Skólavefurinn.is

Skólavefurinn.is Skólavefurinn.is

HEIMALESTUR Lestrarapp SkólavefsinsVið á Skólavefnum bjóðum nú upp á glænýtt app, Heimalestur, til að þjálfa nemendur í ...
07/03/2026

HEIMALESTUR
Lestrarapp Skólavefsins

Við á Skólavefnum bjóðum nú upp á glænýtt app, Heimalestur, til að þjálfa nemendur í lestri og lesskilningi. Í appinu er að finna á annað þúsund fjölbreyttra texta sem flokkaðir eru niður í níu erfiðleikastig. Appið er einfalt og auðvelt í notkun og hægt er að virkja sérstakan aðgang fyrir foreldra svo þeir geti betur tekið þátt í náminu. Hér er á ferðinni einstök leið fyrir nemendur til að þjálfa sig í lestri og lesskilningi.

https://www.heimalestur.is/

HVAR OG HVENÆR SEM ER

Já, nú geta nemendur hvenær sem er og hvar sem er lesið vandaða texta til að þjálfa bæði lestrarfærni og lesskilning. Appið hentar öllum símum og öllum tölvum og er því á margan hátt óháð stað og stund.

STIGSKIPTIR TEXTAR

Eins og áður sagði eru textarnir flokkaðir eftir því hve erfiðir þeir eru. Boðið er upp á níu stig eða þrep sem nemendur geta valið um. Í upphafi prófa nemendur sig áfram til að finna það stig sem hentar þeim best og halda svo ferðinni áfram þaðan. Til viðmiðunar má segja að hvert stig samsvari viðeigandi árgangi.

GÓÐ FYRIRGJÖF

Öllum textum fylgir einhvers konar verkefni sem sýna að nemandinn hefur lesið textann. Eru þau mis flókin eftir stigum og geta falist í því að raða orðum í rétta röð, velja rétt orð í eyðu, svara krossaspurningum úr efninu svo eitthvað sé nefnt. Nemandi er látinn vita ef svar hans er rangt með rauðum kassa en ef og þegar hann svarar rétt fær hann viðeigandi viðurkenningu.

SÉRVALDIR TEXTAR

Textarnir eru fjölbreyttir og innihaldsríkir og hafa mikið fróðleiksgildi, þ.e. þeir fjalla um eitthvað sem skiptir máli og nemendur hafa gaman af að vita. Og innan hvers stigs eru ólíkir textar sem nemendur geta valið úr, allt eftir því á hverju þeir hafa áhuga.

NÝTT EFNI Í REGLULEGA

Appið mun bjóða upp á nýtt efni reglulega þannig að enginn hætta er á að nemandinn ljúki við textana í boði. Það verður af nógu að taka.

AUÐVELT Í NOTKUN

Appið er einstaklega auðvelt í notkun og leiðin að textunum mjög stutt og aðgengileg. Auðvelt er að sjá hvaða lestra nemandinn hefur lesið. Nemandi velur sér texta til að lesa, síðan er smellt á „Hefja lestur“ og svo þegar textinn hefur verið lesinn er smellt á „Ég hef lesið textann“ og þaðan er svo farið í það verkefni sem fylgir textanum en verkefnin geta verið mismunandi.

heimalestur.is

Lestrarapp Skólavefsins býður upp á yfir 1000 spennandi texta og gagnvirkar æfingar. Bættu lestrarkunnáttu þína með skemmtilegum verkefnum.

Lesum söguna - 3 bækur(fyrir Krist)Lesum söguna er ný ritröð sem við á Skólavefnum erum að fara af stað með. Þar einblín...
08/02/2026

Lesum söguna - 3 bækur
(fyrir Krist)

Lesum söguna er ný ritröð sem við á Skólavefnum erum að fara af stað með. Þar einblínum við á mannkynssöguna en sjónarhornið er nokkuð frábrugðið því sem nemendur eiga að venjast. Í þessari fyrstu bók er valið efni úr sögu fornaldar kynnt í stuttum en hnitmiðuðum einingum án þess að kafað sé mjög djúpt.

