmda hjá HS Veitum verður lokað fyrir heitt vatn á Suðurnesjum miðvikudaginn 9. september.

🔹 Sveitarfélagið Vogar
⏰Lokað frá kl. 08:00 | Áætluð tímalengd 5–7 klst.

💧 Nánari upplýsingar, kort og áætlaða tímalínu fyrir hvert svæði má nálgast í tilkynningu HS Veitna. Hlekkur er í fyrstu athugasemd.


Starfsfólk bæjarskrifstofunnar tekur þátt í Treyjudeginum í dag til stuðnings börnum með krabbamein. Með því er sýnd sam...
04/09/2026

Starfsfólk bæjarskrifstofunnar tekur þátt í Treyjudeginum í dag til stuðnings börnum með krabbamein. Með því er sýnd samstaða með börnunum og fjölskyldum þeirra 💙
https://treyjudagur.is/

⚠️ Lokun á heitu vatni á Suðurnesjum miðvikudaginn 9. septemberVegna viðamikilla framkvæmda hjá HS Veitum verður lokað f...
03/09/2026

⚠️ Lokun á heitu vatni á Suðurnesjum miðvikudaginn 9. september

Vegna viðamikilla framkvæmda hjá HS Veitum verður lokað fyrir heitt vatn á Suðurnesjum miðvikudaginn 9. september.

🔹 Sveitarfélagið Vogar
⏰Lokað frá kl. 08:00 | Áætluð tímalengd 5–7 klst.

Við vitum að lokun á heitu vatni hefur áhrif á daglegt líf og hvetjum því viðskiptavini til að gera ráðstafanir með góðum fyrirvara.

💧 Nánari upplýsingar, kort og áætlaða tímalínu fyrir hvert svæði má nálgast í tilkynningu HS Veitna. Hlekkur er í fyrstu athugasemd.

⚠️ Lokun á heitu vatni á Suðurnesjum miðvikudaginn 9. september

Við höldum áfram að endurnýja og styrkja hitaveitukerfið okkar til framtíðar. Vegna viðamikilla framkvæmda verður lokað fyrir heitt vatn á Suðurnesjum miðvikudaginn 9. september.

🔹 Ytri-Njarðvík, Keflavík og Suðurnesjabær
Lokað frá kl. 04:00 | Áætluð tímalengd 12–24 klst.

🔹 Innri-Njarðvík, Ásbrú, Keflavíkurflugvöllur og Vogar
Lokað frá kl. 08:00 | Áætluð tímalengd 5–7 klst.

Við vitum að lokun á heitu vatni hefur áhrif á daglegt líf og hvetjum því viðskiptavini til að gera ráðstafanir með góðum fyrirvara.

💧 Nánari upplýsingar, kort og áætlaða tímalínu fyrir hvert svæði má nálgast í tilkynningu okkar. Hlekkur er í fyrstu athugasemd.

Reykjanesbær Suðurnesjabær Sveitarfélagið Vogar

✨Hækkun greiðslna til foreldra barna eldri en 18 mánaða✨Til að bregðast við stöðu á biðlistum eftir leikskólaplássum hef...
28/08/2026

✨Hækkun greiðslna til foreldra barna eldri en 18 mánaða✨

Til að bregðast við stöðu á biðlistum eftir leikskólaplássum hefur sveitarfélagið samþykkt fimm liða aðgerðaráætlun til stuðnings barnafjölskyldum. Meðal aðgerða er hækkun heimgreiðslna til foreldra og aukinn stuðningur við dagforeldrakerfið.

Á fundi bæjarráðs þann 25. ágúst sl. var samþykkt að hækka heimgreiðslur og niðurgreiðslur til dagforeldra vegna barna eldri en 18 mánaða sem eru á biðlista eftir leikskólaplássi. Hækkanirnar taka gildi frá og með 1. september 2026.

🔹Niðurgreiðslur til dagforeldra hækka úr 129.600 kr. í 149.585 kr. á mánuði, miðað við átta tíma vistun.

