14/04/2025
Hjalti fangaprestur með skemmtilega nálgun.
Á dögunum bauð hann upp á kyrrðarstund á Litla Hrauni þar sem rætt var um guðfræði Kendrick Lamar sem birtist víðsvegar i textum hans. Þetta vakti mikla lukku hjá þeim sem hana sóttu.
"The cat is out the bag, I am not your savior
I find it just as difficult to love thy neighbors"
Í gær var kyrrðarstund á Litla Hrauni þar sem rætt var um guðfræði Kendrick Lamar, sem birtist víðsvegar í textum hans, tónleikaframkomu og viðtölum.
Þessi setning úr laginu Savior varð okkur íhugunarefni.
Höfum við einhvern tímann viljað setja okkur sjálf eða aðra í sæti Guðs?
Höfum við sett stöðu, völd, neyslu, hvernig sem neysla birtist, peninga, sambönd, efnislega hluti, í sæti Guðs?
Höfum við upplifað og fundið hve erfitt er að fylgja gullnu reglunni, að elska náungann eins og sjálf okkur?
Þessi stef eru íhugunarefni fyrir okkur öll nú þegar við erum að stíga saman inn í kyrruviku.
,,Hvað er sannleikur?" spyr Pontíus Pílatus í 18.kafla Jóhannesarguðspjalls.
Það er áskorun að íhuga þessi stef, þau kalla okkur til heiðarlegrar sjálfskoðunar.
“Truth, it resides in the fire
The need of it’s dire
Deceiving the lies, I know” rappar Kendrick í fyrrnefndu lagi, Savior.