Má segja að hér sé um að ræða nokkurs konar samantekt til að gefa nemendum yfirlit yfir farinn veg. Út frá þessu efni geta nemendur svo kynnt sér betur þau atriði sem vekja sérstakan áhuga þeirra.

Tilgangur okkar með þessu efni er að nemendur fái betri innsýn inn í tímaröð atburða í heimssögunni sem og að landafræði sögunnar verði þeim ljósari. Í því sambandi bjóðum við upp á valin kort á vefsíðunni sem fylgir bókunum.

Lesum söguna er ný ritröð sem við á Skólavefnum erum að fara af stað með. Þar einblínum við á mannkynssöguna en sjónarhornið er nokkuð frábrugðið því sem nemendur eiga að venjast. Í þessari fyrstu bók er valið efni úr sögu fornaldar kynnt í stuttum en hnitmiðuðum ein...

Velkomin á nýja vefinn okkar!Við á Skólavefnum erum alltaf að reyna að bæta okkur og nú höfum við aukið vefinn umtalsver...
18/11/2025

Velkomin á nýja vefinn okkar!

Við á Skólavefnum erum alltaf að reyna að bæta okkur og nú höfum við aukið vefinn umtalsvert og endurskipulagt hann frá a til ö. Er það von okkar að þessi breyting geri öllum notendum, bæði gömlum og nýjum, auðveldara að finna það efni sem hentar þeim og þeir leita að.

https://skolavefurinn.is/

Skólavefurinn er stærsti námsvefur landsins og hefur í 19 ár verið leiðandi í gerð námsefnis á netinu. Á vefnum er að finna ógrynni námsefnis í fjölmörgum greinum sem hægt er að vinna í tölvunni eða prenta út. Um 95% allra grunnskóla á landinu eru með áskrift og sækja n....

KJALNESINGA SAGAÍslendingasögur með nýju sniðihttps://nytt.skolavefurinn.is/islenska/bokmenntir/kjalnesinga-sagaUndanfar...
25/10/2025

KJALNESINGA SAGA

Íslendingasögur með nýju sniði

https://nytt.skolavefurinn.is/islenska/bokmenntir/kjalnesinga-saga

Undanfarið hefur mikið verið rætt um að nemendur fari á mis við bókmenntaarf okkar og þá ekki síst Íslendingasögurnar vegna þess að þær séu of erfiðar til lestrar. Geta menn haft mismunandi skoðanir á því.

Við á Skólavefnum höfum á undanförnum misserum boðið upp á nýjan valkost í þessu sambandi en það eru sögur í styttri og einfaldari gerð þannig að sem flestir geti notið þeirra. Höfum við útbúið Gunnlaugs sögu ormstungu, Grettis sögu og Laxdælu í þessari gerð og nú bætist Kjalnesingasaga við.

Efnið er hugsað sem brú á milli árganga þar sem textinn sjálfur er einfaldaður og styttur án þess þó að það komi niður á sögunni sjálfri. Góð verkefni fylgja, bæði gagnvirk og til útprentunar, og þá fylgja skýringar og kennsluaðstoð fyrir kennara.

https://nytt.skolavefurinn.is/islenska/bokmenntir/kjalnesinga-saga

ÞJÁLFUN Í LESTRI OG LESSKILNINGI
Söguna má nota bæði sem efni til að þjálfa lestur og lesskilning hjá yngri nemendum sem og til að kenna á eldri stigum í íslensku.

KYNNING Á ÍSLENDINGASÖGUM
Þá er tilvalið að nota efnið þegar kynna á Íslendingasögur eldri nemendum. Það hefur víða tíðkast meðal þjóða að kynna eldri bókmenntaverk á einfaldan og aðgengilegan hátt til að slíkar gersemar fari ekki forgörðum, og þyrftum við hér heima kannski að gera meira af því.

