Rás 1

Rás 1 Útvarp allra landsmanna - FM 93,5 og 92,4. Ríkisútvarpið var stofnað árið 1930 og hóf útsendingar 20.

desember það ár. Það starfar á grundvelli laga nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu . Ríkisútvarpið skal stuðla að lýðræðislegri umræðu, menningarlegri fjölbreytni og félagslegri samheldni í íslensku samfélagi með fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. Það skal leggja rækt við íslenska tungu, menningu, sögu þjóðarinnar og menningararfleifð. Fjölmiðlaefnið skal vera fréttir og fréttaskýr

ingar, fræðsluþættir, íþróttaþættir, afþreying af ýmsum toga, lista- og menningarþættir og sérstakt efni fyrir börn og ungmenni.

14/06/2026

Annar þáttur er mættur: Birta og Bergur eru spennt fyrir hvort öðru, þau hittast í Bauninni. Hvað gerist þegar allt breytist? 👀👀

Annar þáttur er mættur í spilara RÚV og á allar helstu hlaðvarpsveitur ✨

Við erum stödd í plássi fyrir vestan í kringum aldamótin, Sveitaballamenningin er upp á sitt besta og rúnturinn stendur fyrir sínu en Baunin er hjartað, hún er ekki bara besta sjoppan, þar er líka djammað og slúðrað. Birta og Bergur hittast stundum í Bauninni, þau eru spennt hvort fyrir öðru en fyrr en varir breytist allt og þau þurfa að taka erfiðar ákvarðanir....

Krakkar sem passa ekki beint inn í boxið verða útundan í skólakerfinu og vandanum er velt á milli skólastiga grunnskólan...
13/06/2026

Krakkar sem passa ekki beint inn í boxið verða útundan í skólakerfinu og vandanum er velt á milli skólastiga grunnskólans í stað þess að taka á honum strax. Það getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir þessi börn. Kerfið er á dagskrá Rásar 1 og það er hægt að hlusta á þáttinn í heild í Spilara Rúv og á helstu hlaðvarpsveitum.

Krakkar sem passa ekki beint inn í boxið verða útundan í skólakerfinu og vandanum er velt á milli skólastiga grunnskólans í stað þess að taka á honum strax. Það getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir þessi börn. Kerfið er á dagskrá Rásar 1.

Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness heldur áfram og hægt er að hlusta á í RÚV Spilara.Að þessu sinni er lesin Ungfrúin ...
10/06/2026

Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness heldur áfram og hægt er að hlusta á í RÚV Spilara.

Að þessu sinni er lesin Ungfrúin góða og Húsið, stutt og margrætt verk þar sem Halldór Laxness fjallar um efri stéttina í þorpinu Eyvík og tilraunir hennar til að stjórna sögunni um sjálfa sig.
Samlesari klúbbsins er Elínborg Una Einarsdóttir, blaðamaður, sviðshöfundur og samfélagsrýnir. Grein hennar, „Laxness hverfur úr skólum landsins“, vakti töluverða athygli síðasta haust og átti sinn þátt í að kveikja á þessum bókaklúbbi.

Aldrei las ég Laxness er fyrir þau sem hafa lítið lesið Laxness, aldrei lesið bækur eftir hann eða vilja lesa Laxness upp á nýtt.

Hlustaðu á Víðsjá í Spilara RÚV.

07/06/2026

Fyrsti þáttur er mættur: Djamm, daður og slúður í útvarpsleikritinu Baunin á Rás 1 og spilara RÚV 💜

Við erum stödd í plássi fyrir vestan í kringum aldamótin, Sveitaballamenningin er upp á sitt besta og rúnturinn stendur fyrir sínu en Baunin er hjartað, hún er ekki bara besta sjoppan, þar er líka djammað og slúðrað. Birta og Bergur hittast stundum í Bauninni, þau eru spennt hvort fyrir öðru en fyrr en varir breytist allt og þau þurfa að taka erfiðar ákvarðanir....

