15/04/2021
Að undanförnu hefur verið mikil ásókn í innritun yngri barna en 18 mánaða, sem er talsvert undir innritunarreglum, og hingað til hafa verið innrituð yngri börn en reglur segja til um, ef aðstæður hafa leyft það. Vegna þessarar miklu aðsóknar er verið að skoða slíkar óskir, meta fjölda umsókna um innritun yngri barna, aldur þeirra og möguleg úrræði.
Sveitarfélagið Árborg hefur nýlokið við að úthluta leikskólaplássum fyrir komandi skólaár. Samkvæmt innritunarreglum sveitarfélagsins er miðað við að börn sem verða tveggja ára á árinu fái leikskólapláss en nú er leitast við að öll börn 18 mánaða og eldri fái pláss...