13/02/2026
Á morgun, 14. febrúar, verður Félagsmiðstöðin Frosti 40 ára. Frosti þjónustar alla skóla í Vesturbænum og er með virkt, fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir 10–16 ára.
Félagsmiðstöðvastarf er afar mikilvægt fyrir börn og unglinga. Það er öruggt og jákvætt umhverfi þar sem þau geta styrkt félagsleg tengsl við jafnaldra, fundið hæfileika sína og prófað ný áhugamál. Í félagsmiðstöðvum læra þau að bera virðingu fyrir hvort öðru, vinna saman og taka ábyrgð, sem styrkir bæði félagsfærni og sjálfstraust.
Lýðræðisleg vinnubrögð eru stór þáttur í starfinu. Ungmennin áhrif á dagskrá og skipulag, koma með hugmyndir og taka þátt í ákvarðanatöku í starfinu. Þannig læra þau að láta rödd sína heyrast, bera ábyrgð á eigin hugmyndum og upplifa að þeirra framlag skipti máli.
Í félagsmiðstöðvum starfar fagfólk sem sérhæfir sig í að efla jákvæð félagsleg tengsl ungmenna og leggur áherslu á að vera góð fyrirmynd. Starfsfólk félagsmiðstöðva er til staðar fyrir ungmennin, veitir þeim stuðning í alls konar krefjandi aðstæðum og sýnir að þau skipta máli.
Því er mikilvægt að félagsmiðstöðvastarf sé til staðar fyrir öll börn. Við starfsfólk Frosta erum stolt af því að fá að vera hluti af þessu frábæra starfi sem hefur verið í gangi síðastliðin 40 ár.