HEIMALESTUR MEÐ FORELDRUM
Þá gætu foreldrar séð sér leik á borði og lesið þetta efni heima með börnum sínum því það hentar í sjálfu sér öllum aldurshópum. Þannig slá foreldrar og aðrir aðstandendur tvær flugur í einu höggi: hjálpa börnunum að ná sem bestum tökum á lestri og veita þeim innsýn í dýrmætan menningararf. Góð samverustund það.

FLETTIBÓK – PDF – VEFSÍÐA
Efnið er hægt að nálgast sem flettibók, pdf og í vefsíðu þar sem boðið er upp á fjölvalsspurningar með hverjum kafla.

UM KJALNESINGA SÖGU
Í Kjalnesinga sögu er greint frá Búa Andríðssyni, örlögum hans og ástum. Þetta er mikil átakasaga, stundum afar ævintýraleg og ýkjukennd. En hún býr yfir töfrum sem gera hana þess virði að vera lesin. Við kynnumst þarna dreng sem ráðandi öfl í samfélaginu leika illa. Á nútímamáli heitir það að vera lagður í einelti. En með hjálp fóstru sinnar og annarra vina og frænda nær hann að þroskast og dafna.
Þessi spennusaga hefur eðlilega verið mikið lesin í skólum landsins, og nú viljum við gera hana aðgengilega nemendum í stuttri og einfaldaðri gerð til að sem flestir geti fengið að njóta hennar. Ástæðan er einfaldlega sú að mörgum nemendum hefur reynst fremur erfitt að lesa frumtexta sögunnar; sá texti er næstum átta hundruð ára gamall.

Sagan er í fjórtán stuttum köflum sem greina frá aðalviðburðum sögunnar. Köflunum fylgja gagnvirkar spurningar, verkefni og skýringar.

Við óskum ykkur góðrar skemmtunar! Minnumst þess að sagan af Búa og Ólöfu vænu mun fylgja þeim, sem hana les, ævina á enda. Og það skiptir okkur máli því að fornsögur okkar eru nokkurs konar sameiginlegur arfur sem við erum stöðugt að fást við og vinna úr. Hvar værum við stödd ef við hefðum ekki Guðrúnu Ósvífursdóttur, Hallgerði langbrók eða Gretti sterka til að tala um og tengja okkur við? Til glöggvunar er yfirlit aftast í textanum yfir persónur sögunnar og tengslin á milli þeirra. Þá fylgja hverjum kafla verkefni og gagnvirkar spurningar.

Undanfarið hefur mikið verið rætt um að nemendur fari á mis við bókmenntaarf okkar og þá ekki síst Íslendingasögurnar vegna þess að þær séu of erfiðar til lestrar. Geta menn haft mismunandi skoðanir á því.

Stærðfræðigaman - Bók 1 og 2Stærðfræðigaman er ný ritröð í stærðfræði sem við erum að fara af stað með. Ætlum við þar að...
09/10/2025

Stærðfræðigaman - Bók 1 og 2

Stærðfræðigaman er ný ritröð í stærðfræði sem við erum að fara af stað með. Ætlum við þar að útbúa skýrar og aðgengilegar bækur fyrir öll aldursstig.

https://nytt.skolavefurinn.is/staerdfraedi/staerdfraedigaman

Kynnum bók 1 og 2. Er hún hugsuð fyrir 1. og 2. bekk en í henni er hnykkt á þeim helstu þáttum sem liggja til grundvallar þeim stigum. Er bókin fyrst og fremst hugsuð sem viðmið og leiðsögn fyrir nemendur og foreldra til að átta sig betur á hvar hægt sé að bæta sig. Hún er unnin út frá Aðalnámskrá grunnskóla og völdum skólanámskrám auk þess sem tekið er mið af nokkrum erlendum námskrám í stærðfræði fyrir viðkomandi námsstig.

