Sveitarfélagið Árborg

Sveitarfélagið Árborg Í febrúar 1998 sameinuðust Eyrarbakkahreppur, Stokkseyrarhreppur, Sandvíkurhreppur og Selfosskaupstaður í eitt sveitarfélag, Sveitarfélagið Árborg.

Tómstundaakstur | TilkynningVið vekjum athygli á að tveimur stoppum hefur verið bætt við leið 2. Leiðatöflu má sjá hér a...
14/09/2026

Tómstundaakstur | Tilkynning

Við vekjum athygli á að tveimur stoppum hefur verið bætt við leið 2. Leiðatöflu má sjá hér að neðan.

Til allra verslunar- og þjónustufyrirtækja starfandi í sveitarfélaginu ÁrborgSveitarfélagið Árborg óskar eftir því að áh...
14/09/2026

Til allra verslunar- og þjónustufyrirtækja starfandi í sveitarfélaginu Árborg

Sveitarfélagið Árborg óskar eftir því að áhugasöm verslunar- og þjónustufyrirtæki starfandi í sveitarfélaginu Árborg sendi tilboð í gjafabréf vegna jólagjafa starfsmanna.

Hjá sveitarfélaginu starfa um 1200 starfsmenn á um 38 vinnustöðum. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að velja tvö þeirra tilboða sem berast í verðfyrirspurninni út frá mati sveitarfélagsins á hagkvæmni gjafarinnar fyrir starfsmenn. Starfsmönnum mun gefast kostur á að velja milli þeirra tveggja tilboða sem verða fyrir valinu.

Skilyrði fyrir þátttöku:
Eingöngu er tekið við tilboðum í innpökkuð gjafabréf.
Skila þarf inn tilboðum fyrir 16. október 2026.

Fyrirkomulag:
Tilboðin má senda á netfangið [email protected] fyrir 16. október 2026
Sveitarfélagið greiðir 8.000 krónur fyrir hvert gjafabréf
Þau fyrirtæki sem senda inn tilboð fá upplýsingar um hvort þeirra tilboð hafi verið valið eða ekki þann 26. október
Fyrirtækin fá staðfestingu á fjölda gjafabréfa sem sveitarfélagið mun kaupa föstudaginn 13. nóvember
Fyrirtækin skila gjafabréfunum mánudaginn 7. desember í Ráðhús Árborgar

Með fyrirfram þökk,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri

Zelsíuz opnar nýtt útibú í Stekkjaskóla🤗  7. september sl. opnaði félagsmiðstöðin Zelsíuz nýtt útibú í Stekkjaskóla. Mar...
14/09/2026

Zelsíuz opnar nýtt útibú í Stekkjaskóla🤗

7. september sl. opnaði félagsmiðstöðin Zelsíuz nýtt útibú í Stekkjaskóla. Markmiðið er að færa þjónustuna nær börnum og unglingum👫

Opnunin markar spennandi skref í þróun félagsmiðstöðvarstarfs í Árborg 👏

Stefnt er að því að Zelsíuz muni opna útibú í öllum grunnskólum Árborgar á næstu árum 🥳

Sjá frétt í heild sinni á hlekk í fyrstu athugasemd👇🫶

Selfossveitur | TilkynningVegna endurnýjun Selfossveitna bs. á hitaveitu við Eyrarbakkaveg verður heitavatnslaust á Stok...
10/09/2026

Selfossveitur | Tilkynning

Vegna endurnýjun Selfossveitna bs. á hitaveitu við Eyrarbakkaveg verður heitavatnslaust á Stokkseyri, Eyrarbakka, Tjarnabyggð og í Sandvíkurhrepp, miðvikudaginn 16. september frá klukkan 09:00 og fram eftir degi.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem það getur haft í för með sér.

Malbiksviðgerðir á Hellisheiði frá Hveragerði til Reykjavíkur.Framkvæmdirnar munu standa frá 10:00 þann 9. sept til 16:0...
09/09/2026

Malbiksviðgerðir á Hellisheiði frá Hveragerði til Reykjavíkur.

Framkvæmdirnar munu standa frá 10:00 þann 9. sept til 16:00
Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka miðvikudaginn 9.sept. (Ef veður leyfir)

Hellisheiðin verður lokuð á meðan framkvæmdum stendur.

