Hver erum við?
Rekstrarumsjón er hafnfirskt fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í umsjón með rekstri húsfélaga ásamt því að veita þjónustu og ráðgjöf varðandi útleigu fasteigna. Stofnendur Rekstrarumsjónar hafa áralanga og víðtæka reynslu þegar kemur að útleigu, viðhaldi og rekstri fasteigna.
Með þjónustu Rekstrarumsjónar er allri þjónustu húsfélagsins haldið til haga á einum stað og má þannig ná fram hagræðingu og lækka rekstrarkostnað umtalsvert.
Endilega kynntu þér þá þjónustu sem er í boði á heimasíðu okkar eða sendu okkur fyrirspurn annað hvort hér á facebook eða með tölvupósti og við svörum um hæl.