03/09/2026
Hagstofan kom sá og sigraði
Valinkunnur hópur starfsmanna Hagstofu Íslands tók þátt í Norræna tölfræðingamótinu 2026 sem fram fór í Kaupmannahöfn dagana 25.-26. ágúst.
Óhætt er að segja að Hagstofan hafi komið séð og sigrað þar sem starfsmenn hennar, þær Paula Hartung og Margherita Zuppardo, hirtu helming allra gullanda sem veittar voru fyrir bestu kynningarnar á pappírum á mótinu. Kynning Paulu snéri að notkun gervigreindar við að staðla gagnaskil til Hagstofunnar, en kynning Margheritu að nýsköpun í að bæta svörun í úrtaksrannsóknum (sjá hlekki á pappíra að neðan).
Norræna tölfræðingamótið fer fram þriðja hvert ár með þátttöku allra norrænu hagstofanna og styttist í að það verði eitt hundrað ára. Að þessu sinni var það skipulagt af dönsku hagstofunni.