Veðurstofa Íslands

Veðurstofa Íslands Veðurstofa Íslands mælir, rannsakar og miðlar upplýsingum. Höfuðstöðvar Veðurstofunnar eru að Bústaðavegi 7 í Reykjavík. Sími: 522 6000. Tel +354 522 6000.

Hún hefur eftirlit með ástandi og sendir út viðvaranir vegna veðurs, jarðhræringa, ofanflóða og vatnsflóða. Vefur: www.vedur.is Tölvupóstur: [email protected]. The IMO Headquarters lie on Bústadavegur 7, Reykjavik. Website: en.vedur.is. Email: [email protected].

Heiðskírt Ísland séð með ólíkum augum úr geimnumÞað er víðast hvar heiðskírt yfir Íslandi í dag og landið sést því óvenj...
08/09/2026

Heiðskírt Ísland séð með ólíkum augum úr geimnum

Það er víðast hvar heiðskírt yfir Íslandi í dag og landið sést því óvenju vel á þessum fallegu gervitunglamyndum.

Í dag, 8. september, er Alþjóðadagur læsis. Af því tilefni er tilvalið að beina sjónum að vísindalæsi. Það felst meðal annars í því að geta lesið úr myndum og gögnum, skilið hvernig upplýsingarnar verða til og hvað hægt er að álykta af þeim.
Myndirnar þrjár sýna veðurlagið við Ísland með ólíkum mælitækjum og myndvörpum.

1. MODIS True Color, kl. 12:05
Aðalmyndin er tekin með MODIS-mælitæki á pólbrautargervitungli. Hún er sett saman úr mælingum á sýnilegu ljósi og litirnir líkjast því sem mannsaugað sæi úr geimnum. Stór hluti Íslands sést greinilega milli skýjabakkanna og hluti Grænlands er efst til vinstri. Grái flöturinn neðst til hægri er utan þeirrar myndar sem náðist í yfirferðinni.

2. FCI, kl. 13:20
FCI-myndin sameinar mælingar á sýnilegu ljósi, nærinnrauðu ljósi og varmageislun. Litirnir eru því ekki náttúrulegir, heldur valdir til að draga betur fram land, haf og ský. Myndin sýnir jafnframt stærra svæði umhverfis Ísland og hvernig landið liggur milli skýjabakkanna.

3. SEVIRI, innrauð mynd, kl. 13:45
Á innrauðu SEVIRI-myndinni hafa úrkomumælingar veðursjár og upplýsingar um eldingar verið lagðar yfir gervitunglamyndina. Rauðir hringir sýna eldingar síðustu 30 mínúturnar og gulir hringir eldingar 30 til 60 mínútum fyrr. Engar eldingar sjást við Ísland.

Sama landið og sama veðrið birtast þannig á þrjá ólíka vegu. Myndirnar eru fallegar á að líta en sýna líka hvers vegna vísindalæsi skiptir máli. Til að lesa rétt úr þeim þurfum við að vita hvernig þær urðu til, hvað litirnir tákna og hvaða upplýsingar hvert mælitæki gefur.

Borað í Strandartind til að kanna mögulegan sífreraStefnt er að því að flytja bor, búnað og mannskap með þyrlu frá Neska...
08/09/2026

Borað í Strandartind til að kanna mögulegan sífrera

Stefnt er að því að flytja bor, búnað og mannskap með þyrlu frá Neskaupstað til Seyðisfjarðar í dag, ef aðstæður leyfa. Bora á tvær holur, allt að tíu metra djúpar, í urð í Strandartindi og koma fyrir kapli með hitanemum í hvorri þeirra.

Borunin er framhald svokallaðra ERT-mælinga sem fóru fram í sumar. ERT-mælingar eru sérhæfðar leiðnimælingar sem gefa upplýsingar um aðstæður undir yfirborði. Niðurstöðurnar benda til þess að ekki sé samfelldur sífreri í urðinni en útiloka ekki staðbundinn sífrera.

Saman eiga ERT-mælingarnar og hitamælingarnar að gefa sem skýrasta mynd af aðstæðum undir yfirborði og mögulegri skriðuhættu. Hitamælingarnar þurfa að standa yfir í að minnsta kosti heilan vetur áður en hægt verður að draga fyrstu ályktanir af þeim.

Nánar í frétt https://gottvedur.is/vaktin/maelingar-og-boranir-i-strandartindi-a-seydisfirdi/

Við leitum að sérfræðingi í jöklafræði Starfið er spennandi blanda af rannsóknum, vettvangsvinnu og vöktun á jöklum. Ver...
06/09/2026

Við leitum að sérfræðingi í jöklafræði

Starfið er spennandi blanda af rannsóknum, vettvangsvinnu og vöktun á jöklum. Verkefnin tengjast meðal annars áhrifum loftslagsbreytinga, samspili eldgosa og jökla og náttúruvá á borð við jökulhlaup og skriðuföll í jökullón.

