Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn

Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn Þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla Íslands sem sinnir upplýsingaþjónustu á sviði vísinda og fræða, stjórnsýslu og atvinnulífs og lista- og menningarmála.

Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar, teymisstjóri á Landsbókasafni segir í viðtali við Morgunblaðið frá mikilvægi skyldus...
08/05/2026

Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar, teymisstjóri á Landsbókasafni segir í viðtali við Morgunblaðið frá mikilvægi skylduskila og hvernig þau gera okkur kleift að halda utan um, varðveita og miðla mikilvægum arfi.

Sú skylda er að að öllu útgefnu prentuðu ritmáli á Íslandi skuli skilað í minnst tveimur eintökum til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Þetta er ákvæði í lögum sem á sér langa sögu og þykir mikilvægt.

Í tilefni þess að tilnefningar til Maístjörnunnar 2026 voru gerðar opinberar skrifaði Lestrarklefinn grein um tilnefndar...
04/05/2026

Í tilefni þess að tilnefningar til Maístjörnunnar 2026 voru gerðar opinberar skrifaði Lestrarklefinn grein um tilnefndar bækur. Upplestur úr ljóðabókunum verður í Þjóðarbókhlöðu þann 6. maí kl. 11:30. Verið velkomin!

Maístjarnan eru mikilvæg verðlaun. Það þarf að huga að ljóðinu og það gleður mitt ljóðelska hjarta að því sé sérstaklega fagnað. Í ár fengu s*x frábærar ljóðabækur tilnefningu til verðlaunanna sem Landsbókasafn Íslands og Rithöfundasambandið standa fyrir. Sjötíu lj...

Tónlistarsafn og hljóð- og myndsafn eru á 4. hæð Þjóðarbókhlöðu. Þar hefur verið komið fyrir lítilli sýningu í minningu ...
28/04/2026

Tónlistarsafn og hljóð- og myndsafn eru á 4. hæð Þjóðarbókhlöðu. Þar hefur verið komið fyrir lítilli sýningu í minningu Björgvins Halldórssonar.

Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns verða veitt í tíu...
27/04/2026

Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns verða veitt í tíunda sinn í maí.

Tilnefningar til Maístjörnunnar vegna ljóðabóka útgefinna 2025 voru kynntar við athöfn í Gunnarshúsi í dag.

Tilnefndar bækur eru:

Fyrir vísindin eftir Önnu Rós Árnadóttur. Útgefandi: Benedikt

Fimm ljóð eftir Eirík Örn Norðdahl. Útgefandi: Mál og menning

Þyngsta frumefnið eftir Jón Kalman Stefánsson. Útgefandi: Benedikt

Mara kemur í heimsókn eftir Natöshu S. Útgefandi: Benedikt

Postulín eftir Sunnu Dís Másdóttur. Útgefandi Mál og menning

Félagsland eftir Völu Hauks. Útgefandi: Mál og menning

Tilnefndar bækur eru allar til sýnis í anddyri Þjóðarbókhlöðunnar.

Gjaldgengar voru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2025, alls 70, sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og fékk dómnefnd þær til umfjöllunar. Dómnefnd skipa Áslaug Jónsdóttir fyrir hönd Rithöfundasambandsins, Tómas Ævar Ólafsson fyrir hönd Landsbókasafnsins og Sveinn Yngvi Egilsson fyrir hönd Háskóla Íslands.

Verðlaunin verða veitt við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni þann 20. maí.

Maístjarnan er einu verðlaun á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Verðlaununum er ætlað að vekja sérstaka athygli á blómlegri ljóðabókaútgáfu á Íslandi.

Tilnefndar bækur eru nú á sýningu í Þjóðarbókhlöðu.

Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar, fagstjóri hjá Landsbókasafninu, minnir á lög um skylduskil í kjölfar umræðu um bækur...
16/04/2026

Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar, fagstjóri hjá Landsbókasafninu, minnir á lög um skylduskil í kjölfar umræðu um bækur í ruslagámum. Hún telur að þessi lög geti friðað samvisku fólks sem þarf að henda bókum, þar sem lögin tryggja að eintök af útgefnum verkum varðveitist.

