Lyfjastofnun

Lyfjastofnun Við gefum út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi og höfum eftirlit með hérlendum lyfjaiðnaði. nálgast fylgiseðla lyfja á íslensku.

Helsta hlutverk okkar er að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit með hérlendum lyfjaiðnaði og tryggja faglega og hlutlausa upplýsingagjöf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Við rekum tvo vefi; www.lyfjastofnun.is og www.serlyfjaskra.is. Í mars 2017 bættist við vefurinn www.lyfjaskil.is sem inniheldur meðal annars gagnl

egar upplýsingar um hvernig á að geyma lyf á öruggan hátt og hvernig á að bera sig að við lyfjatiltekt.


Á www.serlyfjaskra.is getur þú m.a. Allir geta tilkynnt aukaverkanir á netinu: http://www.lyfjastofnun.is/Lyfjagat/tilkynna/

Nokkrar gagnlegar greinar um lyf ætlaðar almenningi:

Sala lyfja á netinu er óheimil: http://www.lyfjastofnun.is/utgefid-efni/frettir/nr/4930

Hvernig á að geyma lyf og hvernig á að henda þeim?: http://www.lyfjastofnun.is/utgefid-efni/lesum-fylgisedilinn/nr/4847

Gagnlegar upplýsingar um fylgiseðla lyfja: http://www.lyfjastofnun.is/utgefid-efni/Greinar__Utgefid_efni/nr/761

Öryggi við notkun lyfja - Að tilkynna aukaverkanir: http://www.lyfjastofnun.is/utgefid-efni/frettir/nr/4912

Fentanýl lyfjaplástrar - öryggi við notkun og förgun þeirra: http://www.lyfjastofnun.is/utgefid-efni/frettir/nr/5043

Hvað get ég gert til að minnka hættu á aukaverkun fentanýlplástra og alvarlegum afleiðingum þeirra?: http://www.lyfjastofnun.is/utgefid-efni/frettir/nr/5044

Hvað get ég gert ef vart verður við einkenni alvarlegra aukaverkana eða ofskömmtunar fentanýls: http://www.lyfjastofnun.is/utgefid-efni/frettir/nr/5048

Það er ekki oft sem klíníska teymið okkar fær tækifæri til að hittast á Íslandi en það gerðist í þessari viku þegar Caro...
04/06/2026

Það er ekki oft sem klíníska teymið okkar fær tækifæri til að hittast á Íslandi en það gerðist í þessari viku þegar Carolilne, Pierre og Norbert komu.

Þá er mikið unnið og fundað og tíminn nýttur vel til að kynnast enn betur en hægt er á fjarfundum.

Gott að sjá ykkur!

📢 Laust starf hjá Lyfjastofnun / Icelandic Medicines AgencyLyfjastofnun óskar eftir að ráða jákvæðan, drífandi og nákvæm...
26/05/2026

📢 Laust starf hjá Lyfjastofnun / Icelandic Medicines Agency

Lyfjastofnun óskar eftir að ráða jákvæðan, drífandi og nákvæman einstakling á svið mats og skráningar lyfja.

✒️ Um er að ræða tímabundið starf til eins árs í 100% starfshlutfalli.

✒️ Helstu viðfangsefni og ábyrgð eru mat og afgreiðsla umsókna um ný markaðsleyfi, breytinga og viðhald á útgefnum markaðsleyfum, mat og þýðingar á lyfjatextum og afgreiðsla ýmissa skráningaverkefna.

✒️ Umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2026. Umsóknir óskast fylltar út á vef Intellecta og þarf þeim að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.

Áhugasamir geta kynnt sér frekari upplýsingar um starfið hér 👉 https://intellecta.is/storf/17794649658360099291dwu/

Lyfjafræðinemarnir Laila og Vitalija voru í starfsnámi hjá Lyfjastofnun 20. til 30. apríl.  Þær fengu fjöldann allan af ...
08/05/2026

Lyfjafræðinemarnir Laila og Vitalija voru í starfsnámi hjá Lyfjastofnun 20. til 30. apríl.

Þær fengu fjöldann allan af kynningum og fengu að reyna sig við ýmis verkefni stofnunarinnar, meðal annars að fara með eftirlitsmanni í úttekt. Það var sérstaklega gaman hversu áhugasamar þær voru um starfsemi stofnunarinnar og spurðu margra góðra spurninga.

Takk fyrir samveruna báðar tvær, vonandi sjáumst við aftur!

Að gefnu tilefni vegna fjölmiðlaumfjöllunarNý reglugerð um notkun fylliefna til útlitsbreytinga gekk í gildi 1. desember...
21/04/2026

Að gefnu tilefni vegna fjölmiðlaumfjöllunar

Ný reglugerð um notkun fylliefna til útlitsbreytinga gekk í gildi 1. desember 2025. Samkvæmt henni má einungis veita meðferð með fylliefnum á starfsstofu heilbrigðisstarfsmanns að undangenginni staðfestingu landlæknis á að reksturinn uppfylli faglegar kröfur. Börn yngri en 18 ára mega ekki þiggja meðferð af þessu tagi.

