Félagsstofnun stúdenta

Félagsstofnun stúdenta Félagsstofnun stúdenta er þjónustufyrirtæki fyrir stúdenta við Háskóla Íslands. Aðalmarkm

Félagsstofnun stúdenta er fyrst og fremst þjónustufyrirtæki fyrir stúdenta við Háskóla Íslands. Aðalmarkmiðið er að bjóða góða þjónustu á góðum kjörum og auka lífsgæði stúdenta. Gildi FS eru: Góð þjónusta - Virk samvinna - Jákvæð upplifun - Markviss árangur

Frábæri Hámuhópurinn okkar tók Treyjudaginn með trompi síðasta föstudag! 👏Á Treyjudeginum klæðist fólk uppáhaldstreyjunn...
09/09/2026

Frábæri Hámuhópurinn okkar tók Treyjudaginn með trompi síðasta föstudag! 👏

Á Treyjudeginum klæðist fólk uppáhaldstreyjunni sinni, til dæmis fótboltatreyju, og sýnir þannig stuðning og samstöðu með börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.

Hér má sjá mynd af glæsilegu stuðningsliði Hámu á treyjudaginn!💛⚽️👏

Stúdentagarðar FS eiga óvænt laus herbergi til úthlutunar. Herbergin eru laus nú þegar. Þau eru staðsett á háskólasvæðin...
04/09/2026

Stúdentagarðar FS eiga óvænt laus herbergi til úthlutunar. Herbergin eru laus nú þegar.
Þau eru staðsett á háskólasvæðinu, í 3 - 5 mínútna göngufjarlægð við Háskólatorg.

Við hvetjum öll áhugasöm til að senda inn umsókn á www.studentagardar.is og afla sér upplýsinga um aðstöðu og verð á Oddagörðum, Mýrargarði og Gamla Garði.

Við viljum einnig vekja athygli á því að eins og staðan er núna er meðalbiðtími eftir einstaklingshúsnæði á Stúdentagörðum um 1 - 3 mánuðir.

Við tökum glöð við öllum umsóknum og hlökkum til að bæta fleirum við í Stúdentagarða samfélagið okkar!

//

FS Student Housing currently has rooms available for immediate move-in!

The rooms are located on the University of Iceland campus, just a 3–5-minute walk from The University Centre.

If you’re interested, we encourage you to apply at www.studentagardar.is, where you can also find more information about accommodation and prices at Oddagarðar, Mýrargarður, and Gamli Garður.

We’d also like to highlight that the current average waiting time for single-occupancy housing at FS Student Housing is only around 1–3 months.

We welcome all applications and look forward to welcoming more students to the FS Student Housing community!

Dagbækur FS fyrir skólaárið 2026–27 eru komnar í hús 📚Þær eru ókeypis og hægt er að næla sér í eintak við inngang Bóksöl...
02/09/2026

Dagbækur FS fyrir skólaárið 2026–27 eru komnar í hús 📚

Þær eru ókeypis og hægt er að næla sér í eintak við inngang Bóksölu stúdenta á Háskólatorgi.

Okkar konur taka vel á móti ykkur á móttöku nýnema á Háskólatorgi í dag 🎓 Ertu með spurningar um Bóksöluna eða Stúdentag...
31/08/2026

Okkar konur taka vel á móti ykkur á móttöku nýnema á Háskólatorgi í dag 🎓 Ertu með spurningar um Bóksöluna eða Stúdentagarða? Þær geta svarað þeim!

Morgunhleðslan á betra verði 🧃
18/08/2026

Morgunhleðslan á betra verði 🧃

14/08/2026

Vilt þú vinna með okkur? 🎓

Veitingasala Félagsstofnunar stúdenta (FS) sér um veitingarekstur á háskólasvæðinu undir merkinu Háma og Kaffistofur stúdenta.

FS leitar að aðstoðarmanneskju í veitingasölu Hámu á Sögu til að sinna almennum verkefnum í eldhúsi Sögu, þjónusta viðskiptavini Hámu og sinna frágangi og uppvaski.