Ef óskað er nánari upplýsinga eða útskýringa er hægt að hafa samband við Skólavefinn í síma 551 6400 eða senda tölvupóst á [email protected]

LESKAFLAR Í NÁTTÚRUVÍSINDUM3 nýjar bækur til að efla lesskilning og æfa lestur.https://nytt.skolavefurinn.is/natturuvisi...
14/09/2025

LESKAFLAR Í NÁTTÚRUVÍSINDUM
3 nýjar bækur til að efla lesskilning og æfa lestur.

https://nytt.skolavefurinn.is/natturuvisindi/natturuvisindi-baekur

Leskaflar í náttúruvísindum er ný ritröð þar sem áhersla er lögð á að bjóða upp á öðruvísi lestexta en nemendur eru vanir. Hver lestexti tengist gjarnan fleiri en einni námsgrein og opnar þannig dyr í ýmsar áttir. Markmiðið er að vekja athygli á alls kyns fyrirbærum sem nemendur fara kannski á mis við annars staðar. Einnig gæti hentað vel að grípa til þessara texta til að efla lesskilninginn og æfa lesturinn.

Megintilgangurinn er þannig að gefa kost á nýjum möguleika í lestrarþjálfun sem í leiðinni eykur þekkingu lesandans á alls kyns fyrirbærum í náttúrunni.

Við ákváðum að hafa opnar spurningar og fjölvalsspurningar hlið við hlið. Þannig festa nemendur sér efnið sem best í minni auk þess sem þeir geta notað vísbendingar úr fjölvalsspurningum til að finna lausnir við opnu spurningunum.

Leskaflar í náttúruvísindum er ný ritröð þar sem áhersla er lögð á að bjóða upp á öðruvísi lestexta en nemendur eru vanir.

PRÓFASÍÐAN 2025 Þúsundir æfinga og kennslumyndbanda til þjálfunar fyrir vorprófin.  Við viljum nota tækifærið og minna á...
17/05/2025

PRÓFASÍÐAN 2025

Þúsundir æfinga og kennslumyndbanda til þjálfunar fyrir vorprófin. Við viljum nota tækifærið og minna á prófasíðuna okkar, sem hefur á undanförnum árum hjálpað mörgum. Þar er að finna fjölda gagnlegra æfinga í íslensku, stærðfræði og ensku fyrir ólík aldursstig.

Skólavefurinn er stærsti námsvefur landsins og hefur í 19 ár verið leiðandi í gerð námsefnis á netinu. Á vefnum er að finna ógrynni námsefnis í fjölmörgum greinum sem hægt er að vinna í tölvunni eða prenta út. Um 95% allra grunnskóla á landinu eru með áskrift og sækja n....

Nýja leikskólasíðan!https://skolavefurinn.is/app/valmynd/leikskolasidanÞað er með miklu stolti að við hleypum af stokkun...
19/01/2025

Nýja leikskólasíðan!

https://skolavefurinn.is/app/valmynd/leikskolasidan

Það er með miklu stolti að við hleypum af stokkunum nýrri síðu sem sérstaklega er hugsuð fyrir börn á leikskólaaldri. Þar er boðið upp á gríðarlega fjölbreytt efni bæði til útprentunar og gagnvirkt. Er bæði um að ræða nýtt efni og eldra efni en allt eldra efni er þó endurbætt og endurunnið. Þessi síða er einföld í uppsetningu og notkun og ættu allir að finna efni við hæfi.

Skólavefurinn er stærsti námsvefur landsins og hefur í 19 ár verið leiðandi í gerð námsefnis á netinu. Á vefnum er að finna ógrynni námsefnis í fjölmörgum greinum sem hægt er að vinna í tölvunni eða prenta út. Um 95% allra grunnskóla á landinu eru með áskrift og sækja n....