Frétt Lyfjastofnunar um reglugerðina:

https://www.lyfjastofnun.is/frettir/ny-reglugerd-um-notkun-fylliefna-til-utlitsbreytinga/

Nánar um fylliefni af vef Lyfjastofnunar í fyrstu athugasemd

Í síðustu viku tókum við á móti stórum hópi lyfjafræðinema frá Norðurlöndunum. Hópurinn var að taka þátt í PINSE, ráðste...
20/04/2026

Í síðustu viku tókum við á móti stórum hópi lyfjafræðinema frá Norðurlöndunum.

Hópurinn var að taka þátt í PINSE, ráðstefnu sem hefur verið haldin árlega frá 1937, með örfáum undantekingum, en þetta er í annað skiptið sem hún er haldin hérlendis.

Þau fengu kynningu á fjölbreyttum störfum stofnunarinnar og við vonum að heimsóknin hafi verið jafn ánægjuleg fyrir þau og hún var fyrir okkur.

Í upphafi Lífshlaups kom Heiðdís Snorradóttir næringarfræðingur frá Endurnæringu og kynnti fyrir okkur nokkur atriði sem...
10/02/2026

Í upphafi Lífshlaups kom Heiðdís Snorradóttir næringarfræðingur frá Endurnæringu og kynnti fyrir okkur nokkur atriði sem gott er að hafa í huga. 🍓🍗🍞

Gagnlegt og gott og tilvalið áður en allir þjóta af stað að safna stigum í Lífshlaupinu!
🏃🏃‍♀️

Það er laust starf hjá okkur, erum við að leita að þér? Hvetjum áhugasama til að kynna sér stöðun og senda inn umsókn.Um...
06/02/2026

Það er laust starf hjá okkur, erum við að leita að þér?

Hvetjum áhugasama til að kynna sér stöðun og senda inn umsókn.

Umsóknarfrestur er til 20. febrúar.

Lyfjastofnun óskar eftir að ráða deildarstjóra gæðamats, sem heyrir undir svið mats og skráningar lyfja. Við leitum að drífandi, sveigjanlegum og jákvæðum leiðtoga til að leiða öflugan hóp starfsfólks. Deildarstjóri er ábyrgur fyrir daglegu skipulagi deildar, forgangsröðun verkefna og málefnum starfsmanna í samráði við sviðsstjóra og hefur auk þess umsjón með fjölbreyttum verkefnum. Um fullt starf er að ræða. Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar 2026.

Síðastliðinn föstudag komu læknanemar í vísindaferð til okkar. Þau fengu almenna kynningu á stofnuninni, fræðslu um lyfj...
27/01/2026

Síðastliðinn föstudag komu læknanemar í vísindaferð til okkar.
Þau fengu almenna kynningu á stofnuninni, fræðslu um lyfjaskort og hvernig læknar gætu best nýtt sér upplýsingar frá Lyfjastofnun um hann auk þess sem læknarnir okkar spjölluðu við þau um hvað felst í þeirra störfum og hvernig þær enduðu hjá Lyfjastofnun.

Mannauðsstjórinn okkar skellti svo auðvitað í skemmtilega leiki.
Það var mjög gaman að fá þau til okkar og vonandi verða skiptin bara fleiri!

Lyfjastofnun kemur víða við á læknadögum.Við verðum með morgunfund á miðvikudaginn þar sem farið verður yfir nýjungar í ...
19/01/2026

Lyfjastofnun kemur víða við á læknadögum.

Við verðum með morgunfund á miðvikudaginn þar sem farið verður yfir nýjungar í sérlyfjaskránni okkar og nýjum evrópskum gagnagrunni um klínískar rannsóknir.

Skráningarhlekkur👉 https://www.surveymonkey.com/r/JH8R87K

Við komum svo við á fleiri dögum á meðan á viðburðinum stendur. Fulltrúi okkar, Valgerður Guðrún Gunnarsdóttir tók í dag sæti í panel um umhverfisáhrif heilbrigðisþjónustu, með áherslu á lyf. Bergrún Tinna Magnúsdóttir tölfræðingur í klíníska teyminu okkar tekur líka þátt í vinnustofu um klíníska gagnagrunna. Sif Ormarsdóttir læknir verður svo með erindi um meltingatengdar aukaverkanir GLP-1 hliðstæða en Sif starfar einmitt líka hjá Lyfjastofnun.

Sjáumst á læknadögum!
19/01/2026

Sjáumst á læknadögum!

Velkomin á morgunfyrirlestur á vegum Lyfjastofnunar á morgun, miðvikudaginn 21. janúar kl.8.20 í Rímu. Morgunverður í boði! Sjáumst á Læknadögum🩺
Skráning opin til 19. janúar á https://www.surveymonkey.com/r/JH8R87K

Address

Vínlandsleið 14
Reykjavík
113

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 15:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lyfjastofnun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share