Pysjueftirlitið

Pysjueftirlitið Hér birtast allar upplýsingar tengdar pysjueftirlitinu
(1)

Nú eru skráðar 2.503 pysjur inn á lundi.is. Þar af eru 908 pysjur sem hafa verið vigtaðar og er meðalþyngd þeirra 243 gr...
09/09/2025

Nú eru skráðar 2.503 pysjur inn á lundi.is. Þar af eru 908 pysjur sem hafa verið vigtaðar og er meðalþyngd þeirra 243 grömm.
Samkvæmt grafinu sem Rodrigo Martínez Catalan gerði fyrir okkur, þà virðist sem pysjunum sé tekið að fækka nokkuð og virðist sem tímabilinu sé senn að ljúka. Það er þó um að gera að halda áfram að leita að pysjum, því enn eru síðbúnar pysjur á ferðinni.
Við viljum minna pysjubjörgunarfólk á að skrá pysjurnar sínar inn á lundi.is.

Nú hafa 2160 pysjur verið skráðar í Pysjueftirlitið. Það virðist enn vera nóg að pysjum miðað við skráningar síðustu dag...
05/09/2025

Nú hafa 2160 pysjur verið skráðar í Pysjueftirlitið. Það virðist enn vera nóg að pysjum miðað við skráningar síðustu daga. Hér má sjá smá myndasyrpu.

Nú eru komnar 2018 pysjur skráðar á lundi.is. Þar af eru 784 pysjur vigtaðar og er meðalþyngd þeirra aðeins 243 grömm. E...
04/09/2025

Nú eru komnar 2018 pysjur skráðar á lundi.is. Þar af eru 784 pysjur vigtaðar og er meðalþyngd þeirra aðeins 243 grömm.
Ekki er að sjá afgerandi fækkun á pysjum þrátt fyrir að nokkuð sé liðið á tímabilið.
Það var Rodrigo Martínez Catalan sem tók saman tölurnar fyrir okkur.

Nú hafa 1990 pysjur verið skráðar inn á lundi.is. Hér er smá myndasyrpa frá síðustu dögum.
03/09/2025

Nú hafa 1990 pysjur verið skráðar inn á lundi.is. Hér er smá myndasyrpa frá síðustu dögum.

Nú eru skráðar 1108 pysjur inn á lundi.is. Þar af eru 444 vigtaðar og er meðalþyngd þeirra 245 grömm, sem er nokkuð lágt...
27/08/2025

Nú eru skráðar 1108 pysjur inn á lundi.is. Þar af eru 444 vigtaðar og er meðalþyngd þeirra 245 grömm, sem er nokkuð lágt.

Þegar horft er á grafið þá vaknar sú spurning hvort toppnum í fjölda pysja hafi verið náð um síðustu helgi. Mögulega á eftir að skrá einhverjar pysjur og hvetjum við alla að skrá pysjurnar sínar inn á lundi.is.

Það var Rodrigo Catalan sem tók saman tölurnar og gerði grafið fyrir okkur.

Nú hafa 456 pysjur verið skráðar í Pysjueftirlitið. Við hvetjum alla að vera duglega að skrá pysjurnar, hér má sjá smá m...
21/08/2025

Nú hafa 456 pysjur verið skráðar í Pysjueftirlitið. Við hvetjum alla að vera duglega að skrá pysjurnar, hér má sjá smá myndasyrpu frá síðustu dögum sem hafa verið settar inn á lundi.is.

Nú er aldeilis að færast fjör í leikinn hjá pysjubjörgunarfólki. Pysjurnar, sem eru skráðar inn á lundi.is, nálgast nú 3...
19/08/2025

Nú er aldeilis að færast fjör í leikinn hjá pysjubjörgunarfólki.
Pysjurnar, sem eru skráðar inn á lundi.is, nálgast nú 300.
Af þeim hafa 113 verið vigtaðar og er meðalþyngd þeirra 251 gramm, sem er frekar lágt. Oft koma mjög léttar pysjur í upphafi pysjutímans og var það raunin núna. Vonandi hækkar þessi tala þegar fram líður á tímabilið. Lífslíkur pysjanna á hafi úti aukast með meiri þyngd.

