05/04/2026
English below
Um leið og við óskum landsmönnum gleðilegra páska viljum við benda á að páskarnir ætla svo sannarlega að enda með almennilegum veðurhvelli.
Það er því full ástæða til að gera ráð fyrir truflunum á samgöngum á morgun og gott að skipuleggja ferðir með það í huga. Förum varlega.
As we wish everyone a happy Easter, we would also like to highlight that the holiday will end with a spell of good weather.
This is expected to increase travel and may cause disruptions on the roads tomorrow. Please plan your journeys accordingly and drive with caution.
https://umferdin.is/en
Appelsínugular og gular viðvaranir vegna vinds, hríðar eða talsverðrar ofankomu hafa verið gefnar út fyrir morgundaginn, annan í páskum.
Vaxandi austanátt á morgun og fer að snjóa. Austan 20-28 m/s með snjókomu og skafrenningi um hádegi, fyrst og hvassast syðst. Hægari og þurrt norðanlands fram eftir degi, en þá hvessir þar líka með snjókomu. Spáð er talsverðri eða mikilli snjókomu á suðaustan- og austanverðu landinu.
Fólk er hvatt til að fylgjast með veðurspám og viðvörunum á www.vedur.is og við minnum á að hægt er að finna allar upplýsingar um ástand vega og lokana á www.umferdin.is
Hlýnar smám saman seint um daginn og fer að rigna á sunnanverðu landinu undir kvöld.
Dregur smám saman úr vindi aðfaranótt þriðjudags, fyrst sunnanlands.