Ríkisendurskoðun er sjálfstæð eftirlitsstofnun Alþingis.
Address
Bríetartún 7
Reykjavík
105
Opening Hours
| Monday | 08:00 - 12:00 |
| 13:00 - 15:30 | |
| Tuesday | 08:00 - 12:00 |
| 13:00 - 15:30 | |
| Wednesday | 08:00 - 12:00 |
| 13:00 - 15:30 | |
| Thursday | 08:00 - 12:00 |
| 13:00 - 15:30 | |
| Friday | 08:00 - 12:00 |
| 13:00 - 14:30 |
Telephone
Website
Alerts
Be the first to know and let us send you an email when Ríkisendurskoðun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.
Category
Um Ríkisendurskoðun
Ríkisendurskoðandi starfar á vegum Alþingis og er trúnaðarmaður þess samkvæmt lögum nr. 46/2016. Hann er sjálfstæður og engum háður í störfum sínum. Hlutverk ríkisendurskoðanda er að hafa eftirlit með rekstri og fjármálum ríkisins, að fjármunum sé ráðstafað á hagkvæman og réttmætan hátt og í samræmi við ákvarðanir Alþingis. Ríkisendurskoðandi gerir grein fyrir niðurstöðum sínum í skýrslum til Alþingis sem birtar eru opinberlega. Þar birtast tillögur að úrbótum, bættri stjórnsýslu, skýrari ábyrgð og betri nýtingu ríkisfjár. Skrifstofa ríkisendurskoðanda nefnist Ríkisendurskoðun.
Hægt er að lesa ágrip af sögu Ríkisendurskoðunar á https://rikisendurskodun.is/um-okkur/agrip-af-sogu-rikisendurskodunar/. Þar er m.a. sagt frá Einari Bjarnasyni, sem var fyrsti ríkisendurskoðandinn frá 1955-1969. Þar á undan var hann aðalendurskoðandi ríkisins.
Núverandi ríkisendurskoðandi er Skúli Eggert Þórðarson. Hann var einróma kosinn ríkisendurskoðandi af Alþingi þann 16. apríl 2018. Samkvæmt lögum nr. 46/2016 um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga er ríkisendurskoðandi kosinn til s*x ára í senn.