27/01/2025
Á morgun, þriðjudaginn 28. janúar kl. 16:30, fer fram 55. fundur íbúaráðsins. Fyrsti liður á dagskrá fundarins á morgun er kynning á starfsemi Álftamýrarskóla og með hliðsjón af því fer fundurinn að þessu sinni fram í húsakynnum skólans.
Fundurinn er opinn öllum en verður ekki streymt í þetta sinn. Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Starfsemi Álftamýrarskóla. Til kynninga.
2. Drög að tillögu íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis um skoðun á breytingu strætóleiða.
3. Umsagnarbeiðni - Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 - Tillaga, rammahluti - Borgarlína 1. lota: Ártún – Fossvogsbrú. Til afgreiðslu.
4. Stýrihópur um stefnumótun fjölmenningarborgarinnar Reykjavík. Til framlagningar.
5. Fundadagatal íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis – vor 2025. Til framlagningar.
6. Málefni hverfisins. Til umræðu.
Auk þess að geta mætt á fundinn geta íbúar sent inn spurningar á fundinn eða í aðdraganda hans. Spurningar, ábendingar eða erindi skal senda á póstfang íbúaráðsins, [email protected].
Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur íbúa, bakhóps hverfisins, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Með íbúaráðunum er ætlunin að styrkja tengingu og stytta boðleiðir milli íbúa og stjórnsýslu borgarinnar og styðja við möguleika íbúa á að ...