12/06/2026
Miðvikudaginn 3. júní síðastliðinn fór fram fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar Vestmannaeyja.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir boðaði til fundar þar sem hún er sá fulltrúi sem á að baki lengstu setu í bæjarstjórn en hún hefur setið í bæjarstjórn Vestmannaeyja frá byrjun árs 2015 og hefur því sitt fjórða kjörtímabil sem bæjarfulltrúi. Hildur Sólveig var á fundinum kjörin forseti bæjarstjórnar og Eyþór Harðarson varaforseti.
Á fundinum var ýmislegt á dagskrá en þar bar hæst skipan í ráð og nefndir og ráðning bæjarstjóra.
Eyþór Harðarson var kjörinn formaður bæjarráðs og með honum sitja í bæjarráði Trausti Hjaltason varaformaður og Jón Þór Guðjónsson frá Miðflokki. Arndís María Kjartansdóttir frá Eyjalista situr fundi bæjarráðs sem áheyrnarfulltrúi.
Aníta Jóhannsdóttir var kjörin formaður fræðsluráðs, Kjartan Vídó Ólafsson formaður fjölskyldu- og tómstundaráðs, Hannes Kristinn Sigurðsson formaður framkvæmda- og hafnarráðs og Hildur Sólveig Sigurðardóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs.
Nýkjörinn formaður bæjarráðs skrifaði svo í lok fundar undir ráðningarsamning við Íris Róbertsdóttir í starf bæjarstjóra sem samþykktur var á fundinum.
Á næstu dögum munum við greina betur frá skipan fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í ráð og nefndir bæjarins.
(Myndir: Óskar Pétur Friðriksson)