Myndlistarsjóður

Myndlistarsjóður Myndlistarsjóði er ætlað að stuðla að framgangi listsköpunar, kynningu og aukinni þekkingu á íslenskri myndlist hérlendis sem erlendis.

Hlutverk myndlistarsjóðs er að efla íslenska myndlist með fjárhagslegum stuðningi og kostun verkefna sem falla undir hlutverk og starfsemi myndlistarráðs samkvæmt myndlistarlögum nr. 64/2012. Sjóðurinn veitir verkefnastyrki sem ætlaðir eru til að auðvelda framkvæmd verkefna á sviði listsköpunar og listrannsókna.

Það var bæði fjölmennt og glatt á hjalla þegar Sigrún Inga Hrólfsdóttir, formaður myndlistarráðs afhenti myndlistarfólki...
27/03/2026

Það var bæði fjölmennt og glatt á hjalla þegar Sigrún Inga Hrólfsdóttir, formaður myndlistarráðs afhenti myndlistarfólki styrki úr myndlistarsjóði 25. mars 2026. Alls var 45,6 milljónum króna úthlutað til 83 verkefna. Sjóðnum bárust 257 umsóknir og sótt var um styrki fyrir 273 milljónir króna.

Veittir voru styrkir í þremur flokkum:

Undirbúningsstyrkir
51 umsókn barst - 17 verkefni hlutu styrk fyrir alls kr. 7.300.000
Hæstu styrkina hlutu:
- Textílfélag Íslands hlaut hæsta styrkinn, kr. 900.000 fyrir undirbúning á afmælisritinu Textílfélagið í hálfa öld
- Listasafnið á Akureyri hlaut kr. 700.000 fyrir undirbúning A! Gjörningahátíðar
- Nýlistasafnið hlaut kr. 700.000 til undirbúnings yfirlitssýningarinnar Etnó-estetík: Samtímalist frá Kalaallit Nunaat
- Jóna Hlíf Halldórsdóttir hlaut kr. 500.000 fyrir undirbúning yfirlitssýningar í Listasafninu á Akureyri
- Þorsteinn Eyfjörð Þórarinsson hlaut kr. 500.000 fyrir BLOOM: Upptökuferð á Vatnajökul
- 12 önnur verkefni hlutu styrki að auki

Útgáfu-, rannsóknar- og aðrir styrkir
59 umsóknir bárust - 20 verkefni hlutu styrk fyrir alls kr. 11.500.000
Hæstu styrkina hlutu:
- Andreas Brunner hlaut kr. 1.000.000 fyrir útgáfu verksins Monograph Publication
- Bjartur & Veröld hlaut kr. 1.000.000 fyrir útgáfu um Svavar Guðnason listmálara
- Katrín Sigurðardóttir hlaut kr. 1.000.000 fyrir útgáfu á verkinu Óbyggð, Ellefu, Metamorphic og Namesake
- Nýlistasafnið hlaut kr. 900.000 fyrir rannsókn og útgáfu á verkinu Gjörningar á Íslandi
- Finnbogi Pétursson hlaut kr. 700.000 fyrir Skjálfti í Veðurstofu Íslands
- Listasafn ASÍ hlaut kr. 700.000 fyrir útgáfu verksins Sigrid Valtingojer
- Ragna Róbertsdóttir hlaut kr. 700.000 fyrir útgáfu verksins Recent Works
- - 13 önnur verkefni hlutu styrk að auki

Sýningarstyrkir
147 umsóknir bárust - 46 verkefni hlutu styrk fyrir alls kr. 26.800.000
Hæstu styrkina hlutu:
- Verksmiðjan á Hjalteyri hlaut hæsta styrkinn, kr. 3.000.000 fyrir sýningaverkefni í Verksmiðjunni 2026
- Kling & Bang hlaut kr. 2.600.000 fyrir þrjú sýningatímabil í Kling & Bang
- Safnasafnið hlaut kr. 1.200.000 fyrir sýningar Safnasafnsins 2026, Úr safni og samtíma
- Ars Longa - samtímalistasafn hlaut kr. 1.000.000 fyrir samsýninguna Rúllandi snjóbolti 19
- ListaVestrið hlaut kr. 1.000.000 fyrir menningarhátíðina ListaVestrið á Flateyri
- Gallerí Úthverfa hlaut kr. 1.000.000 fyrir sýningadagskrá 2026
- Hamraborg Festival hlaut kr. 1.000.000 fyrir Hamraborg Festival 2026
- Nýlistasafnið hlaut kr. 800.000 fyrir sýningu Open Group og einkasýningu Ívars Glóa Gunnarssonar
- 34 önnur verkefni hlutu styrk að auki.

