Súðavíkurhreppur

Súðavíkurhreppur Opinber síða Súðavíkurhrepps á Facebook.

26/08/2026

Auglýsing um kjörfund vegna Þjóðaratkvæðagreiðslu 29.ágúst 2026
Kosið verður í þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29.ágúst 2026.
Tvær kjördeildir verða í Súðavíkurhreppi og eru kjörstaðir í Súðavíkurskóla og Heydal eftir kjörskrá.

Kjörfundir verða sem hér segir:
Súðavíkurskóli frá kl.10:00-18:00.
Heydalur frá kl. 12:00-16:00.
Framvísa skal sannreynanlegum skilríkjum á kjörstað s.s. vegabréfi, ökuskírteini eða nafnskírsteini.

Kjörskrá liggur frammi til kjördags á skrifstofu Súðavíkurhrepps. Kjörskrá mun liggja frammi á kjörstöðum á kjördegi.
Yfirkjörstjórn Súðavíkurhrepps
Guðrún I Halldórsdóttir
Herdís Mjöll Jónasdóttir
Snorri G Bergsson

17/08/2026
Það var bjartur og fallegur þriðjudagurinn 11.ágúst þegar Birta Lind Garðarsdóttir oddviti afhenti Elísabet Margrét Jóna...
13/08/2026

Það var bjartur og fallegur þriðjudagurinn 11.ágúst þegar Birta Lind Garðarsdóttir oddviti afhenti Elísabet Margrét Jónasdóttur lyklana af skrifstofu Súðavíkurhrepps. Við bjóðum Elísabetu Margréti hjartanlega velkomna til starfa sem Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps og hlökkum til samstarfsins!

Kynningarmyndband fyrir sólmyrkvagleraugun
05/08/2026

Kynningarmyndband fyrir sólmyrkvagleraugun

Securely store, share, and access your important files and photos. Anytime, anywhere.

Sýslumaðurinn á VestfjörðumAtkvæðagreiðsla utan kjörfundarvegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026Atkvæðagreiðsla utan...
29/07/2026

Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar
vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið er hafin.
Hjá sýslumanninum á Vestfjörðum má greiða atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum embættisins virka daga sem hér segir:
• Ísafjörður, Hafnarstræti 1, kl. 9:00-15:00 en föstudaga kl. 09:00-14:00.
• Hólmavík, Hafnarbraut 25, 2.hæð, kl. 09:00-13:00 en föstudaga kl.9:00-12:00.
• Patreksfjörður, Aðalstræti 92, kl. 09:00-12:00 og 13:00-15:00 en föstud. kl. 09:00-12:00.
Þegar nær dregur kjördegi verða settar inn á svæði sýslumanna á vefnum www.island.is, upplýsingar um fleiri kjörstaði, um atkvæðagreiðslu á sjúkrahúsum og dvalarheimilum í umdæminu og eftir atvikum lengdan tíma sem opið verður á skrifstofum embættisins.
- Kjósandi skal gæta að hvar hann er á kjörskrá, en nálgast má upplýsingar um það á vef Þjóðskrár, www.skra.is.

- Kjósandi skal, áður en hann greiðir atkvæði utan kjörfundar, gera starfsmanni kjörstjóra grein fyrir sér með því að framvísa vegabréfi, ökuskírteini, nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra.
- Öllum sem eru skráðir á kjörskrá er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá hvaða sýslumanni sem er óháð búsetu eða lögheimili.
- Ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, þarf að hafa borist hlutaðeigandi skrifstofu sýslumanns á þar til gerðu eyðublaði eigi síðar en kl. 16:00 fjórum dögum fyrir kjördag eða þriðjudaginn 25. ágúst.

Ísland.is er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Þar getur fólk og fyrirtæki fengið upplýsingar og notið margvíslegrar þjónustu hjá opinberum aðilum á einum stað í gegnum eina gátt.

Íslenskunámskeið með listsköpun og leik fyrir 5-9 ára á Flateyri 4-9 ágúst nk.
27/07/2026

Íslenskunámskeið með listsköpun og leik fyrir 5-9 ára á Flateyri 4-9 ágúst nk.

03/07/2026

Minnum íbúa á klippa tré og runna sk.v byggingareglugerð 7. hluti gr. 7.2.2. Tré og runnar á lóðum. Einnig hyggst Súðavíkurhreppur fara í undirbúning fyrir aðgerðir á gróðri á opnum svæðum í Súðavík.

Byggingareglugerð 7.hluti gr. 7.2.2

7.2.2. gr. Tré og runnar á lóðum
Ekki má planta hávöxnum trjátegundum nær lóðarmörkum aðliggjandi lóða en 4,0 m. Við staðsetningu trjáa á lóð sem ætlað er að vaxi frjáls skal taka tillit til skuggavarps á viðkomandi lóð og nágrannalóðum. Sé trjám eða runnum plantað við lóðarmörk samliggjandi lóða skal hæð þeirra ekki verða meiri en 1,80 m, nema lóðarhafar beggja lóða séu sammála um annað. Ef lóðarmörk liggja að götu, gangstíg eða opnu svæði má trjágróður ná meiri hæð, enda komi til samþykki veghaldara eða umráðaaðila viðkomandi svæðis.

Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götur, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.

29/06/2026

Kæru íbúar Súðavíkurhrepps
Gengið hefur verið frá ráðningu í starf sveitarstjóra Súðavíkurhrepps. Elísabet Margrét Jónasdóttir var ráðin til starfa.
Elísabet býr yfir víðtækri reynslu á sviði rekstrar og fjármálastjórnunar og hefur á undanförnum árum gegnt starfi fjármála- og skrifstofustjóra hjá Fiskvinnslunni Íslandssögu hf.
Jafnframt hefur hún sinnt fjármálastjórnun fyrir Norðureyri ehf. og Vestfisk ehf. síðastliðin tíu ár. Hún hefur yfirgripsmikla reynslu af áætlanagerð, rekstrarstýringu og mannauðsstjórnun, auk þess að hafa komið að innleiðingu upplýsingakerfa og umfangsmiklum umbótaverkefnum. Elísabet hefur lagt stund á viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst og hefur lokið Mini MBA námi með áherslu á fjármál fyrirtækja, fjártækni og árangursstjórnun.
Elísabet hefur einnig öðlast góða innsýn í opinbera stjórnsýslu, meðal annars í gegnum þátttöku sína í sveitarstjórnarstörfum Ísafjarðarbæjar.
Súðavíkurhreppur bindur miklar vonir við ráðningu Elísabetar og býður hana hjartanlega velkomna til starfa.

22/06/2026

Sólmyrkvagleraugun vegna almyrkva á sólu 12.ágúst eru komin. Íbúar geta sótt gleraugun á skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 3.júlí og notið almyrkvans á öruggan hátt.

Address

Grundarstræti 1
Súðavík
420

Opening Hours

Monday 10:00 - 15:00
Tuesday 10:00 - 15:00
Wednesday 10:00 - 15:00
Thursday 10:00 - 15:00
Friday 10:00 - 15:00

Telephone

+3544505900

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Súðavíkurhreppur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share