Seltjarnarnesbær

Seltjarnarnesbær Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Seltjarnarnesbær, Government Organization, Austurströnd 5, Seltjarnarnes.

Virkniþing eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi 2026Fyrir helgina fór fram vel heppnað Virkniþing eldri bæjarbúa í safnaðarhe...
08/09/2026

Virkniþing eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi 2026
Fyrir helgina fór fram vel heppnað Virkniþing eldri bæjarbúa í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju. Markmið þingsins var að kynna allt það tómstundastarf og þjónustu sem er í boði fyrir eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi í vetur. Virkniþingið er liður í Íþróttaviku Evrópu sem er haldin ár hvert víðsvegar um landið. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn vaxandi hreyfingarleysi meðal almennings.

Gestir fengu kynningu frá fjölmörgum félagasamtökum og þjónustuaðilum sem bjóða upp á félagsstarf eða þjónustu fyrir eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi. Fulltrúar frá þessum aðilum voru á staðnum, veittu upplýsingar um starfsemi sína og svöruðu spurningum gesta.

Meðal þeirra sem kynntu starfsemi sína voru Nesklúbburinn, sem bauð jafnframt upp á skemmtilega golfþraut fyrir gesti, Frísk í Gróttu sem kynnti heilsueflandi starf og stýrði léttum æfingum, félagsstarfið á Skólabraut, Slysavarnarfélagið, Seltjarnarneskirkja, Bókasafn Seltjarnarness og Félag eldri borgara á Seltjarnarnesi (FEBSEL).

Mikil og góð stemning ríkti á þinginu og nutu gestir þess að eiga samtöl við fulltrúa þátttakenda, fræðast um fjölbreytt tækifæri til þátttöku og hitta aðra bæjarbúa. Boðið var upp á kaffiveitingar og gott var að eiga stund saman þar sem áhersla var lögð á virkni og vellíðan.

Að loknum kynningum tók Helgi Hannesar, píanóleikari, við dagskránni og stýrði samsöng sem vakti mikla ánægju meðal gesta. Samsöngurinn skapaði skemmtilega stemningu og var fallegur endapunktur á vel heppnuðum degi.

Skipuleggjendur þakka öllum þeim sem komu að Virkniþinginu, bæði þátttakendum og gestum, fyrir framlag sitt. Virkniþingið hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir eldri bæjarbúa til að kynnast því fjölbreytta starfi sem í boði er á Seltjarnarnesi og er flottur vettvangur fyrir Seltirninga til að hittast og eiga góða stund saman í byrjun haustsins. Markmiðið þingsins er að efla virkni, heilsu og lífsgæði eldri íbúa bæjarins.

Athugið! Í dag mánudaginn 7. sept. kl. 13-16 verður tímabundin lokun akbrautar, gönguleiðar og strætóstoppistöðvar á Nes...
07/09/2026

Athugið! Í dag mánudaginn 7. sept. kl. 13-16 verður tímabundin lokun akbrautar, gönguleiðar og strætóstoppistöðvar á Nesvegi til móts við Eiðistorg vegna framkvæmda við nýjan leikskóla.

🔸Gönguleið og akbraut til vesturs innan rauðu línunnar lokuð umferð í 3 klukkustundir eða á meðan framkvæmdir standa yfir. Umferð um Nesveg til austurs raskast ekki og mun ganga sinn vanagang.

🔸Strætóstoppistöðin andspænis Eiðistorgi fellur tímabundið niður á meðan á lokuninni stendur.

Vinsamlegast fylgið merkingum á staðnum og foreldrar eru hvattir að upplýsa börn sín.

Beðist er velvirðingar á ónæðinu.

