Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) sinnir slökkvistarfi og sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu.

Við sinnum björgun úr sjó og vötnum ásamt björgun utan vega á okkar starfssvæði. Einnig aðstoðum við önnur slökkvilið í landinu þegar eftir því er leitað, ásamt því að sinna eldum í skipum við land og á hafi úti þegar svo ber við. Slökkvistarfið er fjölbreytt og getur verið allt f rá litlum bruna í ruslatunnu, yfir í stórbruna sem krefst þátttöku allra stöðva SHS og jafnvel aukamannskaps sem kallaður er út af frívakt. Við höfum margþættu hlutverki að gegna við almenning, fyrirtæki og stofnanir á starfssvæðinu sem felst fyrst og fremst í því að veita gæðaþjónustu við fyrstu viðbrögð og forvarnir til að vernda líf, heilsu, umhverfi og eignir borgarbúa.

08/09/2026
Það hefur verið erill í sjúkraflutningunum en við fórum í 128 slíka þar af voru 31 forgangsflutningur.Í staðinn hreyfðus...
08/09/2026

Það hefur verið erill í sjúkraflutningunum en við fórum í 128 slíka þar af voru 31 forgangsflutningur.

Í staðinn hreyfðust dælubílarnir lítið eða þannig að það fór 1 dælubíll af stað í eld í ruslatunnu en það var afturkallað þar sem góður aðili slökkti eldinn áður en við komum á staðinn.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins býður góðan dag.C-vaktin hjá Slökkviliðinu hefur nú lokið við sína vaktatörn, sem hefur ...
07/09/2026

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins býður góðan dag.

C-vaktin hjá Slökkviliðinu hefur nú lokið við sína vaktatörn, sem hefur staðið síðan á miðvikudegi í síðustu viku.
Við förum nú í frí í nokkra daga og verður það kærkomið. Veðurútlit næstu daga er einmitt með eindæmum góð en spár segja að á þriðjudag verði allsherjar sól á öllu landinu og munu eflaust einhver okkar nýta þann dag til útiveru.

Á síðastliðnum sólarhring sinntu sjúkrabílar okkar 101 verkefnum og dælubílar voru kallaðir út fimm sinnum.
Hvað sem dagurinn þinn ber í skauti sér, vonum við hjá SHS að hann færi þér ánægju og áfallalausa vegferð.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins býður góðan dag.Runninn er upp sunnudagur, og útlit fyrir eins dæmis blíðviðri. Sunnudag...
06/09/2026

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins býður góðan dag.

Runninn er upp sunnudagur, og útlit fyrir eins dæmis blíðviðri.
Sunnudagar á slökkvistöðinni eru oft á tíðum rólegri en aðrir dagar vikunnar.
Þá myndast góð stemning þar sem heimilisleg ró, öflug liðsheild, tilfallandi útköll og æfingar fléttast saman.

Sunnudagar eru einmitt kjörnir til að sinna æfingum, enda nauðsynlegt að viðhalda kunnáttu og tökum, á þeim fjölmörgu tækjum og tólum sem við reiðum okkur á.

Við erum meðal annars svo gæfusöm að eiga tvo körfubíla sem reynast vel við vinnu í hæð.

Á meðfylgjandi mynd má sjá annan þeirra reistan við slökkvistöðina í Skógarhlíð, í ljósaskiptunum í gærkvöldi.

Á síðastliðnum sólarhring sinntu sjúkrabílar okkar 115 verkefnum og dælubílar voru kallaðir út fimm sinnum.

Hvað sem sunnudagurinn ber í skauti sér vonum við hjá SHS að hann færi þér ánægju og áfallalausa vegferð.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins býður góðan dag.Haustið minnir nú á sig af auknum þunga. Daginn tekur að stytta og hvers...
05/09/2026

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins býður góðan dag.

Haustið minnir nú á sig af auknum þunga. Daginn tekur að stytta og hversdagslegri rútínu vex fiskur um hrygg.
Afrakstur sumarsins kominn úr jörðu, norðurljósin farin að sýna sig og víðast hvar er skólastarf hafið.

Sá vegur að verða fullnuma slökkviliðsmaður er hvergi greiður og gerist ekki á einni nóttu, mælt er að námi því ljúki aldrei fyllilega á starfsævinni.
Námið er kennt í lotum er snerta á ólíkum sviðum. Oftast til skiptis slökkviþáttur og hins vegar nám tengt sjúkraflutningum. En jafnan tekur um þrjú ár að verða verkfær á flestum sviðum starfsins.

