08/09/2026
Um 30 prósent ráðstöfunartíma Samkeppniseftirlitsins árið 2025 fóru í samrunamál. Rannsóknir á ólögmætu samráði tóku 21 prósent tímans og rannsóknir á mögulegri misnotkun á markaðsráðandi stöðu 18 prósent.
Skipting ráðstöfunartímans gefur aðra mynd af starfsemi eftirlitsins en málafjöldinn einn og sér. Einstök mál eru mjög mismunandi að umfangi og flóknar rannsóknir geta kallað á mikla gagnaöflun og umfangsmikla hagfræðilega og lögfræðilega greiningu.
Lesa má nánar um skiptingu ráðstöfunartíma Samkeppniseftirlitsins eftir málaflokkum á vef SKE.
Hlekkur á frétt í fyrstu athugasemd 👇