Flokkur fólksins

Flokkur fólksins Flokkur fólksins er málsvari þeirra sem búa við fátækt og óréttlæti á Íslandi.

Inga Sæland mælti í gær í annað sinn fyrir frumvarpi til nýrra heildarlaga um barnavernd.Frumvarpið var lagt fram á síða...
16/09/2026

Inga Sæland mælti í gær í annað sinn fyrir frumvarpi til nýrra heildarlaga um barnavernd.

Frumvarpið var lagt fram á síðasta þingi og hafði farið í gegnum ítarlega umfjöllun velferðarnefndar. Nefndarálit lá fyrir, en ekki náðist samkomulag við stjórnarandstöðuna um að ljúka afgreiðslu málsins fyrir þinglok.

Nú hefur málið verið lagt fram að nýju, með breytingum sem taka meðal annars mið af fyrri nefndarvinnu og umsögnum. Með frumvarpinu er meðal annars verið að styrkja réttindi barna, bæta stuðning við ungmenni sem annars geta fallið á milli kerfa og skýra ábyrgð og úrræði innan barnaverndar.

15/09/2026

400 milljónir króna á dag fara nú í vaxtagreiðslur.

Sigurjón Þórðarson var í Silfrinu og nefndi þar að ná verði föstum tökum á fjármálum ríkisins og draga úr vaxtabyrðinni. Til dæmis muni bankaskatturinn verða hækkaður um 6 milljarða króna. Afkoma bankanna hafi verið 94 milljarðar króna á síðasta ári og þeir geti því lagt sitt af mörkum.

Þegar vísitalan skilar sér í veskiðStundum leynast miklar breytingar á bak við heldur þurrt orðalag í fjárlagafrumvarpi....
15/09/2026

Þegar vísitalan skilar sér í veskið

Stundum leynast miklar breytingar á bak við heldur þurrt orðalag í fjárlagafrumvarpi. Slíka breytingu er að finna í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár.

Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að elli- og örorkulífeyrir og bætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð hækki um 7,3 prósent um næstu áramót. Samkvæmt gamla fyrirkomulaginu hefðu þessar greiðslur hækkað um fjögur prósent. Munurinn er 3,3 prósentustig.

🔹 Hvað breyttist?
Þetta gerðist ekki af sjálfu sér heldur vegna áralangrar baráttu Flokks fólksins og stuðnings samstarfsflokka okkar í ríkisstjórn. Þrátt fyrir harða andstöðu þingmanna Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Framsóknar samþykkti Alþingi breytingarnar síðastliðið vor sem tryggði þessa hækkun.

Samkvæmt lögunum skulu greiðslur almannatrygginga taka mið af þróun launavísitölunnar frá 1. júní 2025. Greiðslur almannatrygginga fylgja því héðan í frá þróun launa með skýrari hætti en áður. Jafnframt er tryggt að þær hækki aldrei minna en verðlag.

Þetta kann að hljóma eins og tæknileg breyting en hún skiptir miklu máli. Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir 3,6 prósenta verðbólgu á næsta ári og fjögurra prósenta samningsbundnum launahækkunum á vinnumarkaði. Engu að síður hækka greiðslur almannatrygginga um 7,3 prósent um áramótin.

🔹 Viðkvæmir hópar ekki skildir eftir
Þetta snýst um annað og meira en prósentur. Að baki tölunum er fólk sem reiðir sig á greiðslur almannatrygginga til framfærslu. Markmiðið er að eldri borgarar, fatlað fólk og öryrkjar sitji ekki eftir þegar laun hækka á almennum vinnumarkaði.

Þarna liggur einmitt mikilvægi breytingarinnar. Áður var miðað við áætlaða launaþróun en ekki raunverulega þróun launavísitölunnar frá ákveðnum viðmiðunardegi. Það g*t leitt til þess að greiðslurnar fylgdu ekki þeirri launaþróun sem raunverulega hafði orðið. Nýja fyrirkomulagið er bæði skýrara og gagnsærra.

Munurinn sést strax í fjárlagafrumvarpinu. Hefði gamla aðferðin gilt áfram væri hækkunin fjögur prósent um næstu áramót en ekki 7,3 prósent.

Atvinnuleysisbætur falla ekki undir þessa vísitölutengingu. Þær eiga samkvæmt frumvarpinu að hækka um fjögur prósent á næsta ári, í samræmi við áætlaðar kjarasamningsbundnar launahækkanir. Samanburðurinn sýnir vel hvaða áhrif nýja reglan hefur.

