Safnaráð / The Museum Council of Iceland

Safnaráð / The Museum Council of Iceland Safnaráð hefur m.a. eftirlit með faglegu safnastarfi Íslandi og umsjón með safnasjóð. Framkvæmdastjóri safnaráðs er Þóra Björk Ólafsdóttir.

Meginhlutverk safnaráðs er að hafa eftirlit með safnastarfsemi í landinu, vinna að stefnumörkun um safnastarf, fjalla um stofnskrár og viðurkenningar safna og veita umsagnir um styrkumsóknir í safnasjóð. Safnaráð er stjórnsýslunefnd sem skipuð er af mennta- og menningarmálaráðherra til fjögurra ára í senn, samkvæmt safnalögum nr. 141/2011.

💡Verndum það sem skiptir máli — Hanaholmen Heritage 2026 er nýútomin skýrsla📝sem fjallar um viðbúnað og verndun menninga...
17/09/2026

💡Verndum það sem skiptir máli — Hanaholmen Heritage 2026 er nýútomin skýrsla📝sem fjallar um viðbúnað og verndun menningararfs á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum í ljósi vaxandi ógna🚨 Skýrslan var unnin í kjölfar fjölda vinnu- og samráðsfunda sérfræðinga á fyrri hluta þessa árs undir yfirskriftinni Hanaholmen Heritage, sem lauk með ráðstefnu þann 28. maí síðastliðinn 👩‍🏫 Í skýrslunni koma fram tillögur vinnuhóps ✍️sem byggja á niðurstöðum verkefnisins. Hægt er að lesa skýrsluna í heild á heimasíðu safnaráðs.

Protecting what matters -Hanaholmen Heritage 2026 Nýútomin skýrsla, Protecting What Matters – Hanaholmen Heritage 2026, fjallar um viðbúnað og verndun menningararfs á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum í ljósi vaxandi ógna. Skýrslan var unnin í kjölfar umfangsmikils samráðs s...

🛎️Í maí síðastliðnum sótti Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri safnaráðs og Rúnar Leifsson, forstöðumaður Minjastof...
15/09/2026

🛎️Í maí síðastliðnum sótti Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri safnaráðs og Rúnar Leifsson, forstöðumaður Minjastofnunar Íslands, vinnufund um verndun menningarminja 📝 í Hanaholmen - Kulturcentrum för Sverige och Finland 📍 Þau voru skipuð af Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu sem fulltrúar Íslands í samstarfsverkefninu 👉 Hanaholmen Heritage – The Nordic-Baltic Cooperation for Cultural Heritage and Preparedness 🏺 Um er að ræða undirbúnings- og samstarfsverkefni sérfræðinga á sviði menningarmála til að efla viðbragðsáætlanir 🚨og vernd menningararfs⛑️Hægt er að lesa nánar um það hér 👇

Hanaholmen Heritage – The Nordic-Baltic Cooperation for Cultural Heritage and Preparedness. Í maí síðastliðnum sótti Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri safnaráðs og Rúnar Leifsson, forstöðumaður Minjastofnunar Íslands, þriggja daga vinnufund í Hanaholmen í Finnlandi. ....

📣 Dagana 23.–25. september fer fram ráðstefna ALHFAM (The Association for Living History, Farm and Agricultural Museums)...
07/09/2026

📣 Dagana 23.–25. september fer fram ráðstefna ALHFAM (The Association for Living History, Farm and Agricultural Museums) fram í Reykjavík📍 Nánari upplýsingar um samtökin má finna á https://alhfam.org/
👉Yfirskrift ráðstefnunnar er 💭Food for Thought: Bridging Cultures Across Time.
"The theme of this conference invites us to reflect on how knowledge, traditions, and skills move between communities and across generations. From farming and foodways to craft traditions and material culture, people have continually adapted inherited knowledge to new environments while maintaining connections to shared origins. This theme encourages presentations that not only inform, but spark curiosity, foster conversation, and inspire fresh ways of thinking about the work we do" 🤓 Ráðstefnan samanstendur af fjölbreyttum málstofum, erindum og vinnustofum sem mörgum er stjórnað af gestum og safnafólki frá Ameríku, vettvangsferðum og fleiru⏰Skráningu lýkur 17. september 📌 Drög að dagskrá, verð og skráningarform er að finna hér 👉https://safnmenn.is/2026/09/02/alfham-radstefna-a-islandi/

Það er mikið um að vera í safnaheiminum á Íslandi og dagana 23.-25. september fer ráðstefna ALFHAM (The Association for Living History, Farm and Agricultural Museums) fram í Reykjavík. Nánari upplýsingar um samtökin má finna hér: https://alhfam.org/

📍Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri safnaráðs, heimsótti Söfn í Fjarðabyggð og ræddi við starfsfólk Menningarstofa...
07/09/2026

📍Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri safnaráðs, heimsótti Söfn í Fjarðabyggð og ræddi við starfsfólk Menningarstofa Fjarðabyggðar þriðjudaginn 1. september 👉 Í heimsókninni kynnti hún sér starfsemi og varðveislurými safna í sveitarfélaginu ásamt því að farið var yfir umfangsmiklar umbætur á safnastarfi sem nú standa yfir í nánu samráði við safnaráð 🌱

Framkvæmdastjóri Safnaráðs kynnti sér safnastarf í Fjarðabyggð 🏛️

Þóra Björk Ólafsdóttir heimsótti söfn víða um sveitarfélagið og kynnti sér meðal annars uppbyggingu nýs Stríðsárasafns, starfsemi Sjóminjasafns Austurlands og Safnahússins í Neskaupstað.

Heimsóknin tengist umfangsmiklum umbótum sem Menningarstofa Fjarðabyggðar vinnur nú að á söfnum sveitarfélagsins.

🔗 Nánar má lesa um heimsóknina í hlekk í fyrstu athugasemd.

🚨 „Changing tactics, changing targets: the evolving nature of museum heists“ er heiti á nýútgefinni skýrslu Europol 📝 þa...
31/08/2026

🚨 „Changing tactics, changing targets: the evolving nature of museum heists“ er heiti á nýútgefinni skýrslu Europol 📝 þar er dregin upp dökk mynd af breyttum aðferðum og vaxandi ógn er varðar þjófnað á safngripum. Skýrsluna má finna hér👇

„Changing tactics, changing targets: the evolving nature of museum heists“ er heiti á nýútgefinni skýrslu Europol, þar er dregin upp dökk mynd af breyttum aðferðum og vaxandi ógn er varðar þjófnað á safngripum. Í skýrslunni er vakin athygli á því að rán á söfnum verði sí...

👩‍🚒Hér er hægt að skrá sig á spennandi og hagnýtt námskeið í björgun safnkosts - Fyrstu viðbrögð við vá (vatnstjón) 💦⛑️🦺...
22/06/2026

👩‍🚒Hér er hægt að skrá sig á spennandi og hagnýtt námskeið í björgun safnkosts - Fyrstu viðbrögð við vá (vatnstjón) 💦⛑️🦺

🛡️Landsnefnd Blái skjöldurinn á Íslandi - Blue Shield Iceland í samstarfi við Borgarsögusafn Reykjavíkur / Reykjavík City Museum efnir til námskeiðs um björgun safnkosts og fyrstu viðbrögð við vá dagana 28-29. september nk. Námskeiðið er stutt af Safnaráði og fer fram á Árbæjarsafni í Reykjavík👌

👩‍🏫Leiðbeinendur eru Ingibjörg Áskelsdóttir og Nathalie Jacqueminet, forverðir og safnafræðingar
👉Skráning fer fram hér: https://forms.gle/6ZeB5Q5KSSCUY8gj8 (Skráningarfrestur er til 15. sept)
👉Nánari upplýsingar og dagskrá má finna á heimasíðu Bláa skjaldarins á Íslandi: https://blaiskjoldurinn.is/?p=799

Námskeið í björgun safnkosts – Fyrstu viðbrögð við vá (vatnstjón)19. júní, 2026Heiðar Lind HanssonFréttir Dagsetning: 28. – 29. september 2026 Staðsetning: Árbæjarsafn, Kistuhyl 4, 110 Reykjavík Blái Skjöldurinn í samstarfi við Borgarsögusafn Reykjavíkur bjóða upp á n....

🎉Við óskum Listasafn Íslands / National Gallery of Iceland innilega til hamingju en safnið hlaut Íslensku safnaverðlauni...
18/05/2026

🎉Við óskum Listasafn Íslands / National Gallery of Iceland innilega til hamingju en safnið hlaut Íslensku safnaverðlaunin 2026 👌
✨Í dag 18. maí á Alþjóðlega safnadeginum voru Íslensku safnaverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn. Íslandsdeild ICOM / ICOM Iceland og Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) standa saman að verðlaununum, sem eru viðurkenning veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi👌Forseti Íslands Halla Tómasdóttir afhenti verðlaunin á Kjarvalsstöðum og ríkti mikil gleði meðal safnafólks sem fjölmennti á viðburðinn og fagnaði blómlegri starfsemi safna á Íslandi.
🌱🌾🌿
🏆Verðlaunin að þessu sinni hlaut Listasafn Íslands fyrir viðspyrnu gegn málverkafölsun en í umsögn valnefndar segir meðal annars:

"Sýningin Ráðgátan um Rauðmagann og aðrar sögur um eftirlíkingar og falsanir er einstakt og tímabært framlag til íslensks safnastarfs þar sem fræðileg rannsókn, fagleg ábyrgð og hugvitsamleg miðlun sameinast, í þágu almennings. “👏 👏
Nánari umfjöllun hér👇

Listasafn Íslands hlaut Íslensku safnaverðlaunin 2026

Þann 18. maí á Alþjóðlega safnadeginum voru Íslensku safnaverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn. Íslandsdeild Alþjóðaráðs safna (ICOM) og Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) standa saman að verðlaununum, sem eru viðurkenning veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. Forseti Íslands Halla Tómasdóttir afhenti verðlaunin á Kjarvalsstöðum og ríkti mikil gleði meðal safnafólks sem fjölmennti á viðburðinn og fagnaði blómlegri starfsemi safna á Íslandi.

Verðlaunin að þessu sinni hlaut Listasafn Íslands fyrir viðspyrnu gegn málverkafölsun en í umsögn valnefndar segir meðal annars:

"Sýningin Ráðgátan um Rauðmagann og aðrar sögur um eftirlíkingar og falsanir er einstakt og tímabært framlag til íslensks safnastarfs þar sem fræðileg rannsókn, fagleg ábyrgð og hugvitsamleg miðlun sameinast, í þágu almennings. Með því að sýna fölsuð og ófölsuð verk hlið við hlið, opna rannsóknargögn og gera flókið viðfangsefni aðgengilegt tókst með sýningunni að varpa ljósi á viðkvæmt en brýnt málefni á ábyrgan hátt.
[…]
Almenn þekking á íslenskri listasögu er mikilvæg viðspyrna gegn fölsunum og þar hefur Listasafn Íslands lagt sitt lóð á vogarskálarnar með metnaðarfullri og djarfri umfjöllun um viðkvæma þætti innan íslenskrar listasögu sem hafa hingað til ekki hlotið faglega og ítarlega framsetningu og umfjöllun sem þessa."

Þau söfn sem hlutu einnig tilnefningu til verðlaunanna voru Borgarsögusafn fyrir verkefni á sviði inngildingar og öflug tengsl við samfélagið, Minjasafn Austurlands fyrir verkefnið Kjarval á Austurlandi, Stofnun Árna Magnússonar fyrir sýninguna Heimur í orðum og Tækniminjasafn Austurlands fyrir uppbyggingu og endurreisn.

Í valnefnd sátu Birta Guðjónsdóttir, Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir, Hjörtur Þorbjörnsson og Hörður Geirsson. Alma Sigurðardóttir var formaður nefndarinnar.

👉Hvað ætlar þú að gera á safnadaginn? Fjöldi safna heldur upp á 🌍Alþjóðlegi safnadagurinn á Íslandi / International Muse...
18/05/2026

👉Hvað ætlar þú að gera á safnadaginn?
Fjöldi safna heldur upp á 🌍Alþjóðlegi safnadagurinn á Íslandi / International Museum Day Iceland, sum bjóða ókeypis inn og einhver standa fyrir viðburðum í tilefni dagsins 👌Hægt verður að kynna sér dagskránna á samfélagsmiðlum safnadagsins og samfélagsmiðlum safna ☀️🥳👏
👉Eftirfarandi viðburðir verða haldnir í tilefni Alþjóðlega safnadagsins:
👌Mánudaginn 18. maí 🤓
10:00-17:00 Hlustunarpartý í Eddu: https://fb.me/e/8DbNHpw06
11:00 Leiðsögn um Franska safnið og nágrenni: https://www.facebook.com/menningarstofa
11:00-18:00 Veiðisafnið býður tvo fyrir einn af aðgangseyri
12:00 Jóga og slökun á Alþjóðlega safnadeginum á Þjóðminjasafninu: https://fb.me/e/6VaLhDY7z
12:00-17:00 Ný aðföng í safneign – Kristín Gunnlaugsdóttir: https://fb.me/e/6YluRIGJX
12:15 Leiðsögn um sýninguna Landlæg hamingja á Gerðarsafni: https://fb.me/e/3KpvPDz1s
13:00 Leiðsögn um Franska safnið og nágrenni: https://www.facebook.com/menningarstofa
15:30-17:30 Opin safngeymsla á Náttúrusafni Kópavogs: https://fb.me/e/4rCBAxUOv
16:00 Afhending Íslensku safnaverðlaunin á Kjarvalsstöðum🏆: https://fb.me/e/eFyXQLjUH
16:00-17:30 Sólarþrykk á Gerðarsafni og Náttúrusafni Kópavogs: https://fb.me/e/hPsDkrjZ7
16:30 Leiðsögn um Franska safnið og nágrenni: https://www.facebook.com/menningarstofa
17:00 „Brúum bilið“ á Minjasafni Austurlands: https://fb.me/e/98mY4zE3W
20:00 Bragðarefur plönturíkis í Grasagarði Reykjavíkur: https://fb.me/e/4wsOFzMwa
Sjáumst á safni! 👏🥳🌱

🧐Hér má sjá hvaða söfn eru tilnefnd til Íslensku safnaverðlaunanna 🏆 en þau verða afhend á Alþjóðlegi safnadagurinn á Ís...
13/05/2026

🧐Hér má sjá hvaða söfn eru tilnefnd til Íslensku safnaverðlaunanna 🏆 en þau verða afhend á Alþjóðlegi safnadagurinn á Íslandi / International Museum Day Iceland þann 👉 18. maí næstkomandi 🎉

💐 Menning Morgunblaðsins fjallar um úthlutun úr Safnasjóði
28/04/2026

💐 Menning Morgunblaðsins fjallar um úthlutun úr Safnasjóði

Tilkynnt hefur verið um aðalúthlutun ársins úr Safnasjóði.

Address

Austurstræti 5
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

+3545342234

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Safnaráð / The Museum Council of Iceland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Safnaráð / The Museum Council of Iceland:

Shortcuts

Share