Félagsmiðstöðin Norðurbrún 1

Félagsmiðstöðin Norðurbrún 1 Félagsmiðstöðin Norðurbrún 1 þjónustar alla eldri borgara sem vilja taka þátt í félagsstarfi. Heitar máltíðir eru seldar í hádegi alla daga. sími 568 3838.

Endilega kynnið ykkur dagskrá Norðurbrúnar eins eru allir velkomnir að kíkja í heimsókn og skoða staðinn. Félagsmiðstöðin er opin öllum aldurshópum alla virka daga frá kl. 09:00-17:00. Fjölbreytt dagsskrá er í boði, meðal annars spilamennska, boccia, myndlist, tréskurður, leirmunanámskeið, fjölbreytt námskeið, upplestur, kvikmyndasýningar og leikfimi. Einnig eru ýmsar skemmtanir í boði eins og jólaskemmtun, hausthátíð og ferðalög.

Í dagbók Morgunblaðsins má fylgjast með dagskrá félagsstarfsins í Norðurbrún.

Í félagsmiðstöðinni eru boðið upp á ýmiskonar þjónustu, svo sem hárgreiðslu, fótaaðgerðir og bænastund. Nauðsynlegt er að panta þær fyrirfram. Kaffiveitingar eru seldar alla virka daga

Nánari upplýsingar varðandi þjónustuna eru veittar í síma: 411-2760

Fótaaðgerðastofan hjá Betu er opin mánud og miðvikud. Hárgreiðslustofa Ingunnar er opin þriðjud. fimmtud. og föstud. frá kl.10:00-17:00 sími 578-7820. Bókabíllinn er á fimmtudögum kl: 10.00 - 10.30. Bónusbíllinn kemur alla miðvikudaga kl. 14.40
Guðsþjónusta og sparikaffi er fyrsta föstudag í mánuði. Bingó er annan og fjórða hvern föstudag í mánuði.

Elsku vinir Norðurbrúnar 1.Við áttum notalega viku saman, fulla af góðri dagskrá og samveru.Á þriðjudaginn var fyrirlest...
12/09/2026

Elsku vinir Norðurbrúnar 1.

Við áttum notalega viku saman, fulla af góðri dagskrá og samveru.

Á þriðjudaginn var fyrirlestur tileinkaður Gulum september, sem við Andrea tókum að okkur. Þar ræddum við um geðrækt, náungakærleik og mikilvægi þess að huga að andlegri heilsu. Einnig fórum við yfir mikilvægi þess að halda okkur í góðu líkamlegu formi með léttum æfingum, teygjum og daglegri hreyfingu.

Hér er dagskráin fyrir næstu viku.

Minnum sérstaklega á bingóið okkar fimmtudaginn kl. 15:30.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Hér er dagskráin fyrir næstu viku í Norðurbrún.Vikan verður fremur róleg, en eftir hana fara fleiri dagskrárliðir af sta...
21/08/2026

Hér er dagskráin fyrir næstu viku í Norðurbrún.

Vikan verður fremur róleg, en eftir hana fara fleiri dagskrárliðir af stað á ný, meðal annars samsöngur, Hreyfismiðjan og hugleiðsla.

Við höldum áfram að njóta samverunnar, hreyfingarinnar og góðu stundanna saman.

Eigið góða helgi og ég hlakka til að njóta vikunnar með ykkur.

Kæru vinir Norðurbrúnar.Hér eru nokkrar myndir frá félagsstarfinu okkar í sumar.Boccia, handavinna og spjallhringurinn o...
21/08/2026

Kæru vinir Norðurbrúnar.

Hér eru nokkrar myndir frá félagsstarfinu okkar í sumar.

Boccia, handavinna og spjallhringurinn okkar hafa verið að mestu leyti á dagskrá í sumar og skapað margar góðar stundir saman.

Við áttum líka einstaka stund þegar við fylgdumst saman með almyrkvanum. Það var sannarlega sérstök upplifun að deila þessari náttúrustund saman.

Síðasta laugardag var Brekkusöngur hjá okkur þar sem Bjarni töframaður kom í heimsókn og skemmti með söng, húmor og gleði. Við gæddum okkur á pylsum og nutum þess að vera saman úti í sólinni. Þetta var sannkallaður sumardagur eins og þeir gerast bestir.

Við ákváðum líka að skella okkur í sumarferð áður en sumrinu lýkur. Við fórum í Hveragarðinn í Hveragerði þar sem við fengum leiðsögn um svæðið, suðum egg og smökkuðum rúgbrauð bakað í hvernum. Að því loknu lá leiðin á Selfoss þar sem við rifjuðum upp sögu skyrsins og enduðum daginn á góðum mat í mathöllinni.

Strax daginn eftir var svo bingó hjá okkur, sem er einn af okkar vinsælustu dagskrárliðum. Þar er alltaf góð stemning, eitthvað gott með kaffinu og gestir koma gjarnan utan úr bæ til að taka þátt.

Takk fyrir yndislegar sumarstundir saman.

Á morgun verður svaka stuð hjá okkur í Norðurbrún.Við ætlum að grilla pylsur og fáum Bjarna töframann í heimsókn, sem mu...
14/08/2026

Á morgun verður svaka stuð hjá okkur í Norðurbrún.