Meðfylgjandi er lokunarplan.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

Rómantískur ágústmánuður var ljúfur hjá Bókasafni Árborgar
07/09/2026

Rómantískur ágústmánuður var ljúfur hjá Bókasafni Árborgar

Þessar tvær voru svo skemmtilegar hjá okkur á rómantísku ágústkvöldi í síðustu viku - Ástin og Ísfólkið - hvor annarri betri og bestu þakkir til ykkar allra sem komuð og gerðuð þetta að yndis-kvöldstund

Til upplýsinga | Malbiksviðgerðir Hellisheiði - Lokun til austursVegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka þ...
07/09/2026

Til upplýsinga | Malbiksviðgerðir Hellisheiði - Lokun til austurs

Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka þriðjudaginn 8. sept. (Ef veður leyfir)

Malbiksviðgerðir á Hellisheiði frá Reykjavík til Hveragerðis. Framkvæmdirnar munu standa frá 14:00 þann 8. sept til 18:00

Hellisheiðin verður lokuð á meðan framkvæmdum stendur.

Meðfylgjandi er lokunarplan.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

👕Treyjudagurinn var haldinn í fyrsta skipti á Íslandi í dag.Það eru samtökin Börn með krabbamein (áður Styrktarfélag kra...
04/09/2026

👕Treyjudagurinn var haldinn í fyrsta skipti á Íslandi í dag.

Það eru samtökin Börn með krabbamein (áður Styrktarfélag krabbmeinssjúkra barna) sem standa að deginum til að vekja athygli á málefninu.

Á Íslandi greinist að meðaltali eitt barn í hverjum mánuði með krabbamein.

4. september verður héðan í frá tileinkaður börnum sem greinast með krabbamein og foreldrum þeirra.

Á treyjudeginum klæðist fólk uppáhaldstreyjunni sinni og starfsfólk Ráðhússins ásamt fleiri stofnunum sveitarfélagsins tók þátt og mætti til vinnu í morgun í sínum uppáhaldstreyjum til að sýna samstöðu og styðja við þetta mikilvæga málefni. 🤗

🌟 Líf og fjör í Árborg um helgina! 🌟Það er sannarlega nóg að gera fyrir alla fjölskylduna í Árborg þessa helgina og eitt...
04/09/2026

🌟 Líf og fjör í Árborg um helgina! 🌟

Það er sannarlega nóg að gera fyrir alla fjölskylduna í Árborg þessa helgina og eitthvað við allra hæfi! 🎉

⚽ Frístundamessa Árborgar Laugardaginn 5. september kl. 10:00–12:00 í Kappahl-höllinni. Komið og kynnið ykkur fjölbreytt íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarf sveitarfélagsins. Frábært tækifæri fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra að finna eitthvað spennandi til að taka þátt í.

📚 Haustgildi á Stokkseyri Bókmenntahátíð bókabæjanna austanfjalls fer fram dagana 5.–6. september. Þar koma fram fjölbreyttir rithöfundar og tónlistarmenn í notalegri menningarveislu sem enginn bókaunnandi vill missa af.

🎨 Útgáfuhóf á Bókasafni Árborgar Laugardaginn 5. september kl. 11:00 fögnum við útgáfu nýjustu barnabókar Ingibjargar Birgisdóttur, Litaævintýri Siggu og Dóra. ✨ Léttar veitingar ✨ Kleinur og pönnukökur að sveitasið ✨ Árituð eintök á kynningarafslætti ✨ Föndurhorn fyrir krakkana

Nýtum helgina til að njóta menningar, samveru og fjölbreyttrar afþreyingar hér í okkar frábæra sveitarfélagi. Við hlökkum til að sjá ykkur! 💙



Haustgildi Bókasafn Árborgar, Selfossi, Stokkseyri, Eyrarbakka

04/09/2026

Frístundamessa Árborgar verður haldin í Kappahl-höllinni laugardaginn 5. september kl. 10:00–12:00. Gestir geta gengið á milli stöðva, kynnt sér starfsemina, hitt fulltrúa félaga og fengið upplýsingar um það starf sem verður í boði í vetur. Á mörgum stöðvum verður jafnframt hægt að prófa ýmislegt og spreyta sig á skemmtilegum verkefnum og viðfangsefnum.

Address

Austurvegi 2
Selfoss
800

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 15:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sveitarfélagið Árborg posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share