Þjóðgarðurinn á Þingvöllum / Thingvellir National Park

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum / Thingvellir National Park Þingvellir Þjóðgarður - [email protected]. The law was past due to the parliaments 1000 year anniversary as the Alþingi had been established 930.

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum var stofnaður með lögum árið 1930 í tilefni þúsund ára afmæli Alþingis. Í lögunum segir að Þingvellir við Öxará skuli vera friðlýstur helgistaður allra Íslendinga, hið friðlýsta land skuli ævinlega vera eign íslensku þjóðarinnar undir vernd Alþingis og landið megi aldrei selja eða veðsetja. Þjóðgarðurinn var upphaflega 50 ferkílómetrar að stærð en hefur í tvígang verið stækkaður með lögum og þekur nú 250 km² svæði.
/
Thingvellir National Park was designated by a special law on the protection of the area, passed by the Alþing on 7th May, 1928. According to the law text, Þingvellir by the river Öxará and the surrounding area shall, from the beginning of 1930, be "a protected national shrine of all Icelanders". Thingvellir National park is the oldest national park in Iceland and became a Unesco World Heritage Site 2004. The national park was at first 50 km² but covers today over 250 km².

Þingvellir hafa ratað í fréttirnar vegna olíuleka og annara mála síðustu daga. Fréttamaður RÚV hefur nýtt tækifærið og n...
14/09/2026

Þingvellir hafa ratað í fréttirnar vegna olíuleka og annara mála síðustu daga.

Fréttamaður RÚV hefur nýtt tækifærið og náð flottu haustlitamyndbandi frá Þingvöllum

Þannig að ef einhver er að velta því fyrir sér að þá eru haustlitirnir sem sagt komnir.

Það var mikil haustlitadýrð við Þingvallavatn í gær þegar myndatökumaður Ríkissjónvarpsins var þar á ferð og myndaði meðfylgjandi myndskeið.

Norsk under / English belowÞjóðgarðurinn á Þingvöllum minnist Haraldar V. Noregskonungs sem lést í nótt. Haraldur Noregs...
28/08/2026

Norsk under / English below

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum minnist Haraldar V. Noregskonungs sem lést í nótt. Haraldur Noregskonungur kom fyrst í opinbera heimsókn ásamt eiginkonu sinni Sonju Noregsdrottningu í september 1992.

Hjónin gengu niður Almannagjá og heim að Þingvallakirkju í fylgd forseta Íslands frú Vigdísar Finnbogadóttur og Davíð Oddssonar forsætisráðherra, þjóðgarðsverði og fylgdarliði.

Vegna fráfalls Haraldar er flaggað í hálfa stöng í þjóðgarðinum á Þingvöllum að beiðni forsætisráðuneytisins.

Ljósmyndir tók Gunnar G. Vigfússon

---

Þingvellir nasjonalpark minnes Norges konge Harald V, som gikk bort i natt. Harald kom på sitt første offisielle besøk som konge sammen med sin hustru, dronning Sonja av Norge, i september 1992. Kongeparet gikk fra utsiktspunktet ved Hakið, ned gjennom Almannagjá og videre til Þingvallakirkja. Den offisielle mottakelsen ble gitt av fru Vigdís Finnbogadóttir og Davíð Oddsson.
Som følge av Haralds bortgang er flaggene heist på halv stang i Þingvellir nasjonalpark etter anmodning fra Statsministerens kontor.

Fotografiene er tatt av Gunnar G. Vigfússon.

---

Þingvellir National Park commemorates King Harald V of Norway, who passed away during the night. Harald made his first official visit as king in September 1992, together with his wife, Queen Sonja of Norway.

The royal couple walked from Hakið viewpoint, down through Almannagjá gorge, and on to church Þingvallakirkja. The official reception was hosted by Ms. Vigdís Finnbogadóttir and Davíð Oddsson.

Following Harald’s passing, flags are being flown at half-mast in Þingvellir National Park at the request of the Prime Minister’s Office.

Photographs were taken by Gunnar G. Vigfússon.

English below...Við lokum gestastofu á Haki og upplýsingaborði á Leirum klukkan 16.00 á morgun. Starfsfólk þjóðgarðsins ...
27/08/2026

English below...

Við lokum gestastofu á Haki og upplýsingaborði á Leirum klukkan 16.00 á morgun. Starfsfólk þjóðgarðsins ætlar að gera sér glaðan da stundarlangt á föstudaginn.

Þjóðgarðurinn er vitaskuld áfram opinn öllum.

---

We will close our Visitor centre at Hakið and information table at the campsite at 16:00 Firday 28th. We are sorry for the inconvenience. Our staff will enjoy couple of hours celebrating end of summer.

Flott ungmenni frá verðandi 9. flokki körfuboltadeildar Fylkis fóru í áheitagöngu þar sem sigdalurinn á Þingvöllum var þ...
26/08/2026

Flott ungmenni frá verðandi 9. flokki körfuboltadeildar Fylkis fóru í áheitagöngu þar sem sigdalurinn á Þingvöllum var þveraður. Gengin var 17 km leið frá Gjábakka vestur að Ármannsfelli og þaðan suður að gestastofunni á Haki.

Í gestastofunni fengu ungmennin og aðstandendur þeirra að nýta fjölnotasalinn Snorrabúð. Hægt var að kasta mæðinni og fá sér hressingu.