Það getur ekki verið í anda farsældarlaganna, sem voru samþykkt samhljóða á Alþingi, að barn þurfi að bíða eftir greinin...
06/06/2026

Það getur ekki verið í anda farsældarlaganna, sem voru samþykkt samhljóða á Alþingi, að barn þurfi að bíða eftir greiningu í fimm ár og enn síður að það skipti máli í hvaða hverfi barnið býr. Börn og biðlistar eru umfjöllunarefni Kerfisins á Rás 1.

Fischer systur voru gestir Víðsjár í vikunni, við ræðum ilmtónleika og hugmyndir að baki ilmi Listahátíðar Reykjavíkur e...
05/06/2026

Fischer systur voru gestir Víðsjár í vikunni, við ræðum ilmtónleika og hugmyndir að baki ilmi Listahátíðar Reykjavíkur en líka allt milli himins og jarðar. 🌿✨

„Það er í raun mjög fyndið að við höfum öll farið þessa leið,“ segja systurnar Lilja, Ingibjörg og Sigurrós Birgisdætur um leiðina inn í myndlistina, en þær stofnuðu ásamt Jónsa bróður sínum ilmhúsið Fischersund sem hefur sprungið út sem hálfgerð sköpunarverksmiðja þar sem ilmvörur en líka myndlist og tónlist streyma út.

„Pabbi er vélsmiður og mamma sjúkraliði, en það er kannski þetta traust og þetta frelsi sem að þau veita okkur sem gerir þetta að verkum. Þau eru ofboðslega skapandi og án þess að vera beint að skapa listaverk, þá eru þau lausnamiðuð og gera hlutina sjálf.“

Þú getur hlustað á Víðsjá í spilara RÚV og á öllum helstu hlaðvarpsveitum 🎧✨

04/06/2026

Má ég kannski bara vera feit? 🤔

Í útvarpsþáttunum HOLD tekur Brynhildur Björnsdóttir stöðuna á nútíma holdafarsumræðu og segir sögu sína í nokkrum megrunarkúrum. Í framhaldi af því veltir hún fyrir sér hvort hún eigi að nýta sér þær aðferðir sem læknavísindin bjóða upp á í baráttunni við ofþyngd.

Þú getur hlustað á Hold í spilara RÚV og á öllum helstu hlaðvarpsveitum 📲🎧 https://www.ruv.is/utvarp/spila/hold/39525/bou2ah

Hinir útvöldu erfingjar hafa allir látist ungir.
30/05/2026

Hinir útvöldu erfingjar hafa allir látist ungir.

Í áratugi hefur Hjaltested-ættin tekist á um jörðina Vatnsenda sem umlykur Elliðaárvatn í Kópavogi. Umdeild erfðaskrá hefur fært útvöldum karlmönnum í ættinni jörðina og ómæld auðæfi en líka hneppt þá í fjötra. Hinir útvöldu hafa allir látist ungir.

„Ég hef reynt að keyra verkin aðeins lengra en natúralisma, fara í átt að súrrealisma. Nú erum við á þannig tímum að nat...
28/05/2026

„Ég hef reynt að keyra verkin aðeins lengra en natúralisma, fara í átt að súrrealisma. Nú erum við á þannig tímum að natúralismi dugar ekki alveg. Ég held að það hafi verið tilhneiging hjá listamönnum þegar tímarnir verða óeðlilegir og skrítnir og óhuggulegir, að leita þangað.“ Sigtryggur Bjarni Baldvinsson opnar sýninguna Heyr himna í dag en þar gefur að líta stór vatnslitaverk þar sem himininn ofan við Melrakkasléttu er í aðalhlutverki. 🖌️

Sýningin er á heimili Sigtryggs, í hinu sögufræga húsi Englaborg sem Jón Engilberts reisti við Klambratún árið 1942.

Víðsjá lítur í heimsókn í þætti dagsins 🎧

Address

Efstaleiti 1
Reykjavík
150

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Rás 1 posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category