Helstu verkefni
- Afgreiðsla við kassa og almenn þjónusta við viðskiptavini.
- Uppvask og dagleg þrif og viðhald á hreinlæti í eldhúsi, veitingasölu, tækjum og búnaði.
- Móttaka, frágangur og áfylling á hráefnum og öðrum vörum eftir þörfum.
- Aðstoða við undirbúning á matvælum eftir þörfum og samkvæmt fyrirmælum kokks/yfirkokks og verklagsreglum Hámu.
- Fylgja verklagsreglum um matvælaöryggi og hollustuhætti og vinna samkvæmt innra eftirlitskerfi Hámu (HACCP).
- Önnur tilfallandi störf sem falla undir almenn störf í veitingasölu.
Taka þátt í fræðslu og þjálfun sem tengist starfinu.

Starfið hentar stúdentum við Háskóla Íslands einkar vel.

Um 40% starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun september.

Vinnutími: 11:30–14:30 alla virka daga.

Um tímabundið starf er að ræða og lýkur ráðningu í desember 2026. Möguleiki er á framlengingu frá janúar til maí 2027.

Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð þjónustulund og jákvætt viðmót.
- Góð skipulagshæfni og geta til að vinna sjálfstætt og eftir fyrirmælum.
- Stundvísi og reglusemi.
- Snyrtimennska og rík hreinlætisvitund.
- Þekking á háskólasamfélaginu er kostur
- Góð tök á íslensku og ensku eru skilyrði.
- Hreint sakavottorð er skilyrði

Umsóknir skulu berast á [email protected]. Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst.

Vissir þú að Félagsstofnun stúdenta rekur Leikskóla stúdenta? Sólgarður er ungbarnaleikskóli fyrir börn nemenda við Hásk...
12/08/2026

Vissir þú að Félagsstofnun stúdenta rekur Leikskóla stúdenta?

Sólgarður er ungbarnaleikskóli fyrir börn nemenda við Háskóla Íslands. Nemendur við aðra háskóla á Íslandi geta þó einnig sótt um og átt möguleika á plássi ef þau eru í boði eftir úthlutun til nemenda HÍ.

Sótt er um á leikskoli.vala.is

⚒️ Vegna viðhalds á eldhúsi verður enginn heitur matur í boði dagana 28.-31. júlí. Súpa og vörur úr kæli verða áfram í b...
28/07/2026

⚒️ Vegna viðhalds á eldhúsi verður enginn heitur matur í boði dagana 28.-31. júlí. Súpa og vörur úr kæli verða áfram í boði 🥪

Við erum að leita að öflugum og þjónustuliprum einstaklingi í starf þjónustufulltrúa Stúdentagarða. Hvetjum öll áhugasöm...
25/06/2026

Við erum að leita að öflugum og þjónustuliprum einstaklingi í starf þjónustufulltrúa Stúdentagarða. Hvetjum öll áhugasöm um að sækja um 🏡

Stúdentagarðar Félagsstofnunar stúdenta leita að öflugum og þjónustuliprum einstaklingi í starf þjónustufulltrúa. Þjónustufulltrúi stúdentagarða sinnir almennri þjónustu og upplýsingagjöf til þeirra sem leita til Stúdentagarða FS og vinnur náið með þjónustu- og samskipta...

Stúdentagarðar FS óska eftir að ráða smið til starfa. Meira um starfið hér fyrir neðan - við hvetjum öll áhugasöm til að...
24/06/2026

Stúdentagarðar FS óska eftir að ráða smið til starfa. Meira um starfið hér fyrir neðan - við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um 🔨

Stúdentagarðar óska eftir að ráða smið til starfa. Smiður sinnir almennu viðhaldi á Stúdentagörðum og öðrum einingum Félagsstofnunar stúdenta, svo sem leikskólum og veitingasölu eftir þörfum. Smiður annast jafnframt nýsmíði og sér um innkaup á efni eftir þörfum. Smiður ...

Address

Háskólatorgi
Reykjavík
102

Opening Hours

Monday 10:00 - 14:00
Tuesday 10:00 - 14:00
Wednesday 10:00 - 14:00
Thursday 10:00 - 14:00
Friday 10:00 - 14:00

Telephone

+3545700700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Félagsstofnun stúdenta posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Félagsstofnun stúdenta:

Shortcuts

Share