🔹Heimgreiðslur til foreldra hækka úr 129.600 kr. í 150.000 kr. á mánuði.

Ath. Heimgreiðslur eru greiddar eftir á og mun því fyrsta greiðsla samkvæmt nýju fjárhæðinni berast þann 30. september næstkomandi.

Haft hefur verið samband við foreldra allra barna, 18 mánaða og eldri, sem eru á biðlista eftir leikskólaplássi og þeim kynntar þær breytingar sem nú hafa verið samþykktar.

Til að bregðast við stöðu á biðlistum eftir leikskólaplássum hefur sveitarfélagið samþykkt fimm liða aðgerðaráætlun til stuðnings barnafjölskyldum. Meðal a

✨ Nýr pistill frá Björgu Ástu bæjarstjóra ✨Kæru íbúar,Sumarið er senn á enda og með haustinu færist daglegt líf smám sam...
27/08/2026

✨ Nýr pistill frá Björgu Ástu bæjarstjóra ✨

Kæru íbúar,

Sumarið er senn á enda og með haustinu færist daglegt líf smám saman aftur í sinn vanagang. Skólarnir eru að hefjast, sumarleyfum að ljúka og mörg þeirra verkefna sem unnið hefur verið að í sumar fara nú að taka á sig skýrari mynd.

Einn af hápunktum sumarsins var án efa 30 ára afmæli Fjölskyldudaga. Veðrið lék við okkur, dagskráin var glæsileg og bærinn iðaði af lífi.

Fjölskyldudagar verða þó ekki til af sjálfu sér. Fjöldi fólks leggur hönd á plóg, bæði við undirbúning og framkvæmd, og ég vil þakka öllum sem lögðu sitt af mörkum, starfsfólki sveitarfélagsins, félagasamtökum, fyrirtækjum, sjálfboðaliðum og öllum þeim sem mættu og tóku þátt. Þið gerðuð 30 ára afmælið einstaklega eftirminnilegt og gáfuð okkur gott tilefni til að hlakka strax til næstu hátíðar að ári.

Á Fjölskyldudögum gafst okkur líka tækifæri til að fagna góðum árangri unga fólksins okkar. Veittar voru viðurkenningar fyrir góðan árangur í námi og afreksfólk sveitarfélagsins heiðrað fyrir framúrskarandi árangur. Þar á meðal eru fjórir heimsmeistarar í dansi, hvorki meira né minna! Það var virkilega gaman að fá að fagna þessu unga fólki og þeim metnaði og dugnaði sem liggur að baki árangrinum.

Það er líka mikilvægt að unga fólkið okkar fái ekki aðeins tækifæri til að skara fram úr, heldur einnig til að hafa áhrif á samfélagið sitt. Nú leitum við að áhugasömu ungu fólki til þátttöku í Ungmennaráði sveitarfélagsins, þar sem sjónarmið ungmenna fá að heyrast og þau geta haft áhrif á mál sem þau varða.

🔹Börnin okkar og skólastarfið🔹

Nú í upphafi nýs skólaárs eru tvær jákvæðar breytingar sem mig langar sérstaklega að draga fram.

Í fyrsta sinn býður sveitarfélagið nemendum grunnskólans upp á gjaldfrjáls námsgögn. Það er jákvæð breyting sem léttir undir með fjölskyldum og stuðlar að auknu jafnræði barna.

Þá er starfsemi frístundaheimilisins færð niður í skólann. Með því er ætlunin að búa betur um starfsemina, bæta aðstöðu barna og starfsfólks og skapa betri samfellu í skóladegi barnanna.

Samhliða þessu hefur mikil vinna farið í leikskólamál. Unnið er að stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla og að framkvæmdum loknum verður leikskólinn s*x deilda leikskóli. Undirbúningur útboðs stendur yfir en verkefnið hefur stækkað frá upphaflegum áformum og því þarf framkvæmdin að fara í útboð.

