30/05/2024
Okkar eina sanna Jóga í viðtali við Vikan:
“Ég hef lært í gegnum ævina að hlýða æðri máttarvöldum, meira en manneskjum. Ég hef hlýtt tilganginum mínum og gefið eftir mínar væntingar og mínar hugmyndir fyrir eitthvað sem ég hef leyft að verða, eitthvað sem mér var ætlað sem er svo miklu stærra og meira en mig hefði nokkurn tíma getað órað fyrir.
Mér finnst í raun ekki gaman nema þegar ég er í þessari þjónustu. Það var í þessari þjónustu sem viljinn til að vinna með líkama fólks, í stað þess að klæða það, kom; að vilja sameina fjölskyldur – s*x ólíkar manneskjur – sem er bara heljarinnar verkefni sem þarf að sinna af mikilli alúð eða setja saman Besta flokkinn með öllu því góða fólki og Jóni. Í öllum þessum tilfellum og svo oft í lífinu hef ég einfaldlega verið að fylgja áætlun sem var sett fyrir mig.“
Og nú er Jóga orðin ættmóðir með sjö barnabörn, fimm tengdabörn, börn þeirra Jóns og svo forsetaframboð eiginmannsins sem Jóga tekur virkan þátt í.
„Framboðinu til forsetans fylgir svo mikil orka og há tíðni sem ég hef í gegnum lífið lært að fylgja. Því þetta skrifar sig allt saman sjálft hver svo sem útkoman verður. Það er svo gaman að hitta allt þetta fólk sem er að hjálpa okkur, vera svona mikið í kringum alla fjölskylduna sem er saman í þessu, börnin og barnabörnin og tengdabörnin. Þetta er bara algjör veisla sem er í boði Jóns og þjóðarinnar og þetta er það skemmtilegasta sem ég geri, þetta óvænta – það er algjörlega uppáhalds í mínu lífi. Óvænta og stóra ætlunarverkið sem ég hafði ekki séð fyrir. Og Jón minn. Hann hefur vaxið með öllum verkefnum sem hann hefur tekið sér fyrir hendur – eða öllu heldur hafa verkefnin dafnað í hans höndum. Ég held að það sé engin ástæða til að ætla annað en að foretaembættið myndi gera það líka,“ segir Jóga Gnarr að lokum.
Jóga Gnarr Jóhannsdóttir er 63 ára móðir og amma og segist nota bæði fjölskyldumillinafnið Gnarr og Jóhannsdóttir með stolti. Blaðamaður hitti Jógu á heimili hennar og eiginmannsins, Jóns Gnarr, í gamla Vesturbænum í Reykjavík. Við anddyri hússins tók Klaki, hundurinn þeirr...