Lögreglan í Vestmannaeyjum

Lögreglan í Vestmannaeyjum Lögreglan í Vestmannaeyjum, Faxastígur 42, 900 Vestmannaeyjar. Ef þú þarft aðstoð lögreglu - hringdu þá í 112.

Lögreglan í Vestmannaeyjum auglýsir eftir vitnum.Ekið var á mannlausa bifreið á bifreiðarstæðinu við leikskólann Sóla má...
09/09/2026

Lögreglan í Vestmannaeyjum auglýsir eftir vitnum.

Ekið var á mannlausa bifreið á bifreiðarstæðinu við leikskólann Sóla mánudaginn 31. ágúst eða þriðjudaginn 1. september. Talið er að það hafi gerst um klukkan 08:00 eða á milli 15:00 og 15:30.

Þeir sem telja sig hafa orðið vitni að atvikinu eru hvattir til að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í síma 444-2090 eða senda tölvupóst á netfangið [email protected]

07/09/2026

Mismunandi lönd. Mismunandi einkennisbúningar. Eitt sameiginlegt markmið!

Í dag er alþjóðlegur dagur lögreglu samstarfs og við fögnum öllum lögreglumönnum og öðrum löggæsluaðilum.

From one country to the next, .eu connects us.

Veðurviðvörun 🚨💨Lögreglan í Vestmannaeyjum vill benda á að í kvöld og fram til morguns er búist við talsverðu hvassviðri...
02/09/2026

Veðurviðvörun 🚨💨
Lögreglan í Vestmannaeyjum vill benda á að í kvöld og fram til morguns er búist við talsverðu hvassviðri og snörpum vindhviðum! Við hvetjum bæjarbúa að sýna aðgát og ganga frá lausum munum eins og t.d. trampolínum og garðhúsgögnum.

Með því að tryggja lausamuni getum við dregið úr hættu á tjóni og slysum.

Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum!Tvær afstungur áttu sér stað fyrir utan Skólaveg 13.Fyrri afstungan átti s...
30/08/2026

Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum!

Tvær afstungur áttu sér stað fyrir utan Skólaveg 13.

Fyrri afstungan átti sér stað á milli kl. 16:00–17:50 24. ágúst 2026 og sú seinni á milli kl. 17:12–17:20 28. ágúst 2026

Í bæði skiptin fór hliðarspegill af.

Ef einhver var á svæðinu á þessum tíma og varð vitni að öðru hvoru atvikinu, eða hefur einhverjar upplýsingar má hafa samband við lögreglu!

Kæra pysjubjörgunarfólkNú stendur sem hæst björgun á lundapysjum og eru margir kappsamir við þá iðju og biðlum því til  ...
25/08/2026

Kæra pysjubjörgunarfólk

Nú stendur sem hæst björgun á lundapysjum og eru margir kappsamir við þá iðju og biðlum því til ykkur að fara að öllu með gát. Viljum þó sérstaklega vekja athygli ykkar á sleppisvæðinu við Ofanleitishamar en þangað leggur leið sína fjöldinn allur af fólki til þess að sleppa pysjum. Höfum fengið ábendingu að staðið sé fyrir utan hlaðna vegginn og litlu hafi mátt muna í a.m.k. tveimur tilfellum að illa færi. Þar hafi verið á ferð börn sem hafi misst frá sér pysju og reynt að ná henni aftur en verið komin í hættu þar sem þau voru nálægt hárri bjargsbrúninni. Viljum við benda björgunarfólki á að standa fyrir aftan vegginn þegar sleppt er því pysjubjörgun skapar skemmtilegar og góðar minningar fyrir fjölskylduna og forsenda þess er að allir komi heilir heim.

11/08/2026

VITNI ÓSKAST

Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum að líkamsárás er átti sér stað á Brekastíg um kl. 19:30, laugardaginn 1. ágúst s.l. Þar var brotaþoli sleginn hnefahöggi í höfuðið af óþekktum aðila sem svo fór í burtu. Brotaþoli var fluttur af vettvangi í sjúkrabifreið.

Þau sem urðu vitni að líkamsárásinni eða hafa einhverjar upplýsingar um hana eru beðin um að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í síma 444 2090 eða senda tölvupóst á netfangið [email protected].

🎆Óskilamunir frá Þjóðhátíð 2026!🎆Opnunartími á lögreglustöðinni er á milli 09:00-15:00 alla virka dagaAllir óskilamunir ...
06/08/2026

🎆Óskilamunir frá Þjóðhátíð 2026!🎆

Opnunartími á lögreglustöðinni er á milli 09:00-15:00 alla virka daga

Allir óskilamunir sem eru í vörslu lögreglu eru á myndum hér fyrir neðan.

Sími: 444-2090

03/08/2026

Maðurinn sem leitað var að er fundinn. Þökkum veitta aðstoð

Lögreglan í Vestmannaeyjum lýsir eftir Hauki Haukssyni en ekkert hefur sést til ferða hans síðan 07:00 í morgun.Haukur e...
03/08/2026

Lögreglan í Vestmannaeyjum lýsir eftir Hauki Haukssyni en ekkert hefur sést til ferða hans síðan 07:00 í morgun.

Haukur er grannvaxinn 183 sm. á hæð og var íklæddur ljósdrapplituðum buxum, ljósri hettupeysu og svörtum stuttum jakka yfir. Hann hafði meðferðis lítinn svartan bakpoka.

Þeir sem hafa orðið hans varir eru beðnir um setja sig í samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í gegnum 112.

Address

Faxastígur 42
Vestmannaeyjar
900

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lögreglan í Vestmannaeyjum posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Lögreglan í Vestmannaeyjum:

Shortcuts

Share