Það mun tefja verklok frá því sem áður var gert ráð fyrir og nú er stefnt að því að framkvæmdum ljúki í upphafi nýs árs. Það er seinna en við vildum og það eru vonbrigði. En við ætlum ekki að bíða aðgerðarlaus eftir að framkvæmdum ljúki.

Til að bregðast við stöðunni hefur sveitarfélagið samþykkt fimm liða aðgerðaráætlun til stuðnings barnafjölskyldum, meðal annars hækkun heimgreiðslna og stuðning við dagforeldrakerfið.

Ég hef jafnframt haft samband við foreldra allra barna 18 mánaða og eldri sem eru á biðlista eftir leikskólaplássi. Það hafa verið góð og mikilvæg samtöl. Ég ber mikinn skilning á þeirri stöðu sem margar fjölskyldur eru í og legg ríka áherslu á að sveitarfélagið leiti allra raunhæfra leiða til að mæta henni eins vel og kostur er.

🔹Góður vinnustaður – góð þjónusta🔹

Eitt af verkefnum sumarsins hefur verið að styrkja stjórnsýslu sveitarfélagsins. Nú hefur verið gengið frá ráðningu Marinós Stefánssonar sem sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs. Marinó kemur til okkar frá Austurlandi og hefur störf í byrjun október. Ég hlakka mikið til samstarfsins og bið ykkur um að taka vel á móti honum.

Við höfum líka verið að horfa inn á við. Bæjarráð samþykkti nýverið gæða- og umbótaáætlunina „Sveitarfélagið Vogar – góður vinnustaður, góð þjónusta“. Sveitarfélagið er stærsti vinnustaðurinn í Vogum og um leið fyrst og fremst í þjónustu við íbúa og fyrirtæki. Við berum því ríka ábyrgð, bæði sem vinnuveitandi og þjónustuaðili. Margt er vel gert og á því eigum við að byggja. Gæða- og umbótavinnan snýst um að styrkja stjórnun, mannauð og þjónustu og vinna markvisst að því sem gera má betur.

Sama krafa á við um innviðina okkar. Vatnsgæðin reyndu aðeins á okkur í sumar þegar kólígerlar greindust í sýnum úr dreifikerfi neysluvatnsins. Um leið og niðurstöðurnar lágu fyrir var sýnataka aukin og fylgst sérstaklega með stöðunni í samstarfi við HS Veitur og Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja. Síðari sýni voru innan viðmiðunarmarka og staðan er nú eðlileg.

Þetta var minniháttar frávik en ágæt áminning. Grunninnviðir eins og vatnsveita, fráveita og samgöngur eiga einfaldlega að virka og við þurfum að huga að ástandi þeirra og áfallaþoli til langs tíma.

🔹Tækifæri til uppbyggingar🔹

Í haust verður umræða um uppbyggingu og atvinnumál fyrirferðamikil. Ég finn fyrir auknum áhuga á uppbyggingu í sveitarfélaginu og til okkar leitar fólk með hugmyndir að nýrri starfsemi, þjónustu og uppbyggingu. Það eru góð tíðindi og þannig viljum við hafa það.

Ég vil að þeir sem sjá tækifæri í Sveitarfélaginu Vogum finni að hér sé tekið vel á móti góðum hugmyndum. Við eigum að veita skýra og skilvirka þjónustu og vera tilbúin að hlaupa hratt þegar þess þarf.

Eitt af stærri verkefnum haustsins verður að hefja vinnu við heildarskipulag hafnarsvæðisins. Þar eru að mínu mati vannýtt tækifæri og nú er rétti tíminn til að hefja samtalið um hvernig við viljum sjá svæðið þróast. Sú sýn verður best mótuð í góðu samtali.

🔹Að lokum🔹

Nú um helgina göngum við til þjóðaratkvæðagreiðslu um stórt og mikilvægt mál. Umræðan hefur sett svip sinn á sumarið og ekki síst síðustu vikur og daga. Skoðanir eru sterkar og það er í góðu lagi.