„Þótt þitt ein­tak af bók fari í ruslið þá glatast hún ekki að eilífu,“ segir Kristjana Mjöll Jóns­dóttir Hjörvar, fag­stjóri hjá Lands­bóka­safninu, sem í kjölfar um­ræðu um fagur­bók­menntir í Sorpu­gámum telur rétt að minna á lög um skyldu­skil sem mögu...

Samningar Landsaðgangs um birtingar í blönduðum tímaritumBirgir Björnsson, verkefnisstjóri Landsaðgangs18. mars kl. 15:0...
17/03/2026

Samningar Landsaðgangs um birtingar í blönduðum tímaritum
Birgir Björnsson, verkefnisstjóri Landsaðgangs
18. mars kl. 15:00–15:30
Tungumál: íslenska

Á vegum Landsaðgangs (hvar.is) hefur Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn gert samninga við fjóra útgefendur (Elsevier, Karger, Sage og Springer Nature) um birtingar í opnum aðgangi í blönduðum tímaritum (e. hybrid journals).

Stutt almenn kynning á möguleikum íslenskra rannsakenda og doktorsnema að birta greinar hjá þessum útgefendum.

Nánari upplýsingar um kynninguna má finna á https://ugla.hi.is/vidburdir/SkodaVidburd.php?sid=1448&vidburdur_id=11562

EndNote kynning fyrir rannsakendur og doktorsnema HÍ11. mars kl. 15:00-15:30  Tungumál: íslenska EndNote er hugbúnaður s...
09/03/2026

EndNote kynning fyrir rannsakendur og doktorsnema HÍ
11. mars kl. 15:00-15:30
Tungumál: íslenska

EndNote er hugbúnaður sem notaður er til að halda utan um heimildir og heimildaskrár.
Sýnt verður hvernig nýta má EndNote til að halda utan um heimildir og tilvísanir í ritverkum. Einnig verður sýnt hvernig á að setja heimildir inn í forritið úr ýmsum gagnasöfnum.
Til að kynningin nýtist öllum sem best er æskilegt að hver og einn setji upp EndNote-hugbúnaðinn í sinni tölvu áður en kynningin hefst. Hægt er að fá hugbúnaðinn hér: https://thjonusta.hi.is/hc/is-is/articles/26744074011035-EndNote

Kennari: Erlendur Már Antonsson, upplýsingafræðingur hjá Lbs-Hbs

Nánari upplýsingar um kynninguna má finna á https://ugla.hi.is/vidburdir/SkodaVidburd.php?sid=1448&vidburdur_id=11541

Viðurkenning Hagþenkis fyrir útgáfuárið 2025 var afhent í Þjóðarbókhlöðu miðvikudaginn 4. mars. Viðurkenninguna hlaut Va...
05/03/2026

Viðurkenning Hagþenkis fyrir útgáfuárið 2025 var afhent í Þjóðarbókhlöðu miðvikudaginn 4. mars. Viðurkenninguna hlaut Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir fyrir bókina Meyjar og völd. Rímur og saga af Mábil sterku. Í umsögn dómnefndar segir m.a. "Rímur af Mábil sterku hafa lengi legið óbættar hjá garði og hafa hvorki verið rannsakaðar né gefnar út fyrr en nú og þótt það sama megi segja um fleiri rímur er sérstaða þessara rímna sú að kona er aðalsöguhetjan og því má segja að þetta sé einnig umtalsvert innlegg í hina vanrannsökuðu sögu kvenna í íslenskum bókmenntum." Verðlaunaritið verður til sýnis í Þjóðarbókhlöðu næstu mánuði.

Verkefnavaka Háskóla Íslands verður haldin fimmtudaginn 26. febrúar frá 17-21 í útibúi Lbs-Hbs í Sögu. Á verkefnavöku ge...
20/02/2026

Verkefnavaka Háskóla Íslands verður haldin fimmtudaginn 26. febrúar frá 17-21 í útibúi Lbs-Hbs í Sögu. Á verkefnavöku geta allir nemendur sem eru með verkefni í smíðum komið og sótt stuðning og aðstoð.

Vakan er samstarfsverkefni Lbs-Hbs, Nemendaþjónustu HÍ, Ritvers og Heilbrigðisvísindabókasafns LSH. Sjá nánar á https://leidarvisar.is/verkefnavaka

Address

Arngrímsgata 3
Reykjavík
107

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn:

Share

Category