23/05/2026
Eftir stutta, snarpa og viðburðaríka kosningabaráttu hefur síðasta vika að mestu farið í að ná andanum aftur, sofa aðeins, drekka kaffi, fara yfir upplifunina og byrja svo rólega að undirbúa næstu skref.
Við hjá Íbúalistanum erum fyrst og fremst ótrúlega þakklát fyrir stuðninginn, traustið og öll hlýju skilaboðin og símtölin síðustu daga ❤️
Núna tekur við nýr og áhugaverður kafli 😄
Verkefnið núna er að manna nefndir og ráð fyrir komandi kjörtímabil. Við ákváðum snemma að leggja áherslu á að þau sem yrðu kjörnir fulltrúar sem og varafólk yrðu fyrst sett í þau verk, ásamt fólki af listanum okkar, áður en leitað er lengra út í samfélagið.
Okkur finnst mikilvægt að þau sem taka sæti í nefndum og ráðum hafi tíma og svigrúm til að kynna sér málin vel, fylgja þeim eftir og byggja upp góða yfirsýn yfir málefni samfélagsins, frekar en að vera of dreifð. Við viljum leggja áherslu á skýra ábyrgð, fagleg vinnubrögð og vandaða stjórnsýslu, því það skiptir máli fyrir gæði ákvarðana og traust á sveitarstjórninni.
En við vitum líka að þörf er á að leita út í samfélagið eftir fólki sem hefur áhuga á að taka þátt með okkur og leggja sitt af mörkum í nefndar- og ráðsstörfum. Fjölbreytt reynsla og ólíkar raddir skipta máli.
Þau sem hafa áhuga eru hvött til að hafa samband við nýkjörna bæjarfulltrúa okkar eða senda okkur skilaboð 😊
Við erum spennt að halda áfram að vinna að þeim málefnum sem við töluðum fyrir í kosningabaráttunni:
gagnsærri stjórnsýslu, ábyrgari fjármálastjórn, faglegri vinnubrögðum, betri nýtingu innviða og samfélagi þar sem tengsl, þátttaka og lífsgæði fá meira vægi.
Nú þegar búið er að róast hjá okkur fannst okkur líka kominn tími til að deila nokkrum óbirtum myndum frá síðustu vikum — frá spilakvöldi, kosningakaffi, kosningavöku og allri þessari ótrúlegu vegferð sem við fórum saman 💙
Takk kærlega fyrir okkur ❤️