Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard

Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard www.lhg.is Helstu verkefni Landhelgisgæslunnar eru:

Löggæsla og eftirlit á hafinu umhverfis Ísland.
Ábyrgð og yfirstjórn á leit og björgun á sjó.

Aðstoð við björgun og sjúkraflutninga á landi. Sjómælingar og sjókortagerð
Sprengjueyðing
Rekstur fjarskipta- og ratsjárstöðva. Umsjón með öryggissvæðum og eignum NATO á Íslandi. Hjá Landhelgisgæslu Íslands starfa um 200 manns.

Áhöfnin á varðskipinu Þór hefur annaðist eftirlit á hafsvæðinu djúpt suður af landinu í síðustu dögum. Meðal annars var ...
14/09/2026

Áhöfnin á varðskipinu Þór hefur annaðist eftirlit á hafsvæðinu djúpt suður af landinu í síðustu dögum. Meðal annars var fylgst með veiðum túnfiskveiðiskipa frá Japan sem eru að veiðum rétt sunnan við íslensku efnahagslögsöguna. Um 15 skip frá Japan og Suður-Kóreu eru þar á veiðum.

Túnfiskveiðiskip hafa á undanförnum áratugum veitt á þessum slóðum utan íslensku lögsögunnar en mikilvægt er að fylgjast með umferð á jöðrum efnahagslögsögu Íslands.

Með slíku eftirliti er meðal annars fylgst með því að skip haldi sig utan íslensku efnahagslögsögunnar þegar þau eru að veiðum. Sum skipanna leita til hafna á Íslandi til að sækja vistir.

Meðfylgjandi myndir voru teknar af varðskipinu Þór um helgina.

Ómannað loftfar, sem gert var út frá Höfn í Hornafirði í sumar, reyndist Landhelgisgæslunni vel við eftirlit á Íslandsmi...
09/09/2026

Ómannað loftfar, sem gert var út frá Höfn í Hornafirði í sumar, reyndist Landhelgisgæslunni vel við eftirlit á Íslandsmiðum.

Verkefnið var unnið í samstarfi við EMSA, Siglingaöryggisstofnun Evrópu en það fólst fólst í að nýta ómannaða loftfarið við fjölbreytt eftirlitsverkefni á suðausturhluta hafsvæðisins umhverfis landið. Reynslumiklar áhafnir frá portúgalska fyrirtækinu Tekever önnuðust stjórn loftfarsins, en því var flogið í alls 300 klukkustundir í sumar.

Loftfarið var meðal annars notað til að sannreyna og fylgja eftir ábendingum frá gervihnattavöktun EMSA, til dæmis vegna hugsanlegrar olíumengunar í sjó, auk þess sem það var nýtt til að staðfesta staðsetningu skipa á hafi.

Loftfarið jók þannig eftirlitsgetu Landhelgisgæslunnar á hafi og stuðlaði jafnframt að auknu öryggi sjófarenda. Í flugferðunum greindi loftfarið og fylgdist með fjölbreyttri skipaumferð og mannvirkjum á sjó, þar á meðal skemmtibátum á leið til landsins, flutningaskipum, fiskiskipum, farþegaskipum, eldiskvíum og skipum sem gáfu ekki upp staðsetningu sína. Loftfarið var einnig búið búnaði sem gerði því kleift að varpa björgunarbáti í sjó.

Ómannaða loftfarið var af gerðinni Tekever AR5. Það hefur sjö metra vænghaf, flýgur á um 60 hnúta hraða og er búið ýmsum hátæknibúnaði og skynjurum, þar á meðal ADS-B og SSR (Mode C) ratsjársvörum. Fjarflugmenn Tekever stýrðu loftfarinu frá Höfn í Hornafirði um gervihnattatengingu. Vegna verkefnisins voru skilgreind og auglýst sérstök svæði fyrir flug loftfarsins, frá sjávarmáli upp í 3.000 til 5.000 feta hæð.

Landhelgisgæslan, EMSA og Tekever færa öllum þeim sem komu að verkefninu kærar þakkir fyrir gott samstarf í sumar, þar á meðal Samgöngustofu, Fiskistofu, Fjarskiptastofu, Umhverfis- og orkustofnun, Avians og Isavia innanlandsflugvöllum.

📣 Varðskipið Þór opið almenningi í Þorlákshöfn í dag!Landhelgisgæslan heldur áfram að heimsækja sveitarfélög víðsvegar u...
05/09/2026

📣 Varðskipið Þór opið almenningi í Þorlákshöfn í dag!

Landhelgisgæslan heldur áfram að heimsækja sveitarfélög víðsvegar um landið í tilefni 100 ára afmælis stofnunarinnar.

Í dag, laugardaginn 5. september, ætlar áhöfnin á varðskipinu Þór að bjóða áhugasömum að skoða skipið sem verður við bryggju í Þorlákshöfn og kynnast verkefnum Landhelgisgæslunnar milli 13:00 og 15:00

⚓️ Við erum öll í sama liði!
04/09/2026

⚓️ Við erum öll í sama liði!

Varnaræfingunni Norður-Víkingur 2026 lauk í vikunni þar sem æfðar voru varnir Íslands með aðgerðum á sjó, landi og í lof...
04/09/2026

Varnaræfingunni Norður-Víkingur 2026 lauk í vikunni þar sem æfðar voru varnir Íslands með aðgerðum á sjó, landi og í lofti. Æfingin byggir á tvíhliða varnarsamning Íslands og Bandaríkjanna.

Auk Íslands og Bandaríkjanna tók liðsafli frá Belgíu, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Kanada, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi þátt í æfingunni auk fjölmargra skipa úr fastaflota Atlantshafsbandalagsins. Áætlað er að um 1200 manns hafi tekið þátt í æfingunni sem stóð yfir í tvær vikur.

Æfðar voru varnir mikilvægra innviða, eftirlit og varnir á sjóleiðum á Norður-Atlantshafi, samhæfing milli íslenskra viðbragðsaðila og erlends herliðs auk æfinga í leit og björgun.

Fjölmargir innlendir viðbragðsaðilar komu að undirbúningi og framkvæmd æfingarinnar m.a. varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins, Landhelgisgæslan, ríkislögreglustjóri, almannvarnir, og heilbrigðisstofnanir.

🚁 Rescue ready in the High North. ❄️United States Air Force pararescuemen from Moody Air Force Base’s 38th Rescue Squadr...
01/09/2026

🚁 Rescue ready in the High North. ❄️

United States Air Force pararescuemen from Moody Air Force Base’s 38th Rescue Squadron teamed up with the Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard and Björgunarsveitin Suðurnes during Exercise Northern Viking 26.

Flying aboard Icelandic H225 Super Pumas, the teams tackled a complex mass casualty scenario—building the trust, teamwork and interoperability needed when every second counts.

🇺🇸🤝🇮🇸 Ready together. Rescue anywhere.

📷 by Senior Airman Edgar Grimaldo

United States Air Force | U.S. Department of War | U.S. European Command (EUCOM) | U.S. Naval Forces Europe-Africa/U.S. Sixth Fleet | US Embassy Reykjavik Iceland | Icelandic Ministry for Foreign Affairs | NATO Allied Joint Force Command Norfolk - JFCNF

Um helgina voru æfð viðbrögð við stórslysi sem var liður í varnaræfingunni Norður-Víkingi, sem fram fer um þessar mundir...
31/08/2026

Um helgina voru æfð viðbrögð við stórslysi sem var liður í varnaræfingunni Norður-Víkingi, sem fram fer um þessar mundir.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og starfsfólk fjölmargra annarra sviða Gæslunnar tók þátt á æfingunni sem heppnaðist afar vel.

Áhafnir Landhelgisgæslunnar hafa í vikunni æft leit, björgun og uppgöngu í tengslum við varnaræfinguna Norður-Víking sem...
28/08/2026

Áhafnir Landhelgisgæslunnar hafa í vikunni æft leit, björgun og uppgöngu í tengslum við varnaræfinguna Norður-Víking sem haldin er umhverfis landið um þessar mundir.

Varðskip Landhelgisgæslunnar, þyrlusveit, séraðgerðasveit og starfsfólk í stjórnstöðvum eru meðal þeirra sem tekið hafa þátt í æfingum vikunnar.

Í vikunni hefur verið lögð áhersla á leit og björgun auk þess sem uppganga í skip var æfð um borð í flutningaskipinu Helgafelli.

Meginmarkmið Norður-Víkings er að æfa varnir Íslands, þar með talið varnir mikilvægra innviða og sjóleiðanna umhverfis Ísland, auk leitar og björgunar, gistiríkjastuðnings og samhæfingar íslenskra stjórnvalda við herstjórnir Bandaríkjanna og Atlantshafsbandalagsins.

Norður-Víkingur er haldinn á Íslandi að jafnaði annað hvert ár.

Um 150–200 íslenskir þátttakendur koma að æfingunni að þessu sinni ásamt fjölþjóðlegum liðsafla frá Bandaríkjunum, Belgíu, Kanada, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi auk Atlantshafsbandalagsins.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á æfingum í vikunni.

Eftirlitsflugvélin TF-SIF og þyrlan TF-GRO á Egilsstaðaflugvelli í kvöld.Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur tekið þátt...
24/08/2026

Eftirlitsflugvélin TF-SIF og þyrlan TF-GRO á Egilsstaðaflugvelli í kvöld.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur tekið þátt í leit ásamt viðbragðsaðilum í Stuðlagili í dag. Þá flutti áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF kafara á vegum ríkislögreglustjóra til Egilsstaða.

Varnaræfingin Norður-Víkingur er nú formlega hafin og mun hún standa til 3. september.  Í tengslum við æfinguna má búast...
22/08/2026

Varnaræfingin Norður-Víkingur er nú formlega hafin og mun hún standa til 3. september.

Í tengslum við æfinguna má búast við aukinni umferð herflugvéla við flugvelli landsins, í öllum landsfjórðungum, þar með talið æfingaflug og lendingar við Selfoss og Hellu. Slík starfsemi er liður í reglubundinni þjálfun þátttökusveita og fer fram samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum og öryggisráðstöfunum. Æfingarnar eru liður í að æfa flutninga sem nýtast bæði í tengslum við varnir og almannavarnaviðbúnað.

Address

Skógarhlíð 14
Reykjavík
105

Telephone

+3545452000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard:

Shortcuts

Share