🔹 Löng barátta
Breytingin markar því mikinn áfangasigur í baráttu Flokks fólksins allt frá stofnun flokksins fyrir þessum breytingum. Hér er komin varanleg lausn og skýrt viðmið þannig að ekki þarf að þrefa um það á hverju ári við hvað eigi að miða.

Um þetta mál, eins og önnur mál sem ríkisstjórnin stendur að, var fullkomin samstaða innan ríkisstjórnarflokkanna.

---
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir
þingmaður Flokks fólksins

Það hefur komið fram í umræðunni að til að tryggja festu og samfellu í þróun starfsemi á Landspítala sem jafnframt er há...
15/09/2026

Það hefur komið fram í umræðunni að til að tryggja festu og samfellu í þróun starfsemi á Landspítala sem jafnframt er háskólasjúkrahús, þurfi að hafa hátt hlutfall lækna þar í fullu starfi. Svör heilbrigðisráðherra við fyrirspurn minni gætu nýst til frekari umræðu um þessi mál.

Sjá nánar ⬇️

Fleiri fötluð börn og ungmenni eiga að fá tækifæri til að stunda íþróttir í sínu nærumhverfi.Inga Sæland ræddi verkefnið...
14/09/2026

Fleiri fötluð börn og ungmenni eiga að fá tækifæri til að stunda íþróttir í sínu nærumhverfi.

Inga Sæland ræddi verkefnið Allir með og þróun íþróttastarfs fatlaðra á fundi með Andrew Parsons, formanni Alþjóðaólympíuráðs fatlaðra. Markmið verkefnisins er að fjölga tækifærum fatlaðra til íþróttaiðkunar þannig að öll börn og ungmenni geti tekið þátt í samræmi við óskir sínar og þarfir.

Sjá nánar í athugasemdum ⬇

Ragnar Þór Ingólfsson hyggst leggja fram 14 mál á Alþingi í vetur sem snerta daglegt líf fjölda fólks um land allt. Alls...
14/09/2026

Ragnar Þór Ingólfsson hyggst leggja fram 14 mál á Alþingi í vetur sem snerta daglegt líf fjölda fólks um land allt. Alls eru það 13 frumvörp og ein þingsályktunartillaga.

Meðal þess sem lagt verður til eru breytingar sem eiga að auka öryggi og fyrirsjáanleika á leigumarkaði, styrkja þjónustu við fatlað fólk, bæta réttindi lífeyrisþega og auka vernd launafólks. Þar má meðal annars nefna bann við mánaðarlegri vísitöluhækkun á verði leigu, sérstaka eingreiðslu til tekjulágra lífeyrisþega í desember og viðurlög við brotum á lágmarkskjörum samkvæmt kjarasamningum.

Sjá nánar í athugasemdum ⬇

Vöfflukaffið snýr aftur og verður á sama tíma og áður, á milli 13 og 15 í dag í Fjörgyn 1 (Grafarvogskirkju). Það er hei...
13/09/2026

Vöfflukaffið snýr aftur og verður á sama tíma og áður, á milli 13 og 15 í dag í Fjörgyn 1 (Grafarvogskirkju).

Það er heitt á könnunni og nóg af bílastæðum. Allir eru hjartanlega velkomnir. Sjáumst á eftir!

Meira rými og betri aðstaða fyrir verknám á Suðurnesjum️Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist upp úr áramótum við 1.8...
13/09/2026

Meira rými og betri aðstaða fyrir verknám á Suðurnesjum️

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist upp úr áramótum við 1.800 fermetra stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Stækkuninni er ætlað að bæta aðstöðu nemenda og kennara, efla verk og starfsnám á svæðinu og styrkja tengsl námsins við atvinnulífið.

Sjá nánar ⬇

11/09/2026

Hvernig fannst þér síðasta ríkisstjórn taka á málefnum hælisleitenda?

Breytingar í málefnum hælisleitenda voru skilyrði okkar fyrir ríkisstjórnarsamstarfi.
Reglur hertar, eftirlit aukið og hælisumsóknum fækkað verulega.

Address

Fjörgyn 1
Reykjavík
112

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00
Saturday 09:00 - 16:00
Sunday 09:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Flokkur fólksins posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Flokkur fólksins:

Shortcuts

Share