10/09/2026
„Það er eftir því tekið hvernig hlutirnir eru á Suðurlandi," sagði Gunnar Thorarensen, yfirlæknir Stafrænnar heilsu þegar hann opnaði Nýsköpunardag HSU í ár.
Nýafstaðinn Nýsköpunardagur sýndi glögglega þann kraft og metnað sem býr innan Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Fjölbreytileiki verkefnanna, öflug þátttaka starfsfólks og mikill áhugi á deginum kristallaði markmið HSU um að vera í fararbroddi í þróun heilbrigðisþjónustu á komandi árum.
Taka má einnig rækilega undir lokaorð forstjóra HSU, Díönu Óskarsdóttur þegar hún þakkaði starfsfólki fyrir sitt framlag í nýsköpun, „við höfum alla ástæðu til að vera stolt af því góða starfi sem á sér stað hér á hverjum degi”.
Nánar um viðburðinn má lesa í frétt á heimasíðu okkar, www.hsu.is