21/01/2017
Til gesta Ævintýragarðsins
Þökkum góða aðsókn og velvilja hinna fjölmörgu gestum sem hafa komið í Ævintýragarðinn. Hátt í 50 þúsund börn og fullornir hafa heimsótt staðinn.
Við viljum taka það fram að aldrei hafa orðið alvarleg slys fyrir utan smá plástar, sem hendir þegar hundruð barna eru að ærslafullum leik. Þökkum við það starfsmönnum og rekstraaðilum sem ávallt hafa sýnt árverkni og aðgæslu. Séð um að uppfylla allar þær kröfur sem gerðar eru til slíkra staða.
Eftirlitsaðilar hjá borginni, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fundu samt alltaf nýjar athugasemdir og ákváðu að loka staðnum í september 2016. Kom það úr hörðustu átt því Reykjavíkurborg er í samkeppni með sambærilega afþreyingu og hreyfingu fyrir börn. Borginni ber því að gæta sérstaklegar varúðar þar sem hagsmunaárekstrar gætu orðið. Með nýjum kröfum og fjölgun eftirlitsaðila ákváðu rekstraraðilar að hætta rekstri.
Til stóð að opna garðinn í breyttri og minni mynd á nýju ári, en af því hefur ekki orðið. Tæki, hoppukastalar, leikjagrindur, trampolin og fl. eru fáanleg fyrir nýja rekstraraðila sem hefðu sem hefðu áhuga að opna sambærilegan stað í nágreni Reykjavíkur eða erlendis. Upplýsingar í síma 66 45 900 og [email protected]
Rekstraraðilar vilja enn og aftur þakka ágætum gestum fyrir hvatningar og góðar undirtektir. Ævintýragarðurinn.