Í matsnefnd sátu Birgir Snæbjörn Birgisson, Dorothée Maria Kirch og Æsa Sigurjónsdóttir úr myndlistarráði - gestir nefndarinnar voru Helga Páley Friðþjófsdóttir, Orri Jónsson og Þór Sigurþórsson.
Fyrsta úthlutun myndlistarsjóðs var árið 2013 og frá upphafi hafa sjóðnum borist tæplega 4300 umsóknir. Síðustu ár hefur 692 milljónum króna verið úthlutað úr sjóðnum.

Næsti umsóknarfrestur verður í ágúst, nánar auglýst síðar.

Listi yfir styrkþega má nálgast hér: https://www.icelandicartcenter.is/is/uthlutanir-ur-myndlistarsjodi

Ljósm. Sigríður Marrow

ATH – Vegna kerfisbilunar hefur umsóknarfrestur í myndlistarsjóð verið framlengdur til miðvikudagsins 11. febrúar kl. 16...
10/02/2026

ATH – Vegna kerfisbilunar hefur umsóknarfrestur í myndlistarsjóð verið framlengdur til miðvikudagsins 11. febrúar kl. 16:00.
-----

Due to a system malfunction, the deadline for the Visual Arts Fund has extended until Wednesday, February 11 at 16.00.

Myndlistarmiðstöð - Myndlistarsjóður

05/02/2026

Umsóknarfrestur fyrir vorúthlutun myndlistarsjóðs árið 2026 er til kl. 16 þriðjudaginn 10. febrúar.
Allar nánari upplýsingar má finna hér: www.myndlistarsjodur.is
-----------------
The deadline for the Icelandic Visual Arts Fund spring 2026 allocation round is Tuesday, February 10, at 16:00 (GMT).
Guidelines, policies, and application forms are available at:
www.myndlistarsjodur.is

Síðasta fjarvinnustofan fyrir vorúthlutun myndlistarsjóðs 2026 verður haldin miðvikudaginn 4. febrúar kl. 13:00, sjá: Fj...
02/02/2026

Síðasta fjarvinnustofan fyrir vorúthlutun myndlistarsjóðs 2026 verður haldin miðvikudaginn 4. febrúar kl. 13:00, sjá: Fjarvinnustofa – 4. febrúar
Skráning: https://forms.gle/N1qrXAv8hqnqNW6i8
-------
The last online workshopin English for the Spring 2026 allocation of the Visual Arts Fund will take place Wednesday February 4 at 10.00, see Online workshop – February 4
Registration: https://forms.gle/N1qrXAv8hqnqNW6i8

Fyrir vorúthlutun myndlistarsjóðs 2026 verða haldnar tvær fjarvinnustofur, bæði fyrir nýliða og reyndari umsækjendur:Fja...
27/01/2026

Fyrir vorúthlutun myndlistarsjóðs 2026 verða haldnar tvær fjarvinnustofur, bæði fyrir nýliða og reyndari umsækjendur:
Fjarvinnustofa – 28. janúar kl. 10:00
Fjarvinnustofa – 4. febrúar kl. 13:00

Skráning: https://forms.gle/N1qrXAv8hqnqNW6i8

-------

In preparation for the Spring 2026 allocation of the Visual Arts Fund, the Icelandic Art Center offers two online workshops in English, both for new and experienced applicants.
Online workshop – January 28 at 13.00
Online workshop – February 4 at 10.00

Registration: https://forms.gle/N1qrXAv8hqnqNW6i8

Fyrir vorúthlutun myndlistarsjóðs 2026 býður Myndlistarmiðstöð upp á ráðgjöf fyrir umsækjendur með nokkrum leiðum. Þriðj...
13/01/2026

Fyrir vorúthlutun myndlistarsjóðs 2026 býður Myndlistarmiðstöð upp á ráðgjöf fyrir umsækjendur með nokkrum leiðum.

Þriðjudaginn 20. janúar kl. 16:30 verður haldin kynning á myndlistarsjóði fyrir nýja umsækjendur, sniðin að þörfum þeirra sem eru að sækja um í fyrsta skipti.

Einnig verða haldnar fjórar fjarvinnustofur, bæði fyrir nýliða og reyndari umsækjendur: 28. janúar og 4. febrúar

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku - hlekkur í athugasemd
————
In preparation for the Spring 2026 allocation of the Visual Arts Fund, the Icelandic Art Center offers two online workshops in English, both for new and experienced applicants.

Online workshops in English:
- Wednesday, January 28, at 13:00–14:00
- Wednesday, February 4, at 10:00–11:00

Registration is required - link in the comment

08/01/2026

Myndlistarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir fyrir vorúthlutun árið 2026. Umsóknarfrestur er til kl. 16 þriðjudaginn 10. febrúar.
Leiðbeiningar um gerð umsókna, úthlutunarstefna, eyðublöð fyrir greinargerð ásamt lögum um sjóðinn má finna hér: www.myndlistarsjodur.is
-----------------
The Icelandic Visual Arts Fund has opened its call for applications for the spring 2026 allocation round. The application deadline is Tuesday, February 10, at 16:00 (GMT).
Grants are available for visual artists, curators, researchers, and independent professionals.
Guidelines, policies, and application forms are available at:
www.myndlistarsjodur.is

Sigrún Hrólfsdóttir, nýr formaður Myndlistarráðs afhenti myndlistarfólki styrki úr Myndlistarsjóði við hátíðlega athöfn ...
08/10/2025

Sigrún Hrólfsdóttir, nýr formaður Myndlistarráðs afhenti myndlistarfólki styrki úr Myndlistarsjóði við hátíðlega athöfn mánudaginn 6. október 2025. Alls var 26 milljónum króna úthlutað til 48 verkefna.