Það var heldur betur margt um manninn á Fjölskyldudeginum í Gróttu síðastliðinn laugardag enda blíðskaparveður og góð st...
01/09/2026

Það var heldur betur margt um manninn á Fjölskyldudeginum í Gróttu síðastliðinn laugardag enda blíðskaparveður og góð stemning. Vitinn og fjaran með sitt aðdráttarafl sem og fjölbreytt dagskrá sem gestir kunnu svo sannarlega vel að meta eins og meðfylgjandi myndir sýna. TAKK FYRIR KOMUNA Í GRÓTTU 🌞

29/08/2026
Vekjum athygli á Góðgerðarleik Gróttu laugardaginn 29. ágúst kl. 14:00 á Vivaldivellinum. Hvetjum bæjarbúa til að styðja...
28/08/2026

Vekjum athygli á Góðgerðarleik Gróttu laugardaginn 29. ágúst kl. 14:00 á Vivaldivellinum. Hvetjum bæjarbúa til að styðja Gróttustelpurnar í leik á móti Selfoss og styrkja gott málefni í leiðinni. Með jafntefli getur Grótta tryggt sér sæti í bestu deild kvenna á næsta ári í fyrsta sinn í sögu félagsins og með sigri tryggja þær sér Lengjudeildartitilinn. Áfram Grótta 💙💛

Vakin er athygli á Virkniþingi eldri bæjarbúa sem haldin verður í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn 2. s...
27/08/2026

Vakin er athygli á Virkniþingi eldri bæjarbúa sem haldin verður í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn 2. september kl. 14-16.

VAKIN ER ATHYGLI á tímabundinni lokun gönguleiðar við Nesveg í dag fimmtudag 27. ágúst og á morgun föstudag 28. ágúst ve...
27/08/2026

VAKIN ER ATHYGLI á tímabundinni lokun gönguleiðar við Nesveg í dag fimmtudag 27. ágúst og á morgun föstudag 28. ágúst vegna framkvæmda við nýjan leikskóla. Strætóstoppistöðin við Nesveg til móts við Eiðistorg er einnig færð þessa 2 daga.
Af þessum sökum verður:

🔸Gönguleið innan rauðu línunnar er lokuð fyrir gangandi umferð á meðan framkvæmdir standa yfir.

🔸Strætóstoppistöðin færist um 50 m að þeim stað sem græna örin sýnir á myndinni hér að neðan.

Vinsamlegast fylgið merkingum á staðnum og foreldrar beðnir að upplýsa börn sín um þessar tímabundnu breytingar og benda á örugga gönguleiðir.

Beðist er velvirðingar á ónæðinu.

24/08/2026

FJÖLSKYLDUDAGUR Í GRÓTTU LAUGARDAG 29. ÁGÚST KL. 12:00-14:00
🔸Gróttuviti opinn - einu sinni á ári opnar Seltjarnarnesbær Gróttuvita þar sem njóta má óviðjafnanlegs útsýnis.
🔸Grillaðar pylsur, rjúkandi vöfflukaffi og djús selt til styrktar góðu málefni á vegum Soroptimistaklúbbs Seltjarnarness.
🔸Margrét Arnardóttir leikur ljúfa tónlist á harmonikkuna.
🔸Marglyttuföndur í Albertsbúð.
🔸Lífríkið rannsakað - Þorkell Heiðarsson líffræðingur aðstoðar gesti við að rannsaka og greina lífríkið sem finna má í fjörunni við Gróttu. Tilvalið því að taka með skóflu og fötu til að safna kuðungum, skeljum, kröbbum og öðrum dýrgripum.
🔸Sirkussýningin - Mikilvæg mistök! Daníel sirkuslistamaður sýnir sirkusatriði með djöggli, brúðuleik og gríni auk þess sem í boði verður að prufa alls konar sirkusáhöld.
🔸Húllafjör Húlladúllunnar - Skemmtileg húllasýning og svo geta allir leikið og lært flott húllatrix.
🔸Kríur - myndlistarsýning og smiðja í Vitavarðarhúsinu. Svanhvít Valgeirsdóttir myndlistarkona sýnir m.a. kríumálverk sem hún málar með japönsku bleki og olíulitum.
🔸Kríusmiðja – málaðu þína eigin kríu – kannski vill hún vera í stígvélum!

Sjá líka FB viðburð: https://fb.me/e/aauRmqub8

Velkomin á fjölskyldudaginn í Gróttu 🙂

Government organisation

Address

Austurströnd 5
Seltjarnarnes
170

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 13:00

Telephone

+3545959100

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Seltjarnarnesbær posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Seltjarnarnesbær:

Shortcuts

Share