Slökkvilið Fjallabyggðar

Slökkvilið Fjallabyggðar Slökkvilið Fjallabyggðar er með tvær starfstöðvar, Ólafsfirði og Siglufirði. 1. Slökkviliðsstjóri í dag er Jóhann K.

júlí 2015 voru hundrað ár liðin frá því Slökkvilið Siglufjarðar hóf að standa varðstöðu. Var þess minnst meðal annars með grein á vef Síldarminjasafnis en þar segir;

"Síðan þá hefur ótalinn fjöldi vöskustu manna samfélagsins ætíð verið viðbúinn því að bruna fyrirvaralaust af stað á næsta brunastað hvar eða hvenær sem hann varð eða verður. Menn með þrautþjálfaða viðbragðs- og aðgerðaáætlun um að

veita þá þjónustu sem fæstir vilja þiggja ótilneyddir - og forðast eins og heitan eldinn. Fyrrum, meðan ekki var óalgengt að eldar kviknuðu og grönduðu eigum og lífi manna, var blásið í brunalúðra og hlaupið á stað með frumstæðan tækjabúnað á tréhjólum. Nú er öldin önnur, æ sjaldnar kviknar í og Slökkvilið Fjallabyggðar hefur yfir að ráða margbrotnum og fullkomnum tækjabúnaði." Jóhannsson en á undan honum var Ámundi Gunnarsson slökkviliðsstjóri. Þar áður hafa gengt stöðunni kappar sem margir muna eftir, Kristinn Georgsson, Egill Melsted, Flóvent Jóhannsson, Guðmundur Bíldal, Jón Guðmundsson og Gunnlaugur Þorfinnsson. Gunnlaugur hafði reyndar þann virðulega titil að vera kallaður slöngustjóri.

Á móti rýrum tækjabúnaði á fyrstu árum Slökkviliðs Siglufjarðar var verka- og deildaskipting liðsins mun betur skipulögð en nú gerist. Nærri 55 liðsmönnum var skipað niður í eftirtaldar sjö deildir: björgunarlið, húsrifslið, vatnsslöngulið, stigalið, brunahanalið, lögreglulið og brunaboða. Þeir síðasttöldu höfðu þann mikilvæga starfa að hlaupa á milli húsa með lúðra sína og blása hin liðin sex á vettvang. Slökkvilið Siglufjarðarkaupsstaðar og Slökkvilið Ólafsfjarðarbæjar sameinuðust árið 2007 undir merkjum Slökkviliðs Fjallabyggðar.

Um helgina hefur unglingadeildin SmáDjarfi haldið Landshlutamót unglingadeilda á Ólafsfirði. Í dag aðstoðaði slökkviliði...
13/06/2026

Um helgina hefur unglingadeildin SmáDjarfi haldið Landshlutamót unglingadeilda á Ólafsfirði. Í dag aðstoðaði slökkviliðið deildirnar við að efna til froðubolta og vatnsrennibraut við grunnskólann. Það var mikið fjör og bleyta 🚒

Sjómenn og fjölskyldur - Til hamingju með daginn ⚓️❤️⚓️
07/06/2026

Sjómenn og fjölskyldur - Til hamingju með daginn ⚓️❤️⚓️

Það er áhugavert að skoða þetta 👇
03/06/2026

Það er áhugavert að skoða þetta 👇

Hlutverk Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnunar er að vernda líf og heilsu manna, eignir og umhverfi með því að tryggja faglegan undirbúning mannvirkjagerðar og virkt eftirlit með gæðum, öryggi og heilnæmi. Að stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði og tryggja almennin...

Okkar fólk í þreki 👩‍🚒🚒
01/06/2026

Okkar fólk í þreki 👩‍🚒🚒

Skemmtilegasti tími ársins er runninn upp en það er þegar við útskrifum elsta árgang leikskólans sem aðstoðarmenn slökkv...
27/05/2026

Skemmtilegasti tími ársins er runninn upp en það er þegar við útskrifum elsta árgang leikskólans sem aðstoðarmenn slökkviliðsins. Í allan vetur hafa þau fylgst með brunavörnum í leikskólanum á Ólafsfirði og Siglufirði og séð til þess að þær séu í lagi. Til dæmis að slökkvitæki séu á sínum stað, að eldvarnarteppið sé í eldhúsinu og að brunaviðvörunarkerfið sé í lagi.

Birtum hér áminningu frá kollegum okkar í Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. - Það er mikilvægt að þetta sé gert rétt 🔋...
26/05/2026

Birtum hér áminningu frá kollegum okkar í Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. - Það er mikilvægt að þetta sé gert rétt 🔋🔥🧯

Slökkvilið Fjallabyggðar fékk í dag tilkynningu um mikinn eld utan við hús á Siglufirði. Hafði eldurinn náð að læsa sér ...
21/05/2026

Slökkvilið Fjallabyggðar fékk í dag tilkynningu um mikinn eld utan við hús á Siglufirði. Hafði eldurinn náð að læsa sér í klæðningu, verönd og svalir. Þá höfðu rúður í húsinu gefið undan vegna hita. Mikið viðbragð var sent á staðinn og tóku slökkviliðsmenn frá Siglufirði og Ólafsfirði þátt í aðgerðum. Örugglega tókst að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu elds en töluverðan tíma tók að tryggja að eldur myndi ekki berast áfram með þaki hússins. Enginn var heima í húsinu þegar eldurinn kom upp. Eldsupptök eru til rannsóknar hjá tæknideild lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Mikilvæg skilaboð frá Samgöngustofu 👇
11/05/2026

Mikilvæg skilaboð frá Samgöngustofu 👇

Í dag, 4. maí, er alþjóðlegur dagur slökkviliðsmanna og -kvenna. Við óskum okkar fólki og öllum slökkviliðsmönnum til ha...
04/05/2026

Í dag, 4. maí, er alþjóðlegur dagur slökkviliðsmanna og -kvenna. Við óskum okkar fólki og öllum slökkviliðsmönnum til hamingju með daginn. 🧑‍🚒🚒🧯💦

Address

Snorragata 8
Siglufjörður
580

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Slökkvilið Fjallabyggðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Slökkvilið Fjallabyggðar:

Share