Ferðamálastofa / Icelandic Tourist Board

Ferðamálastofa / Icelandic Tourist Board Ferðamálastofa fer með stjórnsýslu ferðamála í samræmi við lög sem um hana gilda.

Yfirstjórn málaflokksins er í höndum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem skipar ferðamálastjóra til fimm ára í senn. Ferðamálastjóri veitir Ferðamálastofu forstöðu og ræður annað starfsfólk stofnunarinnar.

Við vorum að birta mánaðarlegar tölur okkar um brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll, sem notaða...
10/09/2026

Við vorum að birta mánaðarlegar tölur okkar um brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll, sem notaðar eru til að mæla þjóðernasamsetningu þeirra gesta sem hingað koma. Brottfararnar námu um 314 þúsund í ágúst, álíka margar og í sama mánuði í fyrra (+0,4%).

Brottfarir Íslendinga voru tæplega 52 þúsund í ágúst, 10% færri en í sama mánuði í fyrra.

Nánar í fyrstu athugasemd.

Mynd: Aliaksei Semirski á Pexels.

Ferðamálastofa hefur nýlega yfirfarið og uppfært leiðbeiningar og dæmi sem ferðaþjónustuaðilar geta nýtt sér við gerð ör...
03/09/2026

Ferðamálastofa hefur nýlega yfirfarið og uppfært leiðbeiningar og dæmi sem ferðaþjónustuaðilar geta nýtt sér við gerð öryggisáætlana. Meðal þess sem hefur verið endurskoðað eru leiðbeinandi gátlistar fyrir mismunandi tegundir ferða og afþreyingar.

Gátlistarnir eru afar gott hjálpartæki við við gerð og endurskoðun öryggisáætlana. Þær draga vel fram þau atriði sem mikilvægt er að hafa í huga eftir eðli ferða og starfsemi mismunandi fyrirtækja.

Sjá nánar í fyrstu athugasemd.

24/08/2026

Við viljum vekja athygli á þessum skilaboðum frá Útivist, Ferðafélag Íslands og Björgunarsveitin Dagrenning Hvolsvelli vegna hættulegra aðstæðna á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls. Beinum til ferðaþjónustuaðila á svæðinu að hafa þessar upplýsingar sýnilegar fyrir gesti og að upplýsa fólk sem þeir fá vitneskju um að áformi göngu yfir Fimmvörðuháls.

Ferðamálastofa sendi í vikunni könnun á ferðaþjónustuaðila í tilefni endurtekinna frétta af lakara fjarskiptasambandi í ...
21/08/2026

Ferðamálastofa sendi í vikunni könnun á ferðaþjónustuaðila í tilefni endurtekinna frétta af lakara fjarskiptasambandi í kjölfar lokunar 2G og 3G farsímakerfa. Markmið könnunarinnar er að meta hvort og með hvaða hætti breytingarnar hafi haft áhrif á starfsemi fyrirtækja, fjarskipti starfsmanna og öryggi ferðamanna. Sérstaklega er óskað eftir dæmum um atvik, næratvik eða aðstæður þar sem skert fjarskiptasamband hefur valdið vandkvæðum.

Könnunin er enn opin og slóð á hana er í fyrstu athugasemd.

Kortatengdar upplýsingar sem Ferðamálastofa hefur safnað og er m.a. ætlað að styðja við skipulagningu, stefnumótun og vöruþróun í ferðamálum.

Lítið hlaup er hafið í Múlakvísl en hlaup af þessari stærðargráðu eru vel þekkt í ánni. Vatnshæðin hefur ekki hækkað en ...
19/08/2026

Lítið hlaup er hafið í Múlakvísl en hlaup af þessari stærðargráðu eru vel þekkt í ánni. Vatnshæðin hefur ekki hækkað en mikil gsamengun virðist fylgja hlaupinu og telur Veðurstofan varhugavert að staldra við nálægt ánni eða vera nálægt upptökum hennar við jökuljaðarinn.

Sjá frétt í fyrstu athugasemd

Gasmælirinn við Láguhvola er sunnan Kötlujökuls, þar sem rauða örin á myndinni bendir.

Ferðamálastofa sendi í kvöld póst á ferðaþjónustuaðila þar sem þeir eru beðnir að hjálpa til við að koma mikilvægum uppl...
10/08/2026

Ferðamálastofa sendi í kvöld póst á ferðaþjónustuaðila þar sem þeir eru beðnir að hjálpa til við að koma mikilvægum upplýsingum til ferðafólks varðandi almyrkvann 12. ágúst. Um er að ræða einblöðung á ensku með helstu upplýsingum, sem má til dæmis prenta út og hafa sýnilegan í móttöku, við upplýsingaborð eða á öðrum áberandi stað þar sem gestir sjá hann.
https://www.ferdamalastofa.is/is/um-ferdamalastofu/frettir/almyrkvinn-mikilvaegar-upplysingar-til-ferdafolks

Address

Geirsgata 9
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 08:30 - 16:00
Tuesday 08:30 - 16:00
Wednesday 08:30 - 16:00
Thursday 08:30 - 16:00
Friday 08:30 - 16:00

Telephone

+3545355500

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ferðamálastofa / Icelandic Tourist Board posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Ferðamálastofa / Icelandic Tourist Board:

Shortcuts

Share