Það var Rodrigo Catalan sem tók saman þessar tölur fyrir okkur

Nú hafa 124 pysjur verið skráðar í Pysjueftirlitið. Meðalþyngd þeirra er 253 grömm. Við hvetjum alla að skrá pysjurnar i...
16/08/2025

Nú hafa 124 pysjur verið skráðar í Pysjueftirlitið. Meðalþyngd þeirra er 253 grömm. Við hvetjum alla að skrá pysjurnar inn á vefsíðuna lundi.is. Hér má sjá nokkrar myndir sem okkur hafa borist frá síðustu dögum.

Þessi litli dúnhnoðri fannst á golfvellinum fyrir tveimur dögum.Pysjan er auðvitað bæði of lítil og dúnuð til að vera sl...
01/08/2025

Þessi litli dúnhnoðri fannst á golfvellinum fyrir tveimur dögum.
Pysjan er auðvitað bæði of lítil og dúnuð til að vera sleppt á haf út og verður því í góðu yfirlæti í mannheimum í einhverja daga.
Myndina tók Ingunn Anna Jónsdóttir.

Frést hefur að fyrsta pysjan sé fundin. Skemmtilegur tími framundan og um að gera að hafa augun hjá sér næstu kvöld 🥰Min...
29/07/2025

Frést hefur að fyrsta pysjan sé fundin. Skemmtilegur tími framundan og um að gera að hafa augun hjá sér næstu kvöld 🥰
Minnum á að skrá pysjurnar inn á lundi.is

Lokatölur frá Pysjueftirlitinu.Síðasta pysjan sem var skráð í pysjueftirlitið kom þann 20. september og eru því litlar l...
01/10/2024

Lokatölur frá Pysjueftirlitinu.

Síðasta pysjan sem var skráð í pysjueftirlitið kom þann 20. september og eru því litlar líkur á fleiri pysjum þetta árið.
Samtals voru skráðar pysjur 4238 talsins og er þetta því sjötta stærsta pysjueftirlitið frá því skráning hófst árið 2003.

Alls voru 1487 pysjur vigtaðar og var meðalþyngd þeirra 308 grömm. Þetta er næst hæsta meðalþyngdin, en aðeins árið 2021 var hún hærri, eða 316 grömm. Ef við tökum saman meðalþyngd allra skráðra pysja árin 2003-2023 þá er hún 265 grömm. Þessi tvö ár, 2021 og 2024, standa því uppúr og má segja að þetta sé eðlileg meðalþyngd pysja þegar vel árar hjá lundanum.

Fyrsta pysjan í ár er skráð inn í pysjueftirlitið þann 2. ágúst en sú síðasta þann 20. september eins og áður segir. Pysjutíminn í ár stóð því yfir í u.þ.b. sjö vikur.

Við þökkum öllum sem skráðu pysjurnar sínar, fyrir þàtttökuna í þessu sameiginlega verkefni okkar allra. Með því móti fáum við ómetanlegar upplýsingar.

Eins og endranær var það Rodrigi Martinez Catalan sem tók þesssr tölur saman fyrir okkur og vann gröfin. Bestu þakkir.

Athugið að það er breytt póstfang fyrir þetta verkefni.Þau ykkar sem hafið áhuga à að taka þátt, hafið samband við Luke ...
11/09/2024

Athugið að það er breytt póstfang fyrir þetta verkefni.
Þau ykkar sem hafið áhuga à að taka þátt, hafið samband við Luke Calvey ([email protected]).

Address

Vestmannaeyjar

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Pysjueftirlitið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Pysjueftirlitið:

Share