Það er ávallt ánægjulegt þegar þjóðgarðurinn er nýttur til útivistar og heislueflingar. Starfsfólk þjóðgarðsins er tilbúið til aðstoða hópa eftir fremsta megni í móttöku.

Til ferðaþjónustuaðila vegna tónleikahalds 20. júní Best er að skoða upplýsingar á heimasíðu þjóðgarðsinshttps://www.thi...
18/06/2026

Til ferðaþjónustuaðila vegna tónleikahalds 20. júní

Best er að skoða upplýsingar á heimasíðu þjóðgarðsins
https://www.thingvellir.is/fraedsla/frettir/almennar-frettir/umferdarstyring/

Talsverður erill verður í aðdraganda tónleikanna sem getur haft áhrif á nýtingu bílastæða og göngustíga. Reynt er að takmarka slíkt eins og hægt er.

Föstudagurinn 19. júní stýring og takmarkanir.

Bílastæðið við Kastala (P2) og Fossplan verður lokað þar sem verið að er koma upp búnaði vegna tónleikanna þann 20. júní.

Ferðaþjónustuaðilar geta sleppt gestum sínum út við P1 og beðið þar eða leiðsagt gestum sínum að Flosaplani / Peningagjá (P4) og sótt þá þangað.

Almennir bílar munu geta lagt í Vallarkróki. Mælst er þó til með að nýta bílastæðið við Hak (P1) sem mest.

Laugardagurinn 20. júní - Stýringar á umferð

Fyrirséð er að verulegur fjöldi gesta muni sækja svæðið heim þennan dag til að upplifa tónlistarviðburðinn Bergmál. Gera má ráð fyrir allt að 20.000 manns muni sækja tónlistarviðburðinn yfir daginn. Þá munu þúsundir ferðamanna sækja Þingvelli eins og endranær. Búast má við miklu álagi og umferðarþunga allan daginn á Þingvallavegi (36).

Bílastæðið á Haki verður opið fyrir almennri umferð til 15:00. Gönguleiðir um Almannagjá verða opnar frá útsýnispalli við Hakið niður Almannagjá að Lögbergi/Drekkingarhyl. Þaðan verður hægt að ganga til austurs að Peningagjá/Flosagjá. Hægt verður að ganga að Valhöll (P5) og að Þingvallakirkju.

Ferðaþjónustuaðilar með farþega geta ýmist látið gesti sína út á Haki og beðið eftir þeim þar eða ef vilji er til sótt við Flosagjá / Peningagjá (P4). Frá bílastæðinu þar verður einstefna austur úr þjóðgarðinum á vegi 361 meðfram vatni. Athugið að einungis rútuumferð er heimil á vegi 361.

Umferð um veg 361 lokar eftir klukkan 15:00 fyrir alla umferð aðra en skutlþjónustu tónleikahaldara.

Eftirfarandi bílastæði og aðgengi verða lokuð nema fyrir viðburðarhaldara.

- Kastalar P2
- Langistígur P3
- Valhöll P5

Eftirfarandi gönguleiðir verða lokaðar fyrir aðra en tónleikagesti.

- Almannagjá frá Drekkinarhyl og norður að Þjónustumiðstöð að Köstulum og í átt að Öxarárfossi.

Tónleikagestum verður vísað á þrjú bílastæði sem eru fyrirframpöntuð, við Brúsastaði, Tæpastíg og á Leirar tjaldstæða flatir við þjónustumiðstöð.

Tónlistarhátíðin hefst klukkan 11:00 við Valhöll en færist svo að Efri Völlum fyrir neðan Öxarárfoss eftir 14:00.

Búast má við að umferð í og við þinghelgina muni þyngjast þegar líður á daginn með mögulega tilheyrandi töfum.

Bílastæðið við Kastala (P2) og Fossplan verður lokað þar sem verið að er koma upp búnaði vegna tónleikanna þann 20. júní.

Þingvellir laugardaginn 20. júní Fyrirhuguð er stór tónlistarhátíð á Þingvöllum þann 20. júní. Hátíðin hefst klukkan 11:...
18/06/2026

Þingvellir laugardaginn 20. júní

Fyrirhuguð er stór tónlistarhátíð á Þingvöllum þann 20. júní. Hátíðin hefst klukkan 11:00 á litla sviðinu á Valhallarreit. Kl.14:00 hefst dagskrá á stærra sviði, Dynbergi, á völlunum skammt frá Öxarárfossi og stendur þar yfir til miðnættis.

Af þeim sökum verður nokkur röskun á hefðbundinni starfsemi í þjóðgarðinum. Á heimasíðu þjóðgarðsins má nálgast frekari upplýsingar um stýringar á umferð, bílastæði og fleira.

Fyrirspurnum vegna viðburðarins er best að beina á [email protected]

Fyrirhuguð er stór tónlistarhátíð á Þingvöllum þann 20. júní. Hátíðin hefst klukkan 11:00 á litla sviðinu á Valhallarreit. Kl.14:00 hefst dagskrá á stærra sviði, Dynbergi, á völlunum skammt frá Öxarárfossi og stendur þar yfir til miðnættis. Af þeim sökum verður nokku...

Address

Selfoss
806

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Þjóðgarðurinn á Þingvöllum / Thingvellir National Park posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category