Við eigum að ræða málin, færa rök fyrir afstöðu okkar og að sjálfsögðu nýta kosningaréttinn. En mig langar líka að hvetja okkur öll til að huga að því hvernig við tölum hvert við annað. Við getum verið innilega ósammála og samt sýnt hvert öðru virðingu og skilning.

Við getum metið leiðirnar ólíkt en samt átt það sameiginlegt að vilja landinu okkar, samfélaginu og fjölskyldum vel. Rökræðum af krafti og stöndum með okkar sannfæringu. En virðingin fyrir hvert öðru má ekki verða fyrsta fórnarlamb umræðunnar.

Pössum upp á hvert annað.

Eigið góða síðustu sumardaga og farsælt upphaf haustsins.

Kær kveðja,
Björg Ásta Þórðardóttir
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga

Sumarið er senn á enda og með haustinu færist daglegt líf smám saman aftur í sinn vanagang. Skólarnir eru að hefjast, sumarleyfum að ljúka og mörg þeirra v

Marinó Stefánsson ráðinn sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðsBæjarráð Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum ...
26/08/2026

Marinó Stefánsson ráðinn sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum 25. ágúst ráðningu Marinós Stefánssonar í starf sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs. Marinó mun hefja störf hjá sveitarfélaginu 1. október nk.

Marinó kemur til Sveitarfélagsins Voga með víðtæka reynslu af stjórnun, framkvæmdum og sveitarstjórnarmálum. Hann starfar nú sem svæðisstjóri Austurlands hjá Kubbi ehf. en starfaði áður sem verkefnastjóri hjá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum. Á árunum 2014–2023 starfaði hann hjá Fjarðabyggð, þar af um árabil sem sviðsstjóri framkvæmdasviðs.

Marinó er arkitekt með M.Sc.-gráðu í sjálfbærri borgarhönnun frá Háskólanum í Lundi, auk þess að vera byggingafræðingur og húsasmíðameistari. Hann sameinar því reynslu af stjórnun og opinberri stjórnsýslu við sterka þekkingu á framkvæmdum, skipulagi og uppbyggingu.

„Það eru einstaklega spennandi tímar framundan í Sveitarfélaginu Vogum. Sveitarfélagið er í örum vexti og framundan eru stór verkefni í uppbyggingu innviða, skipulagsmálum og þróun samfélagsins. Við viljum sækja fram af krafti og ég tel að reynsla Marinós, þekking og breiður bakgrunnur falli einstaklega vel að þeim verkefnum sem bíða okkar. Ég hlakka mikið til samstarfsins,“ segir Björg Ásta Þórðardóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga.

Með ráðningu Marinós bætist öflugur liðsmaður í hópinn á spennandi tímamótum hjá sveitarfélaginu. Sveitarfélagið Vogar býður hann hjartanlega velkominn til starfa og hlakkar til samstarfsins framundan.

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum 25. ágúst ráðningu Marinós Stefánssonar í starf sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs. Marinó mun

Ath! Tilkynning frá HS Veitum ⬇️
25/08/2026

Ath! Tilkynning frá HS Veitum ⬇️

Kæru viðskiptavinir á Suðurnesjum,

Uppfært. kl. 05:35

👉Rafmagn er komið á Grindavík og sjá ljósavélar Landsnets nú um raforkuframleiðslu fyrir dreifikerfi HS Veitna í Grindavík.

Uppært kl. 03:34

👉Rafmagn fór aftur af Grindavík og unnið er að því að tengja ljósavélar Landsnets við dreifikerfi HS Veitna í Grindavík.

Upfært kl. 02:43

👉 Komið er rafmagn aftur á Grindavík frá Svartsengi.

Uppfært kl. 00.40

👉 Búið var að koma rafmagni á Grindavík aftur en rétt í þessu kom aftur upp bilun hjá Landsnet í Svartsengi og því rafmagnslaust í Grindavik sem stendur.

Bendum við á að fylgjast með tilkynningum á miðlum hjá Landsnet varðandi stöðuuppfærslur þessu tengdu.

