18/12/2025
💛 Þökkum þeim fjölmörgu sem tóku þátt í Gulum september í ár og sýndu geðrækt og sjálfsvígsforvörnum stuðning á einn eða annan hátt Um 40 viðburðir rötuðu inn á dagatalið á heimasíðunni gulurseptember.is! Við vitum að þeir voru fleiri, m.a. voru gular messur víða um landið.
🎗️Þó svo að vitundarvakningin standi yfir frá 1.september-10.október þá stendur vinnan við geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir yfir allt árið um kring hjá þeim stofnunum og félagasamtökum sem koma að Gula september.
🎄 Hlýjar kveðjur með óskum um gleðileg jól
Fyrir hönd undirbúningshópsins
Anna Margrét
Myndir frá opnunarviðburðinum 1.september í Samfélagshúsinu Vitatorgi
Ljósmyndari: Pétur Fjeldsted
Blóm: Burkni Blómabúðin
Veitingar: Bakarameistarinn og Myllan
Gulur kristall frá Ölgerðinni