02/09/2026
👮♀️🤝 Sameiginlegt eftirlit með atvinnustarfsemi á Norðurlandi vestra
Dagana 26. og 27. ágúst sl. fóru lögreglumenn á Norðurlandi vestra í umfangsmikið vinnustaðaeftirlit ásamt fulltrúum Skattsins og Vinnueftirlitsins. Eftirlitið er liður í samstarfi stjórnvalda um eftirlit með brotastarfsemi á vinnumarkaði.
🏢 Heimsóttir voru tugir vinnustaða víða á Norðurlandi vestra, allt frá Stað í vestri og um Skagafjörð, Varmahlíð og norður í Fljót. Að þessu sinni var sjónum einkum beint að starfsemi tengdri ferðaþjónustu.
🔎 Við eftirlitið kannaði lögregla meðal annars hvort rekstraraðilar hefðu tilskilin leyfi til starfseminnar, auk þess sem atvinnu- og dvalarleyfi erlendra starfsmanna voru skoðuð. Þá var einnig horft til almennra aðstæðna starfsfólks á vinnustöðunum.
✅ Í langflestum tilvikum voru mál í góðu lagi hvað varðar þau atriði sem komu til skoðunar hjá lögreglu. Í einu tilviki kom hins vegar í ljós starfsemi sem rekin var án tilskilins leyfis.
🤝 Samstarf lögreglu, Skattsins og Vinnueftirlitsins er mikilvægur þáttur í því að tryggja heilbrigðan og löglegan vinnumarkað. Með sameiginlegu eftirliti er meðal annars unnið að því að koma í veg fyrir ólöglega atvinnustarfsemi, tryggja réttindi starfsfólks og stuðla að því að fyrirtæki starfi á jafnræðisgrundvelli og í samræmi við lög og reglur.
Slíku samstarfi og eftirliti verður fram haldið.
📣 Ábendingar frá almenningi skipta máli
Lögregla hvetur fólk sem hefur upplýsingar um atvinnu- eða rekstrarstarfsemi sem grunur leikur á að sé rekin án tilskilinna leyfa, eða aðra mögulega ólögmæta starfsemi á vinnumarkaði, til að koma ábendingum á framfæri.
📧 Ábendingar til lögreglunnar á Norðurlandi vestra má senda á [email protected]
Einnig má beina ábendingum til Skattsins eða Vinnueftirlitsins eftir því hvert eðli málsins er.
🚨 Ef um er að ræða aðstæður sem kalla á tafarlaus viðbrögð lögreglu skal hafa samband við 112.