Við ætlum að grilla pylsur og fáum Bjarna töframann í heimsókn, sem mun skemmta okkur með uppistandi og söng. Við hlökkum mikið til.

Hér kemur einnig dagskrá Norðurbrúnar fyrir næstu viku.

Það er enn sumarfrí hjá nokkrum dagskrárliðum, en handavinnan byrjar aftur og verður alla mánudaga og miðvikudaga kl. 13:00–14:30.

Á miðvikudaginn förum við í sumarferð. Við heimsækjum Hveragarðinn í Hveragerði, skoðum svæðið og fáum tækifæri til að sjóða egg í hvernum og smakka hverabakað rúgbrauð.

Að því loknu förum við á Selfoss og heimsækjum Skyrland, þar sem við fáum stutta og lifandi fræðslu um ævintýri skyrsins. Í lokin gefst tækifæri til að kíkja á kaffihúsið á staðnum.

Skráning og greiðsla í ferðina fer fram í afgreiðslu Norðurbrúnar.

Á fimmtudaginn hefst bingóið aftur eftir sumarfrí og verður áfram annan hvern fimmtudag kl. 15:30. Munið endilega að koma aðeins fyrr og fá ykkur góðar veitingar áður en bingóið hefst.

Ég hlakka til að njóta vikunnar með ykkur.

Kæru íbúar og gestir Norðurbrúnar.Hér er dagskrá félagsstarfsins fyrir næstu viku.Nokkrir dagskrárliðir eru í sumarfríi ...
07/08/2026

Kæru íbúar og gestir Norðurbrúnar.

Hér er dagskrá félagsstarfsins fyrir næstu viku.

Nokkrir dagskrárliðir eru í sumarfríi út ágúst, en við munum að sjálfsögðu finna eitthvað skemmtilegt að gera í staðinn.

Morgunleikfimi og slökun verða á sínum stað alla morgna kl. 10:00 og mun Annetta halda utan um þær stundir.

Við bætum einnig við nýjum dagskrárlið á mánudögum kl. 14:00–15:00 út ágúst: göngutúr um hverfið. Ef veðrið er gott er aldrei að vita nema við stoppum í ís á leiðinni.

Á miðvikudaginn ætlum við, eins og margir landsmenn, að fylgjast með almyrkvanum. Tveir starfsmenn munu bjóða upp á göngutúr út á bílastæðið hjá Hrafnistu, þar sem talið er að best sé að fylgjast með myrkvanum.

Mikilvægt er að nota sólmyrkvagleraugu allan tímann, nema á meðan almyrkvinn stendur yfir. Starfsfólk verður til aðstoðar. Hægt er að kaupa sólmyrkvagleraugu í afgreiðslunni á 1.000 kr. og rennur ágóðinn til styrktar félagsstarfi Norðurbrúnar.

Á laugardaginn ætlum við svo að vera með brekkusöng, vonandi úti ef veður leyfir. Bjarni töframaður kemur til okkar og skemmtir með uppistandi og söng. Félagsstarfið verður með pylsur og gos til sölu.

Við hlökkum til að eiga skemmtilega viku með ykkur.

Hér er dagskráin fyrir næstu vikur.Yfir sumartímann verður aðeins rólegra um að vera í félagsstarfinu vegna sumarfría. V...
10/07/2026

Hér er dagskráin fyrir næstu vikur.

Yfir sumartímann verður aðeins rólegra um að vera í félagsstarfinu vegna sumarfría. Við höldum þó áfram með morgunleikfimina, boccia, spjallhringinn og handavinnuna, en aðrir dagskrárliðir fara í sumarfrí á meðan.

Allir eru einnig velkomnir að dunda sér í listasmiðjunni, taka þátt í mósaíkverkinu eða fara í gönguferðir þegar veður leyfir.

Við hlökkum til að eiga notalegar sumarstundir með ykkur.

Kæru vinir.Hér eru nokkrar myndir frá síðustu tveimur vikum í félagsstarfinu okkar.Við höfum haldið áfram með okkar föst...
10/07/2026

Kæru vinir.

Hér eru nokkrar myndir frá síðustu tveimur vikum í félagsstarfinu okkar.

Við höfum haldið áfram með okkar föstu dagskrárliði, þó aðeins hafi fækkað í dagskránni vegna sumarfría. Þann 3. júlí vorum við með pizzuveislu sem heppnaðist mjög vel, enda alltaf vinsælt að breyta aðeins til öðru hverju.

Við erum einnig byrjuð á nýju og spennandi verkefni í listasmiðjunni, sameiginlegu mósaíkverki, þar sem allir eru velkomnir að taka þátt.

Annars eru þetta búnar að vera yndislegar tvær vikur, þrátt fyrir að félagsstarfið sé í rólegri kantinum yfir sumartímann.

Dásamlegu vinir félagsmiðstöðvarinnar Norðurbrúnar 1.Hér kemur dagskráin okkar fyrir tímabilið 6.–10. júlí.Í lok vikunna...
06/07/2026

Dásamlegu vinir félagsmiðstöðvarinnar Norðurbrúnar 1.

Hér kemur dagskráin okkar fyrir tímabilið 6.–10. júlí.

Í lok vikunnar set ég inn myndir frá síðustu tveimur vikum.

Address

Norðurbrún 1
Reykjavík
104

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Félagsmiðstöðin Norðurbrún 1 posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share