BÓK 1,2 OG 3 - 20. ÖLDIN - NÝR VALKOSTUR Í SÖGUKENNSLUhttps://skolavefurinn.is/app/islenska/lesskilningur/20-oldinBÓK 3 ...
02/03/2024

BÓK 1,2 OG 3 - 20. ÖLDIN - NÝR VALKOSTUR Í SÖGUKENNSLU

https://skolavefurinn.is/app/islenska/lesskilningur/20-oldin

BÓK 3 komin! - Núna bjóðum við upp á nýjan valkost í sögukennslu sem viðvonum að falli bæði kennurum og nemendum í geð og stuðli að auknum áhuga ásögu.

Efnið samanstendur af stuttum lesköflum, og færhvert ár sinn kafla. Hægt er að nýta efnið á fjölbreyttan hátt. Það er t.a.m.tilvalið sem grunnefni eða kveikja að nánari athugun á tilteknum þáttum, en þaðgetur líka nýst eitt og sér til að gefa nemendum ákveðna svipmynd af 20. öldinni.Og alltaf má svo nýta efni sem þetta til að þjálfa almennan lestur oglesskilning.

Öllum köflum fylgja bæði opnar spurningar ogfjölvalsspurningar og er þar oft um nánast sömu spurningar að ræða; það erokkar trú að þannig festist efnisatriði sem best í minni.

Í þessi hefti um fyrri hluta 20. aldarinnarhöfum við valið það sem við teljum áhugavert en eins og gefur að skilja sýnistsitt hverjum í því efni.

Gjarnan hefur uppistaðan í sögukennslu tengststjórnmálum, valdatafli þjóðarleiðtoga og stríðsbrölti. Við förum þá leið einnigað einhverju marki, en við leggjum líka aðrar áherslur, enda af nógu að taka. Viðleggjum t.a.m. mikið upp úr því að kynna listir og listamenn sem höfðu mótandiáhrif á samtíma sinn, þar á meðal ungu kynslóðina.

Tuttugasta öldin var öld tveggja heimsstyrjaldameð öllum þeim hörmungum sem þeim fylgdu. Hún var einnig öld ótrúlegra framfaraí tækni og vísindum. Auk þess blómstruðu á öldinni listir, menning og íþróttir.

Söguþekking, af hvaða tagi sem hún er, auðveldarokkur að takast á við okkur sjálf og þá tíma sem við lifum.

KONUR Í ÍSLENDINGASÖGUNUMhttps://nytt.skolavefurinn.is/islenska/almennt/konur-islendingasogurNú bjóðum við upp á stutt e...
09/02/2024

KONUR Í ÍSLENDINGASÖGUNUM
https://nytt.skolavefurinn.is/islenska/almennt/konur-islendingasogur

Nú bjóðum við upp á stutt en hnitmiðað námsefni þar sem við kynnum 6 merkar konur sem sagt er frá í Íslendingasögunum: Auður djúpúðga, Guðrún Ósvífursdóttir, Guðríður Þorbjarnardóttir, Hallgerður langbrók, Helga Bárðardóttir og Þuríður á Fróðá.

Efnið er byggt upp á svipaðan hátt og í Litabókunum, þ.e. þið getið nálgast það í ólíkum sniðum: sem flettibók, í pdf og/eða í vefútgáfu. Fjölbreytt verkefni fylgja.

Já, hér er hægt að þjálfa lestur og lesskilning á markvissan og uppbyggilegan hátt og kynnast Íslendingasögunum í nýju ljósi. Hentar bæði í skólastofunni og fyrir einstaklingsmiðað nám heima fyrir.

Heildstætt námsefni í íslensku frá 1. upp í 4. bekkVið viljum minna ykkur á þetta heildstæða námsefni í íslensku frá 1. ...
22/08/2023

Heildstætt námsefni í íslensku frá 1. upp í 4. bekk

Við viljum minna ykkur á þetta heildstæða námsefni í íslensku frá 1. og upp í 4. bekk sem notið hefur gríðarlegra vinsælda hjá þeim sem hafa kennt það.

1. bekkur - Stafir og orð

Námsefnið Stafir og orð er hugsað fyrir yngstu nemendurna en þar er unnið með stafina og fyrstu skrefin í lestri. Þá er þar einnig að finna stutt þjálfunarverkefni í skrift auk annarra æfinga.

