Sagatrail Iceland

Sagatrail Iceland Sagatrail Iceland - The Icelandic Saga and Heritage Association promotes the historical and cultural background of Iceland.

Samtök um söguferðaþjónustu (SSF) voru stofnuð árið 2006. Þau eru samráðsvettvangur aðila er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi, einkum hvað varðar markaðssetningu, gæði og fagmennsku.

15/08/2026
15/08/2026

Sunnudaginn 16. ágúst kl 13:00 verður boðið uppá listamannaspjall á safninu að Hnjóti í Örlygshöfn með Hafdísi Helgadóttur þar sem hún leiðir gesti í gegnum sumarsýningu safnsins. FLÆÐAMÁL Á sýningunni má sjá geometrísk form, Kufic ferninga og hringlaga form, unnin með m...

15/08/2026
15/08/2026

Náttúruperla í hjarta Reykjavíkur. Viðeyjarferjan siglir daglega á sumrin en aðeins um helgar á veturna.

15/08/2026

Við bjóðum ykkur velkomin á næsta Farskóla FÍSOS sem haldinn verður á Ísafirði dagana 7.-9. október 2026. Venju samkvæmt er dagskrá Farskólans blanda af fyrirlestrum, málstofum og skoðunarferð um svæðið. Árshátíð FÍSOS verður haldin fimmtudaginn 8. október. Við biðjum y...

15/08/2026

Gúndi Geithafur er mættur á bókasafnið 🐐
Komdu endilega við á bókasafninu og náðu í vegabréf og kort af leið Gúnda frá Hungur móum yfir í Grænuhlíð.
Eftir hverja 15 mínútur af lestri kemst Gúndi áfram um einn reit og eftir hvern klukkutíma af lestri getið þið mætt á bókasafnið og fyllt út Happamiða.
Í haust drögum við svo úr öllum Happamiðunum og einn heppinn þátttakandi fær frábær verðlaun 🤩
Kíkið endilega við hjá okkur og við hjálpum þér að komast af stað í lestrarátakinu 🌞

https://mmh.hornafjordur.is/copy-of-sumarlestur-2026

/
Summer reading has now started at the library. Come and visit us and we'll help you get started on your reading journey 🌞

15/08/2026

Munur dagsins! Gamall hefillbekkur úr timbri. Kemur úr kjallaranum á vík á bárustíg 13. Ekkert fleira vitað um hann.

15/08/2026
Við óskum Listasafni Íslands til hamingju með íslensku safnaverðlaunin 2026. 🎉
19/05/2026

Við óskum Listasafni Íslands til hamingju með íslensku safnaverðlaunin 2026. 🎉

Listasafn Íslands hlaut Íslensku safnaverðlaunin 2026

Þann 18. maí á Alþjóðlega safnadeginum voru Íslensku safnaverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn. Íslandsdeild Alþjóðaráðs safna (ICOM) og Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) standa saman að verðlaununum, sem eru viðurkenning veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. Forseti Íslands Halla Tómasdóttir afhenti verðlaunin á Kjarvalsstöðum og ríkti mikil gleði meðal safnafólks sem fjölmennti á viðburðinn og fagnaði blómlegri starfsemi safna á Íslandi.

Verðlaunin að þessu sinni hlaut Listasafn Íslands fyrir viðspyrnu gegn málverkafölsun en í umsögn valnefndar segir meðal annars:

"Sýningin Ráðgátan um Rauðmagann og aðrar sögur um eftirlíkingar og falsanir er einstakt og tímabært framlag til íslensks safnastarfs þar sem fræðileg rannsókn, fagleg ábyrgð og hugvitsamleg miðlun sameinast, í þágu almennings. Með því að sýna fölsuð og ófölsuð verk hlið við hlið, opna rannsóknargögn og gera flókið viðfangsefni aðgengilegt tókst með sýningunni að varpa ljósi á viðkvæmt en brýnt málefni á ábyrgan hátt.
[…]
Almenn þekking á íslenskri listasögu er mikilvæg viðspyrna gegn fölsunum og þar hefur Listasafn Íslands lagt sitt lóð á vogarskálarnar með metnaðarfullri og djarfri umfjöllun um viðkvæma þætti innan íslenskrar listasögu sem hafa hingað til ekki hlotið faglega og ítarlega framsetningu og umfjöllun sem þessa."

Þau söfn sem hlutu einnig tilnefningu til verðlaunanna voru Borgarsögusafn fyrir verkefni á sviði inngildingar og öflug tengsl við samfélagið, Minjasafn Austurlands fyrir verkefnið Kjarval á Austurlandi, Stofnun Árna Magnússonar fyrir sýninguna Heimur í orðum og Tækniminjasafn Austurlands fyrir uppbyggingu og endurreisn.

Í valnefnd sátu Birta Guðjónsdóttir, Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir, Hjörtur Þorbjörnsson og Hörður Geirsson. Alma Sigurðardóttir var formaður nefndarinnar.

19/05/2026

Address

Sundagarðar 2
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sagatrail Iceland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Sagatrail Iceland:

Shortcuts

Share