04/03/2026
🧊 Fróðleiksmoli um framtalið 🧊
Hjá flestum eru allar upplýsingar forskráðar og engu þarf að bæta við. Þá þarf bara að skoða&skila!
En framtal sumra er þess eðlis að bæta þarf við upplýsingum. Skoðum nokkur algeng dæmi:
📌 Verktakagreiðslur gætu verið forskráðar en það er ekki algilt. Gera má grein fyrir þeim og kostnaði á fylgiskjali með framtalinu.
- RSK 4.10 fyrir verktakagreiðslur allt að 2 milljónum
- RSK 4.11 fyrir verktakagreiðslur yfir tveim milljónum.
📉 Frádráttur á móti styrk eða starfstengdum greiðslum:
Sé heimilt að færa frádrátt á móti styrk eða starfstengdum greiðslum á árinu, þarf að færa frádráttinn í kafla 2.6 á framtali. Hann fer í reit 149 eða 157 eftir hvers eðlis hann er.
🏠 Kaup og sala fasteigna eru forskráð á fylgiskjal RSK 3.02. Framteljandi þarf sjálfur að tilgreina hvers konar eign var keypt og skrá eignarhaldstíma ef eign var seld.
🌍 Erlendar tekjur, s.s. laun og lífeyrir, þarf að telja fram í kafla 2.8 á tekjusíðu framtals. Erlendar bankainnstæður þarf að skrá í kafla 3.2 og erlendar fasteignir í kafla 4.2.
🏘 Leigutekjur af íbúðarhúsnæði þarf að færa inn á fylgiskjal RSK 3.25. Þaðan flytjast þær á framtal, í reit 510 á síðunni Fjármagnstekjur. Aðrar leigutekjur, svo sem tekjur af leigu til ferðamanna sem ekki flokkast sem atvinnurekstur, þarf að skrá í reit 511 í sama kafla. Sé um rekstur að ræða þarf að setja leigutekjur á rekstrarskýrslu.
📉 Lækkun á tekjuskattstofni. Eigi framteljandi rétt á lækkun á tekjuskattsstofni, svo sem vegna veikinda, slysa eða eignatjóns, er það gert með því að fylla út fylgiskjalið RSK 3.05, Umsókn um lækkun. Gögn um kostnað verða að fylgja með
Þau sem eiga ungmenni á aldrinum 16-21 árs geta átt rétt á ívilnun vegna framfærslu þeirra og sækja um lækkun á forsíðu.
📊 Staða hlutabréfa birtist eins og hún var á síðasta framtali. Allar breytingar, kaup og sala, arðgreiðslur og fleira þarf framteljandi sjálfur að færa inn á hlutabréfablaðið RSK 3.19, fylgiskjal með framtali. Gögn um kostnað verða að fylgja með.
Hafi verðbréf verið seld/innleyst á árinu er salan í mörgum tilvikum forskráð á fylgiskjali RSK 3.15, annars þarf framteljandi að skrá þær upplýsingar.
💡 Nákvæmar framtalsleiðbeiningar í fyrstu athugasemd