Sjóðnum bárust 170 umsóknir og sótt var um styrki fyrir rúmlega 190 milljónum króna. Veittir voru styrkir í þremur flokkum.

Nýlistasafnið hlaut hæsta styrkinn í flokki undirbúningsstyrkja, 900.000 kr. fyrir undirbúning á sýningu listhópsins Open Group, "Ode to Freedom", sem vakið hefur alþjóðlega athygli fyrir áhrifarík verk um innrásarstríð Rússlands í Úkraínu.
Listasafn Ísafjarðar hlaut 600.000 kr. fyrir sýningar í safninu árið 2026.
Anna Rún Tryggvadóttir hlaut 500.000 kr. til undirbúnings á verkinu Tímavilla og Hildur Bjarnadóttir hlaut 500.000 kr. til undirbúnings verkefnisins Skali og ryþmi - vinnustofa Þúfugarðar.

Í flokki útgáfu- rannsóknar- og annarra styrkja hlaut Safnasafnið hæsta styrkinn, eina milljón króna fyrir rannsóknina "Í ljósi Bendunnar - Höfundarverk Bjarna H. Þórarinssonar."
Félag um höfundarverk Magnúsar Pálssonar hlaut 800.000 kr. styrk fyrir útgáfu um Magnús Pálsson.
Ennfremur hlutu Sadie Cornette Cook og Jóhannes Kjartansson 700.000 kr. hvort og Kogga hlaut 600.000 kr. fyrir útgáfuverkefni.

Listasafn Reykjanesbæjar og Tumi Magnússon hlutu hæsta styrkinn í flokki sýningaverkefna; tvær milljónir króna fyrir einkasýningu Tuma í safninu.
Þrjú sýningaverkefni hlutu eina milljón króna í styrk; Guðný Rósa Ingimarsdóttir fyrir einkasýningu í Kling & Bang, Gallerí Fyrirbæri fyrir sýningaröð og Hótel Djúpavík fyrir sýningu í verksmiðjunni á Djúpavík 2026.
Listasafn Reykjavíkur hlaut 800.000 kr. styrk fyrir samsýninguna "Á pólsku".
Sigurður Þórir Ámundason hlaut 700.000 kr. styrk vegna einkasýningar á vegum Listasafns ASÍ.
Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar hlaut 700.000 kr. styrk fyrir sýninguna "Afregluvæðing & regluvæðing".
Skaftfell hlaut 700.000 kr. styrk fyrir haustsýningu 2026.

Auk þessa styður myndlistarsjóður við Sequences myndlistartvíæringinn með samstarfssamning frá 2025 til 2027, þrjár milljónir króna á ári.

Í matsnefndum sátu: Anna Hallin, Birgir Snæbjörn Birgisson, Dorothée Maria Kirch, Karl Ómarsson og Guðlaug Mía Eyþórsdóttir.

Fyrsta úthlutun sjóðsins var árið 2013 og frá upphafi hafa sjóðnum borist rúmlega fjögur þúsund umsóknir. Síðustu ár hefur 647 milljónum króna verið úthlutað úr sjóðnum. Heildartölur eru aðgengilegar á vefsíðu sjóðsins.

Næsti umsóknarfrestur verður auglýstur á nýju ári.

Allar ljósmyndir eru teknar af Sunday & White Studio

Tomorrow, Wednesday, August 6, at 10:00 Icelandic time, an online workshop in English will be held, suitable for both ne...
05/08/2025

Tomorrow, Wednesday, August 6, at 10:00 Icelandic time, an online workshop in English will be held, suitable for both new and experienced applicants. The workshops will take place via Google Meet, and registration is required: https://forms.gle/28489KYLsA25nmYGA

Further information: https://www.icelandicartcenter.is/articles/visual-arts-fund-application-support

- - - - - - - - - - -

Næstu fjarvinnustofur fyrir haustúthlutun myndlistarsjóðs 2025 eru á morgun, miðvikudaginn 6. ágúst kl. 10 á ensku og kl. 13 á íslensku. Vinnustofan er ætluð bæði fyrir nýliðum og reyndari umsækjendum. Skráning: https://forms.gle/28489KYLsA25nmYGA

Nánar: https://www.icelandicartcenter.is/is/frettir/myndlistarsjodur-radgjof-fyrir-umsaekjendur

Address

Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Myndlistarsjóður posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Myndlistarsjóður:

Share