15/05/2026
🤝22 raddir. Eitt lið🫡
Í 19. sæti listans er Ragnar Geir Brynjólfsson.
Hann er 65 ára, giftur Maríu Geraldine B. Cuizon, matsveini á leikskólanum Jötunheimum. Þau eiga tvo uppkomna syni og 13 ára dóttur. Ragnar starfaði áður við kerfisstjórn og kennslu en er nú lífeyrisþegi og sjálfboðaliði í kirkjustarfi.
Ragnar var fulltrúi Framsóknar í skipulags- og byggingarnefnd Árborgar árin 2014–2018. Þessi ár gáfu honum dýrmæta innsýn í uppbyggingu samfélagsins. Hann brennur fyrir því að samfélagið mæti þeim sem standa verst og vill sjá raunhæf neyðarúrræði fyrir fólk sem fellur á milli kerfa og þarf vernd og stuðning. Ragnar vill stuðla að mannvænu og öruggu samfélagi þar sem engum er útvistað.