👉 Dælustöð fyrir heitt vatn á Suðurnesjum sló út vegna þessa og varð í kjölfarið heitavatns laust í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og í Vogum. Búið er að bregðast við því og búist við að heitt vatn fari aftur að berast innan skamms.

Uppfært kl. 18

👉það varð aftur útsláttur á dælustöð fyrir heita vatnið á fitjum og varð heitavatns laust á öllum Suðurnesjunum í kjölfarið. Búið er að bregðast við því og bindum við vonir við að allir fái heitt vatn aftur innan skamms. Þetta á við um Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Voga.

👉Í Grindavíkurbær - Góður Bær er bæði rafmagnslaust og heitavatns laust sem stendur. Unnið er að því í góðu samstarfi með Landsnet og HS Orka að bregðast við því og verður þessi póstur uppfærður þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.

❗️📣

Við viljum vekja athygli á eftirfarandi tilkynningu frá Landsnet um bilun í svartsengi.

Vegna þessa er rafmagnslaust hjá öllum okkar viðskiptavinum í Grindavíkurbær - Góður Bær og um stund varð heitavatnslaust á Suðurnesjum þar sem dælustöð fyrir heita vatnið á fitjum sló út.

Búið er að bregðast við því og búist við að þrýstingur verði orðinn eðlilegur innan skamms í hitaveitunni. Um er að ræða heitt vatn fyrir Reykjanesbær, Suðurnesjabær og Sveitarfélagið Vogar.

🗳️ Þjóðaratkvæðagreiðsla í Sveitarfélaginu Vogum 29. ágúst 2026⏱️ Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00📍 Kosið v...
25/08/2026

🗳️ Þjóðaratkvæðagreiðsla í Sveitarfélaginu Vogum 29. ágúst 2026

⏱️ Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00

📍 Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, Tjarnargötu 2, gengið inn frá leikvelli

Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Voga fram að kjördegi.

Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.

🔹Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00. Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, Tjarnargötu 2

🔹Laust starf tómstundaleiðbeinanda🔹Félagsmiðstöðin Boran óskar eftir að ráða inn starfsmann í hlutastarf. Starfið hentar...
24/08/2026

🔹Laust starf tómstundaleiðbeinanda🔹

Félagsmiðstöðin Boran óskar eftir að ráða inn starfsmann í hlutastarf. Starfið hentar vel fyrir skólafólk, eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu, vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september.

Félagsmiðstöðin Boran býður börnum og unglingum í 5. - 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Boran er vettvangur fyrir opið félagsstarf, klúbbastarf, skipulagða dagskrá og ýmiskonar viðburði sem starfsfólk framkvæmir með ungmennunum.

Helstu verkefni og ábyrgð:
🔹Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
🔹Samskipti og samvinna við börn og unglinga
🔹Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
🔹Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga
🔹Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:
🔹Reynsla af starfi með börnum og unglingum
🔹Stundvísi og skipulagshæfni, áreiðanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
🔹Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt ETM sjálfsmatsramma (coe.int)
🔹Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veitir Kamilla Huld Jónsdóttir, forstöðukona félagsmiðstöðvarinnar Borunnar í síma 864-8644 eða í gegnum netfangið [email protected]

📅Umsóknarfrestur er til og með 26. ágúst 2026

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Umsóknir skulu berast á netfangið [email protected]

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélagi Suðurnesja.

https://www.vogar.is/is/stjornsysla/vogar/frettir/laust-hlutastarf-tomstundaleidbeinanda-i-felagsmidstodinni-borunni

Félagsmiðstöðin Boran óskar eftir að ráða inn starfsmann í hlutastarf. Starfið hentar vel fyrir skólafólk, eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu,

Address

Iðndalur 2
Vogar
190

Opening Hours

Monday 08:00 - 15:30
Tuesday 08:00 - 15:30
Wednesday 08:00 - 15:30
Thursday 08:00 - 15:30
Friday 08:00 - 12:30

Telephone

4406200

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sveitarfélagið Vogar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Sveitarfélagið Vogar:

Shortcuts

Share

Category