Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fjármála- og efnahagsráðuneytið Facebook-síða fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Velkomin á Facebook síðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.Við fögnum allri umræðu á síðunni okkar en áskiljum okkur rétt til að fjarlægja meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga eða hópa. Að sjálfsögðu gilda hér líka almennar notendareglur Facebook (sjá á www.facebook.com/terms.php?ref=pf)

Allt efni sem sett er inn af öðrum aðilum en fjármála- og efnahagsráðuneytinu er á ábyrgð viðkomandi einstaklings. Endilega kíkið á vefinn okkar vegna frekari upplýsinga um starf ráðuneytisins:
www.fjarmalaraduneyti.is
www.ministryoffinance.is

11/09/2026

Hvað felst í aðhaldsaðgerðum fjárlagafrumvarpsins 2027? Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra fer yfir það.

Tekjur og gjöld ríkissjóðs ná jafnvægi í fjárlagafrumvarpi ársins 2027 og afkoma er jákvæð um fimm milljarða króna. Lang...
07/09/2026

Tekjur og gjöld ríkissjóðs ná jafnvægi í fjárlagafrumvarpi ársins 2027 og afkoma er jákvæð um fimm milljarða króna. Langvinnur hallarekstur ríkissjóðs verður þar með stöðvaður og afkoman jákvæð í fyrsta sinn frá 2018. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra færði Daða Má mynd af núllinu á þessum tímamótum.

„Loksins úr mínus í plús,“ sagði Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra þegar hann kynnti frumvarp til fj...
07/09/2026

„Loksins úr mínus í plús,“ sagði Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra þegar hann kynnti frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 á blaðamannafundi í morgun. Tekjur og gjöld ná jafnvægi í frumvarpinu og heildarafkoman er jákvæð um 5 milljarða króna.

Frétt í athugasemd

03/09/2026

Daði Már kynnir frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 á mánudagsmorgun. Frumvarpið verður svo lagt fram á Alþingi við þingsetningu daginn eftir.

Fjárlagafrumvarp ársins 2027 verður lagt fram á Alþingi eftir rétt rúma viku.
31/08/2026

Fjárlagafrumvarp ársins 2027 verður lagt fram á Alþingi eftir rétt rúma viku.

Ráðstefnan Tengjum ríkið fer fram fimmtudaginn 17. september á Hilton Reykjavík Nordica og í beinu streymi.Yfirskrift rá...
26/08/2026

Ráðstefnan Tengjum ríkið fer fram fimmtudaginn 17. september á Hilton Reykjavík Nordica og í beinu streymi.

Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er „Framtíð Ísland.is“. Í erindum og vinnustofum verður sjónum beint að framtíð stafrænnar opinberrar þjónustu og áleitnum spurningum um öra tækniþróun, samfélagslegar áskoranir og mikilvægi samstarfs. Jafnframt verður fjallað um reynslu Íslands og annarra ríkja á þessu sviði.

Taktu daginn frá!

Í mati Scope Ratings er bent á að helstu styrkleikar íslenska hagkerfisins séu háar tekjur á mann í alþjóðlegum samanbur...
04/07/2026

Í mati Scope Ratings er bent á að helstu styrkleikar íslenska hagkerfisins séu háar tekjur á mann í alþjóðlegum samanburði, tiltölulega lágar og lækkandi skuldir hins opinbera, trúverðug ríkisfjármálastefna og sterk skuldbinding stjórnvalda til ábyrgrar ríkisfjármálastjórnar.

Scope Ratings hefur veitt ríkissjóði Íslands lánshæfiseinkunnina AA- í innlendri og erlendri mynt með stöðugum horfum.

Nýtt innviðafélag sem fjármálaráðherra hefur komið á fót nefnist Göng og brú ohf. Markmið félagsins er að flýta fyrir þj...
01/07/2026

Nýtt innviðafélag sem fjármálaráðherra hefur komið á fót nefnist Göng og brú ohf. Markmið félagsins er að flýta fyrir þjóðhagslega mikilvægum samgönguframkvæmdum, skapa farveg fyrir stöðuga fjármögnun slíkra verkefna og tryggja hagkvæma, faglega og skilvirka verkefnastjórn við undirbúning og framkvæmd þeirra

Í samræmi við lög um innviðafélag, sem samþykkt voru á Alþingi 18. júní sl., hefur fjármála- og efnahagsráðherra komið á fót hlutafélagi um fjármögnun og uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja.

Niðurstöður OECD sýna að opinber þjónusta á Íslandi stendur sterkt: ánægja með dagleg samskipti er yfir 70%, upplýsingar...
30/06/2026

Niðurstöður OECD sýna að opinber þjónusta á Íslandi stendur sterkt: ánægja með dagleg samskipti er yfir 70%, upplýsingar eru aðgengilegar fyrir 78% svarenda og Ísland mælist yfir OECD-meðaltali í meirihluta mælinga um upplifun almennings af opinberum stofnunum.

Traust til stjórnvalda og opinberra stofnana hefur aukist hér á landi samkvæmt niðurstöðum nýrrar alþjóðlegrar könnunar OECD á trausti almennings til opinberra aðila.

Nú má nálgast upptöku frá ráðstefnu um skýrslu sérfræðingahóps um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum með íslenskum texta...
24/06/2026

Nú má nálgast upptöku frá ráðstefnu um skýrslu sérfræðingahóps um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum með íslenskum texta. Þar má meðal annars sjá upptöku af kynningu Catherine L. Mann á skýrslunni en hún fór fyrir sérfræðingahópnum.

Hér má nálgast öll erindi ráðstefnunnar með íslenskum texta:
https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/06/24/Textud-myndbond-fra-radstefnu-um-valkosti-Islands-i-gjaldmidlamalum/

https://vimeo.com/1204000121

This is "2026-06-23_Gjaldmidlamal_03-Cathrine_EN_ISsub" by Stjórnarráð Íslands on Vimeo, the home for high quality videos and the people who love them.

Address

Arnarhvoll
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 08:30 - 16:00
Tuesday 08:30 - 16:00
Wednesday 08:30 - 16:00
Thursday 08:30 - 16:00
Friday 08:30 - 16:00

Telephone

+3545459200

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fjármála- og efnahagsráðuneytið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Fjármála- og efnahagsráðuneytið:

Shortcuts

Share