19/06/2026
Til hamingju með kvenréttindadaginn!
Þann 19. júní 1915 fengu konur kosningarétt og kjörgengi til Alþingis með séraldursákvæði og hafði Bríet Bjarnhéðinsdóttir þetta að segja um það:
„En það allra furðulegasta í þessu máli er það, að allir flokkarnir hafa tekið upp hinn nafnfræga íslenzka, stjórnvizkulega búhnykk, að veita ekki konum fullan kosningarrétt, heldur smá skamta þeim hann úr hnefa i 15 ár.“
Árið 1920 unnu konur loks fullnaðarsigur þegar ný stjórnarskrá vegna sambandslaganna frá 1918 gekk í gildi og veitti konum fullt og skilyrðislaust jafnrétti á við karla um kosningarétt og kjörgengi til Alþingis.
Það var svo tveimr árum síðar, 1922, að konur buðum fram sérlista í Alþingiskosningum og skipuðu hann forstöðukona kvennaskóla, riststjóri kvennablaðs, kennslukona og skáld. Náði efsta konan á listanum, Ingibjörg H. Bjarnason, kjöri og varð því fyrst kvenna til að taka sæti á Alþingi í febrúar 1923.