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með meistarapróf í jöklafræði, jarðvísindum, verkfræði eða skyldum greinum. Reynsla af forritun, líkanreikningum, landupplýsingakerfum og ferðum í óbyggðum kemur að góðum notum.

Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2026.

Nánari upplýsingar og umsókn:
https://island.is/starfatorg/x-5b262f60-eeb6-4b0a-b9d7-80c2aa46986e

Við leitum að sérfræðingi á sviði jarðskjálftarannsókna 🌋Starfið felur meðal annars í sér að leiða þróun jarðskjálftaúrv...
06/09/2026

Við leitum að sérfræðingi á sviði jarðskjálftarannsókna 🌋

Starfið felur meðal annars í sér að leiða þróun jarðskjálftaúrvinnslu og rauntímaviðvörunarkerfa, efla sjálfvirkni með nýjustu aðferðum vélanáms og taka þátt í rannsóknum og viðbrögðum vegna jarðvár.

Við leitum að framsýnum einstaklingi með doktorsgráðu í jarðskjálftafræði, víðtæka reynslu af úrvinnslu jarðskjálftagagna og góða þekkingu á jarðvá og skjálftavirkni á Íslandi.

Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2026.

Nánari upplýsingar og umsókn:
https://island.is/starfatorg/x-50627b8e-3644-405c-a2be-d88bc5c2e59f

13/08/2026

🌒 Skuggi tunglsins yfir Íslandi og Spáni 🛰️

Þessi mögnuðu myndbönd sýna skugga tunglsins færast yfir jörðina í sólmyrkvanum 12. ágúst. Á öðru þeirra sést skugginn fara yfir Ísland en á hinu yfir bæði Ísland og Spán.

Myndirnar eru teknar með FCI-mælitækinu um borð í sístöðutunglinu Meteosat-12 (MTG-I1) og sýndar sem raunlita RGB-samsetning.

Lokaspáin fyrir sólmyrkvann er komin 🌥️🌑Mestar líkur eru á að sjá til sólar við Breiðafjörð og á Vestfjörðum þegar almyr...
12/08/2026

Lokaspáin fyrir sólmyrkvann er komin 🌥️🌑

Mestar líkur eru á að sjá til sólar við Breiðafjörð og á Vestfjörðum þegar almyrkvinn gengur yfir. Á suðvesturhorninu verða öflugir skúrir og skýjað, en með heppni gætu myndast g*t í skýjahuluna á réttu augnabliki.

Í deildarmyrkvanum eru mestar líkur á að sjá til sólar við Tröllaskaga og Héraðsflóa.

Nánari veðurhorfur fyrir hvert svæði má finna í fréttinni.

https://gottvedur.is/vaktin/lokaspa-fyrir-solmyrkvann-mestar-likur-a-ad-sja-til-solar-vid-breidafjord-og-a-vestfjordum/

12/08/2026

Veðurspárnar virðast ætla að ganga eftir og útlit er fyrir mikla skýjahulu víða. Hér er færslan frá því um hádegi, en kortin í henni eru úr líkanakeyrslum frá kl. 9 í morgun. Von er á síðustu uppfærslu um kl. 16.

Nú er bara að treysta á lukkuna og vona að glufur myndist í skýjahulunni.

https://gottvedur.is/vaktin/horfur-vegna-solmyrkvans-midvikudaginn-12-agust/

Í tilefni almyrkvans á morgun vekjum við athygli á viðamiklum rannsóknum og skrifum Þórðar Arasonar, vísindamanns hjá Ve...
11/08/2026

Í tilefni almyrkvans á morgun vekjum við athygli á viðamiklum rannsóknum og skrifum Þórðar Arasonar, vísindamanns hjá Veðurstofu Íslands, um sólmyrkva.

🌞🌑 Í nýrri fróðleiksgrein er fjallað um almyrkvann sem gengur yfir vestanvert Ísland, áhrif veðurs og skýjafars og sögu sólmyrkva hér á landi.

Þau sem vilja kafa dýpra finna neðst í greininni tengla á skýrslu Þórðar um ritaðar samtímaheimildir, greinina Sólmyrkvar á Íslandi í Náttúrufræðingnum og ítarlegan vef hans um almyrkvann 2026.

Góð lesning í aðdraganda myrkvans!

https://gottvedur.is/frodleikur/um-solmyrkva-og-sogu-theirra-a-islandi/

Address

Bústaðavegur 7-9
Reykjavík
105

Telephone

+3545226000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Veðurstofa Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Veðurstofa Íslands:

Shortcuts

Share