14/09/2026
🚧 Framkvæmdir við Stykkishólmsveg hófust í lok apríl þegar slitlag var fræst ofan af veginum frá afleggjara á Búðarnesveg og uppúr bænunum. Vegagerðin stendur fyrir framkvæmdinni sem er langt komin.
🪨 Auk þess að breikka veginn er veglínan lítillega færð til á köflum en sökum þess þarf að færa Hannesarstein sem nú stendur við hlið vegarins, við afleggjara að kirkjugarði og Nýrækt. Ný veglína liggur yfir núverandi staðsetningu steinsins og var það niðurstaða Vegagerðarinnar að steinninn yrði að víkja. Gert er ráð fyrir að steinninn verði færður til svo hægt sé að klára vegaframkvæmdir og hann síðar færður á endanlega staðsetningu þegar ný hönnun á göngustíg meðfram veginum liggur fyrir.
🤏 Hannesarsteinn dregur nafn sitt af Hannesi Hannessyni, sem jafnan var kallaður Hannes stutti. Hann var þekktur hagyrðingur um Breiðafjarðabyggðir og víðar.
Framkvæmdir við Stykkishólmsveg hófust í lok apríl þegar slitlag var fræst ofan af veginum frá afleggjara á Búðarnesveg og uppúr bænunum. Vegagerðin stendu