Á myndinni má sjá áhugasama nýja starfsmenn slökkviliðsins fylgjast með handbrögðum leiðbeinanda.

Á síðastliðnum sólarhring sinntu sjúkrabílar 124 verkefnum og dælubílar voru kallaðir út 4 sinnum.

Hvað sem dagurinn þinn ber í skauti sér, vonum við hjá SHS að hann færi þér ánægju og áfallalausa vegferð.

Þessi litla sæta kanína (sem sést ef VEL er að gáð neðarlega til vinstri á myndinni.....) kíkti í heimsókn til okkar í S...
04/09/2026

Þessi litla sæta kanína (sem sést ef VEL er að gáð neðarlega til vinstri á myndinni.....) kíkti í heimsókn til okkar í Skógarhlíðina í morgun.

Við erum vön að tala við alla sem koma til okkar en hún var bara alls ekki í stuði til þess og lét sig hverfa. Hún staldraði þó talsvert lengi við þennan vegg og það leit út fyrir að hún væri að lesa um brunann mikla í miðbænum árið 1915. Við vonum að hún hafi ratað aftur heim til sín😊

Gulur september er genginn í garð 💛💛💛Mánuðurinn er tileinkaður vitunarvakningu um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Lögð e...
03/09/2026

Gulur september er genginn í garð 💛💛💛

Mánuðurinn er tileinkaður vitunarvakningu um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Lögð er áhersla á að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna með kærleika, aðgát og umhyggju að leiðarljósi.

Við viljum vekjum athygli á því að alltaf er hægt að leita til Píeta Samtakanna í síma 1799.

https://gulurseptember.is/

Nóg hefur verið að gera síðasta sólahring, dælubílar hafa farið í 5 verkefni og þar af 3 bruna síðastliðnu nótt.  Eldur ...
03/09/2026

Nóg hefur verið að gera síðasta sólahring, dælubílar hafa farið í 5 verkefni og þar af 3 bruna síðastliðnu nótt.

Eldur kom upp í millilofti og þaki á Rimaskóla og voru allar stöðvar sendar í það verkefni og tók það tæpar 2 klukkustundir en gekk samt vel.
Annað verkefni var staðsett í Garðabæ en þar var aðallega um reyk að ræða en ekki eld vegna eldamennsku. Tók það verkefni 45 mín og var lítið tjón af því.

Svo nú í morgunsárið fengum við tilkynningum um eld í Sorpu gufunesi en þar hafði kviknað í gám inni í húsnæðinu. Það náðist að draga gám úr húsnæðinu og slökkva utandyra, vinna gekk vel og tók um eina klukkustund.

Með þessu fórum við í 110 sjúkraflutninga svo þetta er búið að vera ágætis sólahringur.

Farið varlega og njótið dagsins.

Góðan og blessaðan daginn Erill hefur verið hjá okkur undanfarinn sólarhring,  má þar helst nefna að kl. 00:29 barst til...
02/09/2026

Góðan og blessaðan daginn
Erill hefur verið hjá okkur undanfarinn sólarhring, má þar helst nefna að kl. 00:29 barst tilkynning um reyk frá hóteli í miðbænum. Allar stöðvar voru sendar á vettvang ásamt þremur sjúkrabílum.
Við komu fyrstu viðbragðsaðila á staðinn lagði reyk frá gluggum víða um húsið og var hótelið því rýmt.
Í upphafi gekk erfiðlega að staðsetja eldinn og voru fjögur reykkafarapör send inn til leitar.
Eldsupptök reyndust vera í kjallara hússins, sem varð til þess að stigagangurinn fylltist af reyk. Tveimur einstaklingum var bjargað út af reykköfurum og voru þeir fluttir á bráðamóttöku með grun um reykeitrun.
Slökkvistarfi lauk um kl 04:00
Annars voru tölur síðasta sólarhrings þannig hljóðandi 139 útköll á sjúkrabíla og 5 útköll á dælubíla
Farið varlega og eigið góðan dag

Góðan og blessaðan daginn.Síðastsliðin sólarhring voru 118 útköll á sjúkrabíla þar af voru 28 forgangsverkefni.3 minnihá...
01/09/2026

Góðan og blessaðan daginn.
Síðastsliðin sólarhring voru 118 útköll á sjúkrabíla þar af voru 28 forgangsverkefni.
3 minniháttar útköll voru á dælubíla sem leystust hratt og örugglega.

Farið varlega og eigið góðan dag.

Address

Skógarhlíð 14
Reykjavík
105

Telephone

5283000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.:

Shortcuts

Share

Category