17/05/2026
Við í Sjálfstæðisflokknum í Skagafirði þökkum fyrir stuðninginn og traustið sem okkur er sýnt og fyrir frábæra mætingu í kosningakaffi og á kosningavöku í gær. Jafnframt viljum við þakka meðframbjóðendum okkar úr öllum framboðum fyrir drengilega kosningabaráttu.
Í kosningunum fengum við 30,7% atkvæða og verða Magnús Barðdal, Sólborg Borgarsdóttir og Guðlaugur Skúlason sveitarstjórnarfulltrúar okkar næstu 4 árin með öflugan hóp fólks með sér. Þetta er besta niðurstaða Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði í 20 ár og við hlökkum til að halda áfram að vinna fyrir Skagfirðinga og gera Skagafjörð skemmtilegri.