2. bekkur - Orð og setningar

Í þessum bókum er lestur og lesskilningur í öndvegi um leið og farið er yfir ýmis atriði sem falla undir málfræði, hlustun, ritun og almenna málnotkun.

3. bekkur - Setningar og málsgreinar

Hér um að ræða þrjár bækur sem saman telja um 150 verkefni á 200 blaðsíðum. Efnið er bæði fjölbreytt og skemmtilegt þannig að sem flestir geta haft bæði gagn og gaman af. Megináhersla er á lesskilning og málfræði í einföldum búningi. Þá er töluvert af einföldum og aðgengilegum verkefnum til að krydda efnið og samþætta það öðrum áhugasviðum.

4. bekkur - Málsgreinar og mas

Málsgreinar og mas er heildstætt námsefni í íslensku hugsað fyrir 4. bekk og heldur áfram þar sem ritröðinni Setningar og málsgreinar sleppir.

---------
https://nytt.skolavefurinn.is/namsgrein/islenska-yngsta-stig

Skólavefurinn er stærsti námsvefur landsins og hefur í 19 ár verið leiðandi í gerð námsefnis á netinu. Á vefnum er að finna ógrynni námsefnis í fjölmörgum greinum sem hægt er að vinna í tölvunni eða prenta út. Um 95% allra grunnskóla á landinu eru með áskrift og sækja n....

NÝTT STÓRT VERK! NÁMSEFNI UM FYRRI HEIMSSTYRJÖLDINA---https://nytt.skolavefurinn.is/.../fyrri-heimsstyrjoldin---Nú bjóðu...
27/04/2023

NÝTT STÓRT VERK! NÁMSEFNI UM FYRRI HEIMSSTYRJÖLDINA
---
https://nytt.skolavefurinn.is/.../fyrri-heimsstyrjoldin
---
Nú bjóðum við upp glænýtt heildstætt efni um fyrri heimsstyrjöldina hvort heldur til almennrar sögukennslu eða til að efla lesskilning.
Fyrri heimsstyrjöldin var ásamt með síðari heimstyrjöldinni sá atburður sem hvað mest mótaði tuttugustu öldina og þann veruleika sem við búum við í dag. Til að skilja betur samtímann er nauðsynlegt að kunna á henni skil.
-Fyrir hverja er efnið?
Efnið er fyrst og fremst hugsað sem söguefni fyrir efstu bekki grunnskólans en mætti hæglega nota sem þjálfunarefni í lesskilningi á á öðrum stigum ef út í það er farið. Þá hentar efnið einnig framhaldsskólum.
-Fimm bækur
Efnið skiptist í fimm bækur og má segja að fyrstu tvær bækurnar séu heildstætt efni þar sem farið er yfir aðdraganda styrjaldarinnar, gang hennar og afleiðingar. Hinar þrjár bækurnar eru ítarefni fyrir þá sem vilja fræðast enn frekar um meginmálið.
-Uppsetning
Efnið er hægt að prenta út en svo er efnið einnig aðgengilegt á góðri vefsíðu þar sem hægt er að hlusta á það upplesið og glíma við gagnvirkar fjölvalsspurningar.
Þá munum við innan skamms bjóða upp á myndbandsviðtöl við einstaklinga sem upplifðu átökin á eigin skinni.
---
https://nytt.skolavefurinn.is/.../fyrri-heimsstyrjoldin
---

Nú bjóðum við upp glænýtt heildstættefni um fyrri heimsstyrjöldina hvort heldur til almennrar sögukennslu eða tilað efla lesskilning. Fyrri heimsstyrjöldin var ásamt meðsíðari heimstyrjöldinni sá atburður sem hvað mest mótaði tuttugustu öldina og þannveruleika sem við búum ...

Address

Reykjavík

Opening Hours

Monday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 12:00
Friday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00

Telephone

+3545516400

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skólavefurinn.is posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Skólavefurinn.is:

Share