Skógræktarfélag Stykkishólms

Skógræktarfélag Stykkishólms Skógræktarfélag Stykkishólms var stofnað árið 1947 og eru félagsmenn um 70. Félagið ræktar Tvo reiti; Grensás, Stykkishólmi og Sauraskóg, Helgafellssveit

10/09/2026

Myrkraverk eða göngustígagerð?

Í vor óskaði Skógræktarfélag Stykkishólms eftir samstarfi við Orkan um að fegra svæðið í kringum starfstöð fyrirtækisins...
17/07/2026

Í vor óskaði Skógræktarfélag Stykkishólms eftir samstarfi við Orkan um að fegra svæðið í kringum starfstöð fyrirtækisins í Stykkishólmi.

Er skemmst frá því að segja að Orkan tók afar vel í erindið og styrkti verkefnið með kaupum og gróðursetningu á tíu trjám, auk sérmálaðs garðbekkjar í Orkubleikum🙏.

Tveir sérlega orkumiklir félagar Skógræktarfélagsins 💪, þeir Ásmundur Guðmunds og Benedikt Haralds, höfðu veg og vanda af þessu verkefni, gróðursetningunni og frágangi svæðisins. Er verkið allt hið glæsilegasta og okkur öllum til mikils sóma.

Skógræktarfélag Stykkishólms þakkar Orkunni kærlega fyrir ánægjulegt og gjöfult samstarf.

Í gær var útimessa í lundinum okkar í Grensási 🌿🌲. Sóknarpresturinn okkar, Hilda María Sigurðardóttir, leiddi guðsþjónus...
10/07/2026

Í gær var útimessa í lundinum okkar í Grensási 🌿🌲. Sóknarpresturinn okkar, Hilda María Sigurðardóttir, leiddi guðsþjónustuna ✝️ og Kór Stykkishólmskirkju annaðist sönginn af sinni alkunnu alúð.

Rúmlega 60 manns mættu í skóginn og áttu þar saman góða og notalega stund.

Það er vel við hæfi að deila upphafsorðum úr predikun dagsins, en þau áttu einstaklega vel við:

„Það er eitthvað alveg sérstakt við að vera með guðsþjónustu úti í skógi. Hér erum við umvafin því sem Guð skapaði. Við heyrum fuglana syngja, finnum ilminn af jörðinni og sjáum trén sem hafa staðið lengur en mörg okkar. Það minnir okkur á að við erum hluti af stærri sögu en okkar eigin.“

Að messu lokinni sá Skógræktarfélagið um að grilla pylsur og voru þær í boði hjónanna á Narfeyrarstofu. Það var mál manna að dagurinn hefði tekist einstaklega vel og vonandi verður þessi fallega útimessa að árlegri hefð 🙏🌱.

Kæru félagar 🌿Félagsgjaldið var sent út í vikunni og við bjóðum nýja félaga velkomna 😊 Hér fyrir neðan mjá sjá lista yfi...
20/06/2026

Kæru félagar 🌿
Félagsgjaldið var sent út í vikunni og við bjóðum nýja félaga velkomna 😊 Hér fyrir neðan mjá sjá lista yfir fyrirtæki sem veita félagsmönnum afslátt hjá sér og hvernig nálgast má rafræna félagaskírteinið er í fyrstu athugasemd 🌿
Félagsgjöld og styrkir gera okkur kleift að halda skógræktinni skemmtilegri fyrir alla og draumurinn er að eiga útivistarsvæði þar sem allir geta notið sín 😊

Við erum að vinna þessa dagana að klára nýjan göngustíg sem liggur efst á Grensásnum. Gerð hans er meðal annars styrkt a...
11/06/2026

Við erum að vinna þessa dagana að klára nýjan göngustíg sem liggur efst á Grensásnum. Gerð hans er meðal annars styrkt af Landgræðslusjóði.

Hér mundar Jón Jakobsson mini gröfu sem við fengum lánaða frá BB & synir ehf.

Félagsgjöldin eru að fara í innheimtu, vilt þú leggja verkefnum félagsins lið ? Nýtt félagsfólk velkomið 🙏

https://www.skog.is/skraning-i-felog/

Í dag fengum við 5000 tré, þau koma frá Skógræktarfélag Íslands. Þetta eru íslensk tré m.a. fura, birki, reynitré ösp og...
30/05/2026

Í dag fengum við 5000 tré, þau koma frá Skógræktarfélag Íslands. Þetta eru íslensk tré m.a. fura, birki, reynitré ösp og fleira góðgæti. Á mynd er Hlynur Gauti, starfsmaður við afhendingu í Stykkishólmi, Björn Ásgeir formaður og Lydía Rafnsdóttir formaður Skógræktar- og landverndarfélagsins undir Jökli taka á móti trjám fyrir sín félög. 🌱

Þau sem hafa áhuga á að hjálpa til við gróðursetningu í svæði félagsins, endilega hafið samband við formann eða látið vita hér að neðan🌲

Gaman að sjá plönturnar skila sér vel undan vetri 🌱 Myndir af nokkrum teknar á Grensás. Þetta sumar er gert ráð fyrir að...
21/05/2026

Gaman að sjá plönturnar skila sér vel undan vetri 🌱
Myndir af nokkrum teknar á Grensás. Þetta sumar er gert ráð fyrir að gróðursetja 5000 plöntur í svæði félagsins.

Á morgun Sauraskógi, 12-15 bílastæði númer 2 🎄🌲
12/12/2025

Á morgun Sauraskógi, 12-15 bílastæði númer 2 🎄🌲

Jólatré sem nú prýðir þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðar, kemur að þessu sinni úr Sauraskógi, nánar tiltekið úr f...
05/12/2025

Jólatré sem nú prýðir þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðar, kemur að þessu sinni úr Sauraskógi, nánar tiltekið úr furureit sem gróðursettur var árið 1977. En úr þeim reit hefur félagið sótt fjölmörg jólatré.

Address

Stykkishólmur
340

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skógræktarfélag Stykkishólms posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Skógræktarfélag Stykkishólms:

Shortcuts

Share