31/08/2026
Ályktun SUS um stöðu frjálsrar fjölmiðlunar á Íslandi.
Það er fáránlegt að sú staða sé komin upp í vestrænu lýðræðissamfélagi að ríkið eitt annist flutning sjónvarpsfrétta. Þetta gerist á sama tíma og við fögnum 40 ára afmæli frjáls útvarps á Íslandi. Ástandið er enn alvarlegra í ljósi þess að Ríkisútvarpið hefur ítrekað gerst sekt um hlutdrægni í fréttaflutningi sínum og almenningur þvingaður til að greiða útvarpsgjaldið.
Í stefnuskrá Sambands ungra sjálfstæðismanna kemur skýrt fram hver afstaða ungra sjálfstæðismanna er:
„Ríkið ætti ekki að standa í fjölmiðlarekstri né styrkjum til einkarekinna fjölmiðla.“
Þróunin undanfarin ár hefur gengið í þveröfuga átt. Staða einkarekinna fjölmiðla versnar á sama tíma og Ríkisútvarpið verður sífellt fyrirferðarmeira og keppir við þá um bæði athygli almennings og auglýsingatekjur. Þegar nýir vettvangar ryðja sér til rúms, hvort sem um er að ræða hlaðvörp, samfélagsmiðla eða annað stafrænt efni, fylgir RÚV á eftir með milljarða úr ríkissjóði sér til stuðnings og keppir við einkaaðila.
Nú stefnir í að einu reglulegu kvöldfréttirnar í sjónvarpi verði frá Ríkisútvarpinu. Slík staða er óheilbrigð fyrir íslenskt lýðræði. Fjölbreyttir og sjálfstæðir fjölmiðlar, ólíkar ritstjórnir og raunveruleg samkeppni um fréttir og fréttaskýringar eru forsenda upplýstrar umræðu og nauðsynlegs aðhalds gagnvart stjórnvöldum og öðrum valdhöfum.
SUS kallar eftir því að Alþingi bregðist strax við. Fyrsta skrefið á að vera að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði. Það er óverjandi að ríkisfjölmiðill keppi við einkarekna fjölmiðla um takmarkaðar auglýsingatekjur á sama tíma og hann þiggur milljarða frá skattgreiðendum.
Jafnframt þarf að setja starfsemi RÚV mun strangari ramma. Ríkisfjölmiðill á ekki að ryðja sér til rúms á hverjum nýjum markaði sem verður til. Draga þarf RÚV út úr samkeppni á hlaðvarpsmarkaði, setja skýr mörk um starfsemi þess á samfélagsmiðlum og þrengja starfsemina að skýrt skilgreindu almannaþjónustuhlutverki.
Til lengri tíma er afstaða SUS skýr: Ríkið á ekki að standa í fjölmiðlarekstri.
Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna